Síða 1 af 1

Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Fös 03. Maí 2019 16:16
af bjoggi
Hæhæ, vildi bara benda ykkur á þetta frábæra verð.
Er sjálfur með svona, kostaði 35 þúsund hingað komið með vsk. og öllu.

Mjög hratt SSD, minnir að það nær allt að 1800MB/sec.

Svo hægt að kaupa USB-C kassa utan um þetta fyrir þá sem eru ekki með NVMe á móðurborðinu, náið sirka 900MB/sec þar.

https://www.amazon.com/Intel-660p-2-0TB ... 1-fkmrnull

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Lau 04. Maí 2019 11:20
af Jon1
Þakka þér !

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Lau 04. Maí 2019 20:32
af jonsig
Intel SSD hafa reynst mér óvenjulega illa í tölvukerfum sem ég vinn við, og kostað kúnnan háar fjárhæðir með firmware göllum og gagnamissi.

Ég treysti heldur á seagate HDD

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Lau 04. Maí 2019 20:59
af Televisionary
Ég treysti illa fólki sem kallar viðskiptavini kúnna.

jonsig skrifaði:Intel SSD hafa reynst mér óvenjulega illa í tölvukerfum sem ég vinn við, og kostað kúnnan háar fjárhæðir með firmware göllum og gagnamissi.

Ég treysti heldur á seagate HDD

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Lau 04. Maí 2019 21:15
af Hjaltiatla
Það er samt eitthvað til í þessu hjá Jónsig, ansi margir sem hafa þurft að uppfæra Firmware-ið á Enterprise SSD Intel diskum.
Get þó ekki sagt að ég sé sammála með Seagate diskana
https://support.microsoft.com/en-us/help/4499612/intel-ssd-drives-unresponsive-after-1700-idle-hours

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Lau 04. Maí 2019 22:21
af Dropi
Televisionary skrifaði:Ég treysti illa fólki sem kallar viðskiptavini kúnna.

jonsig skrifaði:Intel SSD hafa reynst mér óvenjulega illa í tölvukerfum sem ég vinn við, og kostað kúnnan háar fjárhæðir með firmware göllum og gagnamissi.

Ég treysti heldur á seagate HDD


Afhverju ?

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Sun 05. Maí 2019 01:16
af jonsig
Það hafa margir eytt stórum pening í þennan "premium" SSD varning frá þessu þóttafulla fyrirtæki.

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Sun 05. Maí 2019 02:02
af Hjaltiatla
Old but gold

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Sun 05. Maí 2019 09:36
af Starman
Sá tími er löngu liðinn að geta keypt hardware og "Set it and forget it"
Ef þú fylgist ekki með firmware/driver uppfærslum á vélbúnaðinum þínum þá ertu ekki vinna vinnuna þína.

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Þri 07. Maí 2019 12:34
af jonsig
Þetta er búnaður með custom OS byggt á windows 7 og "á ekki" að þurfa update, En vandamálið var leyst með að gefa út end of life á alla Intel diska og henda þeim út.

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Þri 07. Maí 2019 14:55
af Sydney
Voru ekki þessir 660p diskar slow as shit?

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Þri 07. Maí 2019 21:02
af Jon1
Þetta eru engir performance diskar. Þeir eru fínir í steam storage og svoleiðis. Svo lengi sem cache fyllist ekki þá eru þeir fínir

Re: Intel 2TB NVMe PCIe á $205

Sent: Mið 08. Maí 2019 15:41
af Theraiden
Getur einhver sagt mér hvernig maður pantar varning af amazon til að láta senda til íslands. Er búinn að reyna að panta helling af drasli af amazon (bæði USA og UK síðunum) en það vill enginn senda til íslands þegar maður fer í checkout...