Sjónvarp/Plex tölva


Höfundur
Geir26
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 02:08
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Sjónvarp/Plex tölva

Pósturaf Geir26 » Mið 23. Jan 2019 00:58

Sælir vaktarar.

Nú er komið komið að því að fjárfesta í tölvu sem verður tengd við sjónvarpið sem er í stofunni. Að auki verður tölvan notuð til að hosta Plex server fyrir 1 direct play og max 2 utanaðkomandi.

Ég lagði hausinn í bleyti þar sem ég hef ekki sett saman tölvu seinastliðin 10 ár. En tölvan þarf að vera stílhrein og hljóðlát.

Móðurborð : ASRock H310M-ITX/ac mini-ITX LGA1151 móðurborð Kísildalur : 14.500 kr.
Örgjörvi : Intel Core I5-8500 Hexa Core örgjörvi Gen8, Retail (Coffee Lake) . Ódýrið : 28.900 kr.
LC-Power LC-CC-65 örgjörvakæling. Kísildalur : 2500 kr.
Vinnsluminni : DDR4 Crucial 16GB 2400MHz . Computer.is : 18.392 kr.
Aflgjafi : BeQuiet System Power 9 600W Bulk. Kísildalur : 11.500
SSD : 120GB Apacer AS2280P2 M.2 Ultra SSD. Kísildalur : 7.500 kr.
SATA : Seagate IronWolf 4TB diskur. ATT.is : 20.750
Tölvukassi : Xigmatek Nebula mini-ITX turnkassi. Kísildalur : 16.500 kr.

Heildarverð : 120.542 kr.

Ég er mjög þakklátur fyrir þá sem skoða þráðinn og gefa mér ráð varðandi uppfærsluna




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarp/Plex tölva

Pósturaf Klemmi » Mið 23. Jan 2019 10:39

Þetta lítur mjög vel út hjá þér :)

Miðað við kröfurnar hjá þér, þá er ekki must að breyta neinu, en ég myndi skoða eftirfarandi hluti:

  • i3-8100 í stað i5-8500 - Þar sem þú ert ekki að fara í neina þunga vinnslu og leggur upp með að hafa tölvuna hljóðláta, þá er i3-8100 mikið meira en nóg, um 10þús kalli ódýrari og hitnar minna. Ódýrari og hljóðlátari, en ættir ekki að finna fyrir neinum mun á afköstum í svona vél.
    https://tolvutaekni.is/products/intel-c ... -6mb-cache
  • Treysti betur Crucial heldur en Apacer þegar kemur að SSD diskum. Tek áreiðanleika framyfir leshraða, hann er aðeins dýrari en rúmlega tvöfalt stærri:
    https://www.computer.is/is/product/ssd- ... cial-mx500
  • Það er lítil viftan á þessari LC kælingu, en litlar viftur mynda almennt meiri og leiðinlegri hávaða, myndi skoða þessar í staðin ef þær passa í kassann:
    http://kisildalur.is/?p=2&id=2667
    https://www.computer.is/is/product/vift ... 1-low-prof
  • Besta nýtnin er í aflgjöfum á um 50% álagi. Þar sem þú ert með mjög basic vél sem dregur í loadi kannski ~100-200W, þá er algjör óþarfi að fara í 600W aflgjafa og það gæti jafn vel heyrst aðeins meira í honum heldur en sambærilegum 350W. Myndi því ráðfæra mig við Kísildalsmenn um hvort 350W útgáfan af þessum BeQuiet aflgjafa sé jafn vönduð og hljóðlát og stærri týpan:
    http://kisildalur.is/?p=2&id=3778

Eins og ég segi, þetta eru bara uppástungur og engin þörf á að breyta, en held að þessar breytingar myndu þó almennt bæta vélina fyrir þá notkun sem þú ert að hugsa þetta í :)

Bætt við:
Svo ef þú ert að hugsa um þetta on a budget, þá er 8GB af vinnsluminni líka yfirdrifið nóg, en auðvitað ekkert verra að hafa 16GB ;)



Skjámynd

ZiRiuS
Of mikill frítími
Póstar: 1796
Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
Reputation: 387
Staðsetning: Við tölvuna
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarp/Plex tölva

Pósturaf ZiRiuS » Mið 23. Jan 2019 10:57

Þarf maður svona "monster" fyrir Plex server? (Alls ekkert diss, bara forvitinn þar sem ég þekki þetta ekki)



Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe


Cascade
FanBoy
Póstar: 755
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 36
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarp/Plex tölva

Pósturaf Cascade » Mið 23. Jan 2019 11:03

Ef notendur á plex server ráða við "direct play" á efninu sem þú hefur, þá getur plex serverinn verið léleg 10 ára gömul tölva.

