Síða 1 af 1

Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 11:52
af snakkop
Hvort á ég fá mér amd ryzen threadripper 3960x eða AMD ryzen 3950x ?

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 13:39
af gnarr
Það fer rosalega mikið eftir því hvað þú gerir í tölvunni. En fyrst þú ert að spyrja þessarar spurningar eru allar líkur á því að svarið sé 3950x eða jafnvel 3900x.

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 13:59
af snakkop
Er 3960x betri í myndvinnslu og allskonar workstation og líka spila leiki ?

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 14:07
af gnarr
Það er nánast sömu afköstu í Lightroom með R5 3600 og Threadripper 3990x. Lightroom nýtir þessa auka kjarna ekki.
3950x er að öllum líkindum hraðari en 3960x í Lightroom.

3950x er betri í lang flesta leiki útaf hærri turbo klukku.

"Allskonar workstation" getur þýtt svo margt að það er nánast ómögulegt að svara því.

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 14:18
af Mossi__
Hvað ætlarðu að gera á vélinni?

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 14:36
af snakkop
Búa til teiknimyndir og myndvinnslu og búa til mod fyrir beam ng spila tölvuleiki

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 16:40
af pepsico
3960X er talsvert sterkari í margri vinnslu en þú ert að borga rosalega mikið aukalega fyrir það. Ekki bara verðmuninn á örgjörvunum heldur eru móðurborðin og kælilausnirnar dýrari ef þú ferð í 3960X. 3960X er jafn góður og 3950X í mörgum leikjum en ekki öllum. Stundum talsvert verri. En 3960X klárlega betri í vinnslu.

Ég myndi bara kalla það gott í 3950X ef þú ert ekki atvinnumaður með ótrúlegt budget í þetta.

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 16:45
af snakkop
Ég búinn kaupa fékk mér AMD ryzen 3960x og Asrock TRX40 Taichi :D

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 17:04
af pepsico
Það er þvílíkt. Hvaða kælingu stefnirðu á að nota í þetta?

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 17:11
af snakkop
Vatskælingu xspc vatsblokk 480mm vatskassi ekki búinn að ákveða vatsdælu

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 17:33
af pepsico
Flott flott, það þarf akkúrat eitthvað svoleiðis í þessa örgjörva.

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 18:08
af snakkop

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 20:30
af emil40
ég tók 3900x hjá mér hann er 12 kjarna og rífur flest í sig léttilega. Hann er á um 90þ á meðan 3950x er á 135þ og Threadripper 2990WX er á 318þ. Ef ég væri þú og ekki með endalaust peningatré $$$$ þá held ég að 3900x væri það skynsamlegasta.

Re: Örgjörva pælingar

Sent: Þri 11. Feb 2020 20:44
af snakkop
Mér finnst AMD trx40 móðurborðinn ekkert smá flott svo bara gaman prófa nýja plattform ::)