Síða 1 af 1

30 pin dvi snúra?

Sent: Fös 15. Mar 2019 13:29
af fhrafnsson
Sælir og sælar kæru vaktarar.

Nú er ég í veseni, mig vantar 30 pinna dvi tengi fyrir eldri týpu af skjávarpa en svoleiðis virðist ekki vera til (amk ekki hjá origo né íhlutum). Veit einhver hvort hægt sé að fá svona snúru á Íslandi í dag eða þarf að panta af netinu?

Re: 30 pin dvi snúra?

Sent: Fös 15. Mar 2019 13:39
af asgeireg
Gæti verið til hér
https://www.ortaekni.is

Re: 30 pin dvi snúra?

Sent: Fös 15. Mar 2019 13:42
af svavaroe
Örtækni á pottþétt svoleiðis.

Re: 30 pin dvi snúra?

Sent: Fös 15. Mar 2019 16:25
af fhrafnsson
Örtækni átti þetta ekki, ég er farinn að halda að þetta sé spes snúra sem fylgdi með þessum skjávarpa á sínum tíma.

Re: 30 pin dvi snúra?

Sent: Fös 15. Mar 2019 17:03
af svavaroe
fhrafnsson skrifaði:Örtækni átti þetta ekki, ég er farinn að halda að þetta sé spes snúra sem fylgdi með þessum skjávarpa á sínum tíma.


Þetta er ekkert algengt, en var þó notað af vörpum :

Kóði: Velja allt

WHAT IS AN M1 / P&D / 30-PIN DVI CONNECTOR?
If the connector is wider than a standard DVI connector, it may be a VESA Plug and Display connector, or P&D. These 30-pin DVI style connectors, often referred to as M1 connectors are typically found as projector breakout cables, where they carry both an analog or digital video signal, and data such as USB.


En ertu viss um að þú þurftir 30pinna? þar sem auka er Analog og data (sem þú kannski þarft ekkert) ... ?
Búinn að prufa venjulegan ?

Re: 30 pin dvi snúra?

Sent: Lau 16. Mar 2019 13:08
af fhrafnsson
Já ég fékk venjulegan 24 pinna hjá origo sem ég prufaði en "endinn" á tenginu rekst í (þar sem hann er ekki jafn breiður) og passar því ekki í. Maðurinn hjá Örtækni benti einmitt á það sama.