Þegar þú þarft hinsvegar að transkóða þá tekur það mikið CPU
Ástæður fyrir transkóðun
Afspilunartæki skilur ekki codec sem mynd er í og þá þarf serverinn að transkóða
Sparar líka bandvídd. Ef þú ert með mynd sem er 10-20mbit/s þá ráða ekki allar tengingar við það og þá transkóðar serverinn og straumurinn verður minni

Þumalputta regla er að 1080p transcode þarfnist 2000 stig í passmark.

8100 örgjörfinn er með 8000 í passmark og gæti þá höndlað 4 samtímis 1080p transkóðanir (kannski tæpt)

Svo ef viðkomandi vill 4+ 1080p transkóðanir þá er 8100 örrinne kki nóg. Ef hann vill 1-2 samtíma transkóðanir þá er það nóg.


Svo er hægt að fá nvidia quadro p2000 skjákort, en það styður nánast ótakmarkaðan fjölda transkóðana, en það kostar um $400 í USA
(geforce kortin hafa software limit á 2 samtímis)



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3093
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 442
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarp/Plex tölva

Pósturaf hagur » Mið 23. Jan 2019 11:22

Spurning, þarftu endilega heila tölvu í þetta? Ef þetta er bara fyrir mediaplayback og Plex server? Ég var einu sinni með svona "HTPC" tölvu en ég henti henni að lokum og keypti mér Nvidia Shield TV. Það er frábært fyrir media-playback og það getur keyrt Plex server. Hægt að tengja external disk við það fyrir storage.

Food for thought ....




Höfundur
Geir26
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 02:08
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarp/Plex tölva

Pósturaf Geir26 » Mið 23. Jan 2019 13:54

Sælir. Takk kærlega fyrir allar ábendingarnar , það er einmitt spurning um að færa sig yfir í i3 og 8 gb minni og jafnvel fá sér stærri hd.

Málið er þannig með vexti að gamla borðtölvan mín er líklega síðan 2012 , svo þetta er einnig hugsað sem mögulegt leiktæki ef maður myndi grípa aftur í músina gömlu :)



Skjámynd

Oak
Bara að hanga
Póstar: 1590
Skráði sig: Fim 15. Okt 2009 16:51
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarp/Plex tölva

Pósturaf Oak » Mið 23. Jan 2019 20:55

hagur skrifaði:Spurning, þarftu endilega heila tölvu í þetta? Ef þetta er bara fyrir mediaplayback og Plex server? Ég var einu sinni með svona "HTPC" tölvu en ég henti henni að lokum og keypti mér Nvidia Shield TV. Það er frábært fyrir media-playback og það getur keyrt Plex server. Hægt að tengja external disk við það fyrir storage.

Food for thought ....


Enn geturðu verið með utanaðkomandi notendur á þannig plex server?


i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3093
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 442
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarp/Plex tölva

Pósturaf hagur » Mið 23. Jan 2019 21:33

Oak skrifaði:
hagur skrifaði:Spurning, þarftu endilega heila tölvu í þetta? Ef þetta er bara fyrir mediaplayback og Plex server? Ég var einu sinni með svona "HTPC" tölvu en ég henti henni að lokum og keypti mér Nvidia Shield TV. Það er frábært fyrir media-playback og það getur keyrt Plex server. Hægt að tengja external disk við það fyrir storage.

Food for thought ....


Enn geturðu verið með utanaðkomandi notendur á þannig plex server?


Já, sé ekki afhverju það ætti ekki að vera hægt. Þetta keyrir fully-fledged plex server eftir því sem ég best veit.



Skjámynd

Oak
Bara að hanga
Póstar: 1590
Skráði sig: Fim 15. Okt 2009 16:51
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarp/Plex tölva

Pósturaf Oak » Lau 26. Jan 2019 23:43

hagur skrifaði:
Oak skrifaði:
hagur skrifaði:Spurning, þarftu endilega heila tölvu í þetta? Ef þetta er bara fyrir mediaplayback og Plex server? Ég var einu sinni með svona "HTPC" tölvu en ég henti henni að lokum og keypti mér Nvidia Shield TV. Það er frábært fyrir media-playback og það getur keyrt Plex server. Hægt að tengja external disk við það fyrir storage.

Food for thought ....


Enn geturðu verið með utanaðkomandi notendur á þannig plex server?


Já, sé ekki afhverju það ætti ekki að vera hægt. Þetta keyrir fully-fledged plex server eftir því sem ég best veit.


Transcode og allan pakkann?


i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64


Gassi
spjallið.is
Póstar: 499
Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 21:33
Reputation: 24
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarp/Plex tölva

Pósturaf Gassi » Mið 11. Des 2019 04:31