Síða 1 af 1

Nvidia RTX2080 - Freesync - G sync

Sent: Þri 03. Mar 2020 13:36
af Stingray80
Sælir vaktarar,

Er einhver fróður í notkunargildi Nvidia Korta og skjá sem eru með AMD freesync, er búinn að reyna finna uppl. á netinu
og finnst mér það benda í báðar áttir, Las að Nvidia hafi crackað undan þrýstingi og ákveðið að supporta AMD freesync

SBR. https://www.extremetech.com/gaming/283261-nvidia-admits-defeat-will-support-g-sync-on-freesync-displays

Er einhver sem hefur prófað þetta sjálfur ? þ.a.e.s hvort þetta virki í raun ?

Re: Nvidia RTX2080 - Freesync - G sync

Sent: Þri 03. Mar 2020 14:05
af SolidFeather
Hér er listi yfir skjái sem Nvidia segja að eigi að virka: https://www.nvidia.com/en-us/geforce/pr ... ors/specs/

G-Sync Compatible eru væntanlega freesync skjáirnir.

Re: Nvidia RTX2080 - Freesync - G sync

Sent: Þri 03. Mar 2020 17:03
af Stingray80
Fann annan lista yfir skjái sem ættu að virka - https://docs.google.com/spreadsheets/u/1/d/1Ej9mOe5NamLldpfyFfXrqvLMZP-aG2Zi1su7QzPRNJY/htmlview?usp=sharing&sle=true#

https://elko.is/tolvur/tolvuskjair/samsung-32-2560x1440-va-144hz

Er einhver hérna með reynslu af þessum skjá?

er þetta Free sync alveg to die for eða ?

Helsta sem ég er að leita eftir er 144 HZ X).

Re: Nvidia RTX2080 - Freesync - G sync

Sent: Þri 03. Mar 2020 21:25
af Fletch
Ég hef mjög góða reynslu af þessu, virkar flott í skjánum hjá mér, búinn að eiga LG34GK950F núna í rétt tæpt ár og Gsync/freesync virkar mjög vel og án vandræða :8)

Re: Nvidia RTX2080 - Freesync - G sync

Sent: Mið 04. Mar 2020 03:10
af Danni V8
Gamli skjárinn minn var Freesync en eftir þetta update þar sem sumir þannig voru supported af nVidia þá prófaði ég einu sinni að kveikja á því og var þá með Freesync með nVidia GTX 1080. Mér fannst það ekki funkera nógu vel í því tilfelli þannig ég gaf því aldrei séns.

Síðan fékk ég með Gsync skjá með nýju tölvunni og RTX2060 kort og kveikti á Gsync og fann fyrst ekki mikinn mun, en það versnaði allavega ekki.
Slökkti svo fyrir mistök á Gsync þegar ég var að fikta eitthvað og tók strax eftir því! Ég var alveg gáttaður, ég get varla spilað leiki lengur án Gsync. Mér leið eins og leikirnir væru í lægri FPS en samt var talan mjög svipuð.