Síða 1 af 1

Frá 9900K í AMD 3900X eða 3950X?

Sent: Þri 16. Júl 2019 21:00
af Templar
Sælir

Líst ekkert smá vel á nýju AMD, ekki átt AMD í mörg ár en þetta er alveg geggjað hjá þeim. Nokkrum FPS undir 1080P í FPS en allt annað margfalt betra og minni hiti. 9900K hitnar slatta.

Hvert er álit manna, á maður að skipta um lit svona til gamans? 3900X eða 3950X?

Re: Frá 9900K í AMD 3900X eða 3950X?

Sent: Mið 17. Júl 2019 01:03
af Mossi__
Fyrir mitt leiti, þá ætla ég að versla mér Ryzen 3900x vél fljótlega.

En ég kem til með að nota þá vél í grafíkvinnslu og den slags, og Ryzen er að slátra intel í þeim málum.

3900x er víst að performera svipað og 2950x (m.t.t. render benchmarks, video exports og svona) og betur en 9900k í allflestum tilvikum amk

Ég bíð spenntur að sjá hvað 3950x mun gera.

EDIT- Þess má geta að eg er búinn að vera team Intel í alveg um 20 ár.

Re: Frá 9900K í AMD 3900X eða 3950X?

Sent: Fös 19. Júl 2019 02:10
af Skaz
Veit ekki, held að þú sért með toppgræju eins og er og að þetta væri bara hliðarskref í performance.

Nýja Ryzen línan er mjög góð og er að ná Intel, það er alveg dagsljóst og multicore dæmið er þeirra ás, það er aukahvati til þess að fara út í þetta ef að þú notar tölvuna í einhverja krefjandi vinnslu aðra en leiki.

Ef að ég væri í þínum sporum þá myndi ég bíða og sjá hvernig 3950x er og líka til að sjá hvort að x570 móðurborðin og VRM og chipset kælingarnar á þeim verði aðeins gáfulegri. Er ekki að virka nógu vel núna er allt of mikil hiti frá þessu og vifta á chipsetti er eitthvað sem að ég hef ekki séð í 15 ár.