Síða 1 af 1

Hvaða skjár er bestur (breytt)

Sent: Mið 28. Nóv 2018 17:37
af Talva2018
Er að leita af góðum leikjarskjá sem er:
27"-28",
2k *breytt
165hz. *breytt
1ms viðbragðstíma.

Hver er bestur í dag í leikjanotkun með gigabyte rtx 2080 8gb gaming oc skjákortinu?

Re: Hvaða skjár er bestur

Sent: Mið 28. Nóv 2018 17:41
af Njall_L
Mér vitanlega er þetta eini 4k 144Hz skjárinn á markaðnum í dag, reyndar ekki 1ms þar sem IPS panelar eru yfirleitt um 4ms.
https://tolvutek.is/vara/acer-predator- ... ar-svartur

Asus ROG Swift PG27UQ notar líka sama panel og í þessum Acer skjá og er eins spekkaður, hef bara ekki séð hann í verslun hérlendis.

Skjáir sem uppfylla þær kröfur sem þú leggur upp með eru bara ekki komnir ennþá.

Re: Hvaða skjár er bestur

Sent: Mið 28. Nóv 2018 17:51
af Viktor

Re: Hvaða skjár er bestur

Sent: Mið 28. Nóv 2018 18:43
af Talva2018
Er 2k betra en 4k i leiki eða er 1080 best ?
Hvaða skjár er bestur ef maður vill ekki hálsríg 27" nóg og vill hafa góðan viðbragðstíma og mikið hz og flott gæði?

Re: Hvaða skjár er bestur

Sent: Mið 28. Nóv 2018 19:08
af Viktor
Ég myndi fara í 27" 2560x1440 ef ég væri að skoða leikjaskjá í dag.

Ég myndi hinsvegar fara í stóran 4K fyrir skrifstofu og myndvinnslu. Ekki leiki.

Re: Hvaða skjár er bestur

Sent: Mið 28. Nóv 2018 19:54
af Talva2018
Ok þá vantar mig núna upplýsingar hver er besti leikjaskjár i dag ef ég er að leita af :

27-28" ,
2k,
165hz,
1ms?

Re: Hvaða skjár er bestur (breytt)

Sent: Mið 28. Nóv 2018 23:58
af kiddi
Ég er búinn að nota þennan í rúmt ár, vinn við myndvinnslu og er líka forfallinn leikjafíkill (PUBG o.s.frv)

27", 1440P, 165hz og IPS gæði, tikkar í öll boxin nema hann virðist ekki vera til á lager, en TL eru eflaust ekki lengi að fá hann í hús.

https://www.tl.is/product/27-rog-pg279q ... 5hz-g-sync

Re: Hvaða skjár er bestur (breytt)

Sent: Fim 29. Nóv 2018 01:44
af Talva2018
Ips 4ms :l
Er með 1ms tn skjá núna svo er efins að hækka í viðbragðshraða um nokkrar sekundur :)
En í staðinn græði Gsync og úr 144hz í 165hz.
Þetta hlýtur bara verða betra.
Lýst vel á þennan takk.

Re: Hvaða skjár er bestur (breytt)

Sent: Fim 29. Nóv 2018 07:48
af Njall_L
Þessi hérna er líka mjög svipaður skjánum sem kiddi linkar á, bara ódýrari
https://tolvutek.is/vara/acer-predator- ... ar-svartur

Getur séð samanburð á þeim tveimur hérna
https://www.displayspecifications.com/e ... n/60404fbc

Re: Hvaða skjár er bestur (breytt)

Sent: Fim 29. Nóv 2018 09:46
af Jón Ragnar
Njall_L skrifaði:Þessi hérna er líka mjög svipaður skjánum sem kiddi linkar á, bara ódýrari
https://tolvutek.is/vara/acer-predator- ... ar-svartur

Getur séð samanburð á þeim tveimur hérna
https://www.displayspecifications.com/e ... n/60404fbc




Fínt verð á þessum


Hvað er samt til af curved 1440p skjám?

Re: Hvaða skjár er bestur (breytt)

Sent: Fim 29. Nóv 2018 10:49
af gnarr
Talva2018 skrifaði:Ips 4ms :l
Er með 1ms tn skjá núna svo er efins að hækka í viðbragðshraða um nokkrar sekundur :)


ms er einn þúsundasti úr sekúndu ;)

Annars er sama og ekkert ghosting á 4ms panel, svo að þú munt líklega ekki taka eftir þessum mun.

Re: Hvaða skjár er bestur (breytt)

Sent: Fim 29. Nóv 2018 11:03
af Talva2018
Ef ég versla hann í usa virkar hann hér í evrópu?

Re: Hvaða skjár er bestur (breytt)

Sent: Fim 29. Nóv 2018 11:18
af Njall_L
Talva2018 skrifaði:Ef ég versla hann í usa virkar hann hér í evrópu?

Það fer alveg eftir skjám. Myndi spyrja söluaðilan hvaða spennusvið skjárinn styður áður en hann er pantaður. Ef skjárinn styður bara 110V-120V þá mun hann ekki virka. Ef hann styður 110V-240V eða 220V-240V þá myndi hann virka eðlilega.