Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Höfundur
bestplayer
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Þri 04. Ágú 2020 21:37
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf bestplayer » Þri 04. Ágú 2020 21:55

Vantar álit frá einhvejrum sem veit meira en ég..
Er semsagt að fara að kaupa mér parta og setja saman pc turn, tölvan verður aðalega notuð fyrir tölvuleiki og netið. Ég er algjör beginner og er mjög spennt að setja hana saman en er frekar lost þegar það kemur að velja parta og hvað er compatible og hvað ekki. Bugdetið mitt er 150þús.

Væri mjög þakklát ef þið gætuð gefið mér eitthvað feedback á þessu og hvað ég mætti breyta.

*er ekki enþá búin að velja case*

Hérna er listinn https://pcpartpicker.com/list/3Rv4HB

Skjákort
Zotac GTX1660 -47.950þús

Örgjörvi
AMD Ryzen 5 3600 3.6GHz, Turbo 4.2GHz, AM4, 6-kjarna -29.500þús

Örgjörvavifta
Noctua NH-L9a low profile svört AM4örgjörvakæling 92mm -8.816þús

Móðurborð
X470 Gaming Plus Max -31.496þús

Minni
TEAM 16GB (2x8GB) Delta RGB 2666MHz DDR4 -17.500þús

Aflgjafi
Corsair CX 650W ATX Modular aflgjafi 80+ Brons Builder- 5 ára ábyrgð -17.996þús

SSD
512GB TeamGroup GX2 SSD -13.500þús

Samtals 166.758 þús

Dóri S.
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
Reputation: 72
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Dóri S. » Þri 04. Ágú 2020 22:54

Nokkrir hlutir sem ég myndi persónulega breyta:
Myndi frekar kaupa þetta móðurborð: https://kisildalur.is/category/8/products/1658
Skjákort: https://www.tl.is/product/geforce-gtx-1 ... entusxs-oc
Myndi líka borga aðeins meira fyrir ssd diskinn og fara í hraðan M.2 disk eins og t.d. þennan: https://kisildalur.is/category/11/products/1681
Myndi líka skoða hvort þú finnir ekki minni sem er 3200mhz á svipuðu verði á útsölunum núna.

Og varðandi kælinguna, þá myndi ég sleppa því að eyða þessum 9000kr. og nota frekar það sem kemur með örgjörvanum, eða þú getur keypt Wraith Prism RGB (Kemur með öflugri örgjörvum eins og 3900x.) notað eða nýtt. Kísildalurinn selur þær á 4000kr, getur fengið mína á 2000 :D

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Klemmi » Þri 04. Ágú 2020 23:23

Ertu að fara að kaupa þetta úti eða hér heima?
S.s. má raða saman á PCpartpicker eða úr verslunum hér?

Höfundur
bestplayer
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Þri 04. Ágú 2020 21:37
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf bestplayer » Mið 05. Ágú 2020 09:49

@Dóri Okei ætla að skoða þetta aðeins betur á eftir takk fyrir!

@Klemmi Ætla að kaupa þetta hérna heima, held að það sé ódyrara en að kaupa allt úti og láta senda heim útaf genginu... Ég raðaði saman á partpicker það sem ég fann í verslunum hérna til að hjálpa mér með compatibility

Trihard
Ofur-Nörd
Póstar: 278
Skráði sig: Lau 11. Júl 2020 19:18
Reputation: 45
Staða: Tengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Trihard » Mið 05. Ágú 2020 10:53

Ef þú getur beðið í ca. 2 mánuði þá munu nýju skjákortin frá Nvidia og AMD detta inn á markað og fólk mun selja gömlu íhlutina sína, maður getur nælt sér í öfluga en notaða tölvuíhluti á lægra verði og það verður heldur betur future-proof frekar en gtx 1660. Svo tekur það einhvern lengri tíma fyrir ódýrari skjákortin að koma út kannski 3-4 mánuðir.
Svo er líka stutt í að nýju Ryzen 4000 örgjörvarnir frá AMD koma, kannski í Október/Nóvember svo 3600x mun líka lækka í verði og þú getur þá keypt eitthvað betra í staðinn.

Dóri S.
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
Reputation: 72
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Dóri S. » Mið 05. Ágú 2020 11:04

bestplayer skrifaði:@Dóri Okei ætla að skoða þetta aðeins betur á eftir takk fyrir!

