Síða 1 af 1

1440p 144hz skjár sýnir bara 60Hz

Sent: Fös 03. Jan 2020 16:11
af oskar9
Sælir Vaktarar, var að kaupa mér 27" Samsung skjá sem er 1440p 144hz.
Það fylgir með honum Samsung HDMI high speed snúra sem ég hélt að myndi duga.
En þegar ég tengi hann í skjákortið (GTX 1070) þá sýnir Nvidia display setting bara 60hz
Og Hz stillingin í skjánum sjálfum er "grayed out" svo ég get ekkert breytt henni.
Þarf ég display port snúru eða eru einhverjar stillingar sem þarf að virkja?

Takk fyrir

Re: 1440p 144hz skjár sýnir bara 60Hz

Sent: Fös 03. Jan 2020 16:14
af Sultukrukka
Verður að nota displayport snúru og mögulega stilla á 144hz í Nvidia control panel.

Re: 1440p 144hz skjár sýnir bara 60Hz

Sent: Fös 03. Jan 2020 16:35
af oskar9
Fúlt að láta fylgja með snúru sem styður ekki einu sinni það sem skjárinn er speccaður fyrir :svekktur
En takk fyrir, ég versla þá display port snúru

Re: 1440p 144hz skjár sýnir bara 60Hz

Sent: Fös 03. Jan 2020 19:30
af addon
get ekki séð betur ef þú skoðar hdmi staðalinn að þú eygir að ná þessu með hdmi 2.0
tékkaðu hvað stendur á hdmi snúrunni

Re: 1440p 144hz skjár sýnir bara 60Hz

Sent: Fös 03. Jan 2020 20:07
af Zorglub
Display settings > Advanced display settings > Display adapter properties > monitor > velja 144

Re: 1440p 144hz skjár sýnir bara 60Hz

Sent: Fös 03. Jan 2020 20:57
af Kreg
get staðfest að þú getur notað HDMI, ég geri það hjá mér :) var líka í smá basli með að fá 144hz..man því miður ekki nkl hvernig ég gerði það svo..gangi þér vel!