Síða 1 af 1

Meðmæli eða mótmæli fyrir Lenovo C24-25

Sent: Mán 23. Nóv 2020 11:59
af gnarr
Elko er með þennann skjá til sölu, en ég finn takmarkaðar upplýsingar um hann á netinu.
https://elko.is/lenovo-c24-25-24-skjar-le66b0kac1eu

Hann yrði notaður nánast eingöngu tengdur við PS4 tölvu.

Er einhver hér sem hefur notað þennan skjá og getur mælt með eða á mótinu honum?

Re: Meðmæli eða mótmæli fyrir Lenovo C24-25

Sent: Mán 23. Nóv 2020 12:37
af appel
Þetta er auðvitað enginn high end skjár, þetta er svona það ódýrasta sem þú ert að kaupa útúr búð.

Sennilega skítsæmilegur skjár þannig séð. 75" hz og freesync hljómar fínt, hinsvegar nýtist það ekkert á PS4 sem er cappað á 60 hz og supportar ekki amd freesync.

Getur sennilega fundið fínan notaðan skjá til sölu á svipuðu verði ef ekki ódýrara.

En erfitt að koma með einhver meðmæli eða ekki því þú ert ekki með neinar kröfur, t.d. budget.
Og afhverju 24"? Er einhver ástæða fyrir að það má ekki vera stærra?

Og ef þetta er tengt við PS4, hví ekki eitthvað ódýrt sjónvarp?

Re: Meðmæli eða mótmæli fyrir Lenovo C24-25

Sent: Mán 23. Nóv 2020 12:42
af worghal
eina sem mér finnst slakt við þennan skjá er fóturinn.
ekkert adjustability

Re: Meðmæli eða mótmæli fyrir Lenovo C24-25

Sent: Mán 23. Nóv 2020 12:42
af gnarr
Þetta er ætlað fyrir ungling sem spilar PS4 með headphones.
Því ódýrara, því betra.

Er eitthvað á sambærilegu verði sem er betra? Er eitthvað sjónvarp sem kemst nálægt þessu í verði?

Er eitthvað sjónvarp sem kemst nálægt þessu í input lag og er líka ódýrt?

Re: Meðmæli eða mótmæli fyrir Lenovo C24-25

Sent: Mán 23. Nóv 2020 12:43
af gnarr
worghal skrifaði:eina sem mér finnst slakt við þennan skjá er fóturinn.
ekkert adjustability


Hefurðu first hand reynslu af honum? Er í lagi með liti og contrast?

Re: Meðmæli eða mótmæli fyrir Lenovo C24-25

Sent: Mán 23. Nóv 2020 12:49
af worghal
gnarr skrifaði:
worghal skrifaði:eina sem mér finnst slakt við þennan skjá er fóturinn.
ekkert adjustability


Hefurðu first hand reynslu af honum? Er í lagi með liti og contrast?

já hef prufað hann, hann var með sæmilega birtu og liti.

Re: Meðmæli eða mótmæli fyrir Lenovo C24-25

Sent: Mán 23. Nóv 2020 13:29
af appel
Sami skjár aðeins ódýrari hjá tölvutek:

https://tolvutek.is/Tolvur-og-skjair/To ... 449.action

Re: Meðmæli eða mótmæli fyrir Lenovo C24-25

Sent: Mán 23. Nóv 2020 13:40
af gnarr
Reyndar er hann ódýrari í Elko (16.495 kr)