Ekkert mál. :)
Smá uppfærsla:
Móðurborð ef þú vilt spara nokkra 1000 kalla:
https://www.computer.is/is/product/modu ... s-pro-matx

Móðurborð ef þú vilt spara enn fleiri 1000 kalla:
https://www.computer.is/is/product/modu ... m-s2h-matx

Fínn hraður m.2 diskur á góðu verði:
https://www.tl.is/product/512gb-ace-a80-ssd-nvme

Gætir líka sparað á aflgjafanum, t.d þessi þó að hann sé ekki modular, ef þú tekur m-atx kassa með "aflgjafahlíf" þá er auðvelt að fela þær snúrur sem þú notar ekki.
https://www.tl.is/product/mwe-750w-aflgjafi

Hérna eru dæmi um m-atx kassa eins og ég er að tala um:
https://www.tl.is/product/masterbox-mb3 ... med-glugga

https://www.tl.is/product/silencio-s400 ... deinangrun

Gætir hugsanlega fundið aðeins fleiri peninga í skjákortið með sumum af þessum lausnum. ;)
Og já góður punktur með væntanlegu skjákortin. En það er samt líka alltaf hægt að bíða eftir næstu og þarnæstu kynslóð af svona dóti.

Skjámynd

Atvagl
Nörd
Póstar: 128
Skráði sig: Lau 11. Jan 2014 19:51
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Atvagl » Mið 05. Ágú 2020 11:12

Það er allan daginn þess virði að bíða eftir nýju kortunum sem koma vonandi til landsins í lok september

|| Ryzen 7 7800X3D - NH-D15 - 32GB (2x16) DDR5 6000 CL30 - Gigabyte B650 AORUS ELITE AX
|| RTX 3080 ASUS TUF - 1TB Samsung 970 M.2 SSD - PSU Corsair RM1000x
|| Fractal Design Define 7 Compact
|| 2x Asus ROG VG27AQ

Uncredible
Nörd
Póstar: 132
Skráði sig: Mið 01. Júl 2020 18:48
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Uncredible » Mið 05. Ágú 2020 12:03

Ég myndi ekki nota stock kælinguna, þessi á 9k eru vel þess virði. Þetta er mjög góð kæling.

En ég mæli með að fara enn lengra og kaupa https://att.is/product/noctua-nh-d15s-orgjorvavifta

Þetta er örlítið dýrara en þá þarftu ertu með alveg solid kælingu.

Ég líka efast um að nýju kortin séu að koma til landsins í lok september, meira eins og í nóvember og við vitum voða lítið um þau og ég efast um að þau muni lækka verðið á skjákortum.

Skjámynd

Atvagl
Nörd
Póstar: 128
Skráði sig: Lau 11. Jan 2014 19:51
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Atvagl » Mið 05. Ágú 2020 12:40

Uncredible skrifaði:Ég líka efast um að nýju kortin séu að koma til landsins í lok september, meira eins og í nóvember og við vitum voða lítið um þau og ég efast um að þau muni lækka verðið á skjákortum.

Ókei ég játa það alveg að það er kannske full mikil bjartsýni að við fáum þau svo snemma á klakann...

|| Ryzen 7 7800X3D - NH-D15 - 32GB (2x16) DDR5 6000 CL30 - Gigabyte B650 AORUS ELITE AX
|| RTX 3080 ASUS TUF - 1TB Samsung 970 M.2 SSD - PSU Corsair RM1000x
|| Fractal Design Define 7 Compact
|| 2x Asus ROG VG27AQ

Dóri S.
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
Reputation: 72
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Dóri S. » Mið 05. Ágú 2020 12:49

Atvagl skrifaði:
Uncredible skrifaði:Ég líka efast um að nýju kortin séu að koma til landsins í lok september, meira eins og í nóvember og við vitum voða lítið um þau og ég efast um að þau muni lækka verðið á skjákortum.

Ókei ég játa það alveg að það er kannske full mikil bjartsýni að við fáum þau svo snemma á klakann...

