Jæja, nú er ég með svoldið vandamál. Málið er að fartölvan mín hefur tvisvar fengið smá högg á sig að framan

Í fyrra skiptið kom ekkert fyrir hana en í seinna skiptið hætti Bluetooth að virka

Takkinn sem er framan á tölvunni (ég er með Acer Aspire 5672) virkar alveg en ef ég er með þetta sem sýnir svona grænan texta á skjánum við ýmis tækifæri í gangi þá kemur "No device", ef ekki þá bara gerist ekki neitt
Nú er fartölvan tryggð hjá Sjóvá svo spurningin serm ég er núna að velta fyrir mér er hvort þetta falli undir ábyrgð og hve mikið þetta gæti komið til með að kosta fyrir mig. Ég reyndi að lesa yfir [url=http://sjova.is/files/2006_3_14_Víðtæk%20eignatrygging%20fyrir%20fartölvur.pdf]tryggingaskilmálann[/url] hjá Sjóvá en er ekki alveg að finna þetta/skilja þetta þar
Ég GÆTI svosem sætt mig við þetta þar sem ég hef eiginlega enga þörf fyrir Bluetooth en hver veit hvað maður kaupir sér í framtíðinni sem gæti þurft að nýta sér það? Svo ekki sé minnst á það að maður vill nú auðvitað helst hafa bara tölvuna í lagi og svona...
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]