Jebb, og held að það séu meiri líkur en minni á að það verði tafir á útgáfunni, framleiðslunni og sendingum á þessum kortum útaf covid.

pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf pepsico » Mið 05. Ágú 2020 14:22

Þetta er allt of dýrt móðurborð fyrir það sem þú ert að gera og of dýrt vinnsluminni fyrir hraðann á því.
Skjákortið er líka á dýrara verði en GTX 1660 Super sem er talsvert betra kort en GTX 1660, en kannski meintirðu það allan tímann því ég veit ekki til þess að GTX 1660 sé ennþá til sölu.
Að lokum vil ég benda á að svona low profile örgjörvakælingar borga dýran prís í afköstum m.v. ekki-low profile örgjörvakælingar á sama verði. Þetta er eiginlega bara ætlað í mjög litla turna þar sem nánast ekkert pláss er til staðar. Á sama verði geturðu fengið kælingu sem kælir miklu betur á sama hávaðastigi, og hefur miklu meiri kæligetu yfir heildina. Þarft bara að passa að það sé stuðningur fyrir örgjörvakælingar upp að 155mm hæð á kassanum sem þú velur ef þú tekur þessa kælingu sem ég læt hér fyrir neðan.
Taktu frekar þetta vinnsluminnis kit, þetta móðurborð, GTX 1660 Super, og þessa örgjörvakælingu:
https://tolvutaekni.is/collections/vinn ... geance-lpx
https://www.att.is/product/asus-tuf-b450-plus-modurbord
https://kisildalur.is/category/12/products/1408
https://kisildalur.is/category/13/products/1609

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Klemmi » Mið 05. Ágú 2020 14:33

Ég er hrifinn af Intel, svo þessi vél er samsett sem slík. Miða hér við vandaða en hagstæða íhluti á öllum sviðum.

Ef þú þorir að taka smá "áhættu", þá myndi ég reyna að finna gott notað GTX 1080 eða GTX 1080Ti kort.

Kassi: CoolerMaster Silencio S400 - 13.297kr.
Aflgjafi: CoolerMaster MWE 500W - 8.996kr.
Móðurborð: ASRock B460M Pro4 - 21.500kr.
Örgjörvi: Intel Core i5-10400F - 28.900kr.
Kæling: Arctic Freezer 34 CO - 7.490kr.
Vinnsluminni: G.Skill 2x8GB 3000MHz DDR4 - 15.900kr.
SSD diskur: Intel 660p 512GB - 16.900kr.
Skjákort: Palit GTX 1660 Super - 47.500kr.

Samtals: 160.483kr.

pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf pepsico » Mið 05. Ágú 2020 16:11

Klemmi eftir því sem ég best veit þá styður i5/i3 á B460M bara 2666 MHz. Miðað við öll benchmörk sem ég hef séð er það einfaldlega verra setup í leikjum en R5 3600 m. sæmilegu vinnsluminni, og kostar auk þess meira en R5 3600 á µATX móðurborði:
https://kisildalur.is/category/8/products/1051
https://kisildalur.is/category/9/products/740
3.400 kr. minna fyrir meiri afköst.
R5 3600 + µATX móðurborð + 3200MHz CL16 vinnsluminni fyrir betri leikjaupplifun á 2.400 kr. lægra verði.
https://tolvutaekni.is/collections/vinn ... geance-lpx
10400 er hins vegar örlítið betri í leikjum en R5 3600 ef hann er á Z-borði (m. góðu vinnsluminni) en þau kosta a.m.k. 6.400 kr. meira og þá er þetta líka komið í ~9-10 þúsund krónum dýrari uppsetningu fyrir sömu afköst í flestum leikjum en betri afköst í sumum leikjum.

47.500 kr. Palit GTX 1660 Super skjákort https://kisildalur.is/category/12/products/1408
29.500 kr. Ryzen 5 3600 örgjörvi https://kisildalur.is/category/9/products/740
17.500 kr. ASRock B450M Pro4-F µATX móðurborð https://kisildalur.is/category/8/products/1051
16.900 kr. 2x8GB 3200 MHz CL16 vinnsluminni https://tolvutaekni.is/collections/vinn ... geance-lpx
13.500 kr. 512GB TeamGroup GX2 SSD drif https://kisildalur.is/category/11/products/1293
13.297 kr. Cooler Master Silencio S400 turnkassi https://www.tl.is/product/silencio-s400 ... deinangrun
8.996 kr. Cooler Master MWE 500W aflgjafi https://www.tl.is/product/mwe-500w-aflgjafi
6.796 kr. Cooler Master Hyper 212 EVO örgjörvakæling https://www.tl.is/product/coolermaster- ... oll-socket
= 153.989 kr.

Harold And Kumar
spjallið.is
Póstar: 477
Skráði sig: Lau 21. Sep 2019 22:53
Reputation: 52
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Harold And Kumar » Mið 05. Ágú 2020 16:17

pepsico skrifaði:Klemmi eftir því sem ég best veit þá styður i5/i3 á B460M bara 2666 MHz. Miðað við öll benchmörk sem ég hef séð er það einfaldlega verra setup í leikjum en R5 3600 m. sæmilegu vinnsluminni, og kostar auk þess meira en R5 3600 á µATX móðurborði:

Þarf bara að bæta við einu fyrir þennann þráð. Þetta er alveg mjög góður listi, stock coolerinn er alveg nógu gôður fyrir 3600. Þá mundi maður spara 6.796kr. Bara mín skoðun, gæti þessvegna verið rangt, ef svo endilega látið mig vita

Ryzen 7 7700x
Rtx 4060 Ti
32gb ddr5 5200mhz
1440p 165hz

pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf pepsico » Mið 05. Ágú 2020 16:22

Það er hárrétt að hann er nóg til að kæla örgjörvann og bara missa af ~100-150 MHz af boosting sem myndi annars eiga sér stað en vandamálið við hann er hávaðinn. Ég myndi ekki vilja hafa hann persónulega og það er þrátt fyrir að nota lokuð heyrnatól. Sama segi ég um Intel stock kælinguna.

Harold And Kumar
spjallið.is
Póstar: 477
Skráði sig: Lau 21. Sep 2019 22:53
Reputation: 52
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Harold And Kumar » Mið 05. Ágú 2020 16:24

pepsico skrifaði:Það er hárrétt að hann er nóg til að kæla örgjörvann og bara missa af ~100-150 MHz af boosting sem myndi annars eiga sér stað en vandamálið við hann er hávaðinn. Ég myndi ekki vilja hafa hann persónulega og það er þrátt fyrir að nota lokuð heyrnatól. Sama segi ég um Intel stock kælinguna.

Ah já reyndar þá er hann stock coolerinn svoldið hávær. Gleymdi að hugsa útí það

Ryzen 7 7700x
Rtx 4060 Ti
32gb ddr5 5200mhz
1440p 165hz

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Setja saman PC turn, vantar álit á pörtum!

Pósturaf Klemmi » Mið 05. Ágú 2020 16:52

pepsico skrifaði:Klemmi eftir því sem ég best veit þá styður i5/i3 á B460M bara 2666 MHz. Miðað við öll benchmörk sem ég hef séð er það einfaldlega verra setup í leikjum en R5 3600 m. sæmilegu vinnsluminni, og kostar auk þess meira en R5 3600 á µATX móðurborði:

Mjög góð ábending hjá þér varðandi 2666MHz á B460 kubbasettinu, og alveg hárrétt hjá þér :)

Hins vegar sýnist mér þeir vera að performa mjög svipað í leikjum, i5-10400F m. 2666MHz vs R5 3600 m. öflugra minni, sbr. lengst til vinstri og hægri í þessu myndbandi:

Samkvæmt OP þá sýnist mér að aðal þunga notkun tölvunnar verði leikir, svo ég ætla ekki að spá í öðrum benchmarks en leikjum. Það er alveg rétt hjá þér líka, ef tölvan ætti að vera notuð í einhverja aðra þunga vinnslu, s.s. mynd- og eða hljóðvinnslu, þá væri mjög erfitt að rökstyðja það að fara í Intel frekar en AMD :)

Þó ég færi sjálfur Intel leiðina, þá ætla ég ekkert að reyna að selja Intel hér neitt frekar en AMD, hvora leiðina sem OP fer, þá verður hún örugglega mjög sátt.

Ég myndi þó velja Arctic kælinguna frekar en Hyper 212 Evo, og ef hún fer í kassa með gluggahlið, þá myndi ég taka eSports týpuna frekar en CO... og reyndar kemur þá inn punktur fyrir Intel pakkann, móðurborðið er talsvert fallegra :lol:
En er þó hrifinn af þessum Silencio kassa, virkar hljóðlátur og veglegur.