Álit á 200k leikjaturni

Skjámynd

Höfundur
Risaeðla
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Lau 25. Feb 2012 01:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf Risaeðla » Fös 10. Ágú 2018 21:42

Er að skoða leikjaturn og er með budget upp á 200 þúsund, plús/mínus 20 þús. Tölvan væri mest notuð í tölvuleikjaspilun og svo grafíkvinnslu, Blender og Photoshop.

Var að skoða þessar tvær og myndi gjarna vilja heyra ykkar álit á þeim. Hvor þeirra er betri kostur? Og þá hvers vegna? Mynduði breyta einhverju? Ábendingar og nördaviska vel þegin :)

Acer Nitro N50-600 hjá Tölvutek: http://m.tolvutek.is/vara/acer-nitro-n5 ... olva-svort

RPG leikjaturninn hjá Kísildal: https://kisildalur.is/?p=2&id=3688




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Tengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf Klemmi » Lau 11. Ágú 2018 01:38

Myndi persónulega velja hvoruga. Tölvan hjá Tölvutek er full dýr m.v. hvað þú ert að fá.
8GB í vinnsluminni og GTX 1060 6GB? Og ekki gefið upp hvernig SSD diskur er í henni, bara stærðin.

Varðandi Kísildals vélina, þá er ég einfaldlega hrifnari af Intel og sé ekki ástæðu til að fara í AMD m.v. núverandi örgjörva line-up.

Einnig held ég að það séu allar líkur á því að báðir kassarnir séu óþarflega háværir.

Ég myndi fara í i5-8400, 16GB í vinnsluminni og taka svo það skjákort sem budget leyfir. En ef þú vilt fá i7, þá væri þetta pakkinn sem ég myndi skoða (allt hjá Tölvutækni), ath. að það vantar í þetta samsetningu og stýrikerfi.

comp.png
comp.png (119.71 KiB) Skoðað 2103 sinnum



Skjámynd

Höfundur
Risaeðla
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Lau 25. Feb 2012 01:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf Risaeðla » Lau 11. Ágú 2018 08:50

Klemmi skrifaði:Ég myndi fara í i5-8400, 16GB í vinnsluminni og taka svo það skjákort sem budget leyfir. En ef þú vilt fá i7, þá væri þetta pakkinn sem ég myndi skoða (allt hjá Tölvutækni), ath. að það vantar í þetta samsetningu og stýrikerfi.


Takk fyrir feedbackið og tillöguna Klemmi. Er semsagt sterkari leikur að velja Intel yfir AMD í dag?

Einn annar fróðari en ég um vélbúnað benti mér á að ég gæti þess vegna sparað mér pening og keypt 1060 í stað 1070 þar sem restin af vélbúnaðinum leyfir 1070 ekki að njóta sín að fullu, meikar það sens í þínum eyrum?

Er frekar til í að eyða aðeins hærri upphæð í tölvuna svo hún endist manni í nokkur ár og sé ágætilegs future proof.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf Viktor » Lau 11. Ágú 2018 09:05

Risaeðla skrifaði:gæti þess vegna sparað mér pening og keypt 1060 í stað 1070 þar sem restin af vélbúnaðinum leyfir 1070 ekki að njóta sín að fullu, meikar það sens í þínum eyrum?


Þetta er ekki rétt :!:

Ég veit ekki hvaða skjákortahvíslara þú þekkir en þetta er algjört bull :D


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Tengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf Klemmi » Lau 11. Ágú 2018 11:15

Risaeðla skrifaði:Einn annar fróðari en ég um vélbúnað benti mér á að ég gæti þess vegna sparað mér pening og keypt 1060 í stað 1070 þar sem restin af vélbúnaðinum leyfir 1070 ekki að njóta sín að fullu, meikar það sens í þínum eyrum?


Þegar kemur að leikjum þá ertu almennt bara að horfa á örgjörva og skjákort. Auðvitað þarftu að hafa nóg af vinnsluminni en það er langt í að 16GB verði flöskuháls í þeim efnum.

Það er algjört rugl að i7 örgjörvi sé orðinn flöskuháls fyrir GTX 1070, líklega sæirðu smá mun milli i5-8400 og i7-8700 með sama skjákorti, en þú myndir græða meira á því að eyða meira í skjákortið og minna í örgjörvann, frekar heldur en öfugt.



Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1101
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf mind » Lau 11. Ágú 2018 12:40

Gefið notkunina sé ég reyndar engin sterk rök fyrir að velja Intel framyfir AMD. Intel er oftast eitthvað betri fyrir leikina en þegar færð 33% fleiri kjarna AMD megin í sama verði þá geta auka afköstin þar talið töluvert hærra þegar kemur að harðri vinnslu. Plús færð betri viftu með.

Annars veit ég ekki með bara 2400Hz minni, einn af stöðunum sem maður græðir ágætlega á hærra riða minni er einmitt í hörðu grafík vinnslunni eins og 3D. Einnig þó það sé ekki tæknilega þörf á öflugri aflgjafa þá vel ég ekki 450W í 200þús króna leikjatölvu, sérstaklega ef hún er hugsuð sem framtíðar.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Tengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf Klemmi » Lau 11. Ágú 2018 13:05

mind skrifaði:Gefið notkunina sé ég reyndar engin sterk rök fyrir að velja Intel framyfir AMD. Intel er oftast eitthvað betri fyrir leikina en þegar færð 33% fleiri kjarna AMD megin í sama verði þá geta auka afköstin þar talið töluvert hærra þegar kemur að harðri vinnslu. Plús færð betri viftu með.

Annars veit ég ekki með bara 2400Hz minni, einn af stöðunum sem maður græðir ágætlega á hærra riða minni er einmitt í hörðu grafík vinnslunni eins og 3D. Einnig þó það sé ekki tæknilega þörf á öflugri aflgjafa þá vel ég ekki 450W í 200þús króna leikjatölvu, sérstaklega ef hún er hugsuð sem framtíðar.


Eftir að hafa skoðað það betur, þá er ég sammála að maður ætti ekki að útiloka AMD, í samræmi við það sem þú nefnir þá er þetta kannski spurning um hvort áherslan er á leikina eða rendering vinnslu :)

Varðandi vinnsluminnið, þá er ekki nóg að horfa bara á MHz, heldur þarf að taka CL líka með í reikninginn. Verðmunurinn á milli 2400MHz og 3200MHz er þó lítill, svo það má alveg færa rök fyrir því að fara í 3200MHz. Hins vegar, líkt og má sjá á hlutunum sem ég setti inn, þá er eiginlega sparað alls staðar nema í örgjörva og skjákorti.
Þú getur sett 5-7þús krónum meira í kassann, 5-7þús krónum meira í aflgjafann, 3-5þús krónum meira í vinnsluminnið o.s.frv, en þessar krónur safnast samt allar saman. Það þarf að vega og meta hvort þessi 15-20þús kall sé betur varið í skjákorti/örgjörva, eða þessum fyrrnefndu íhlutum.

Sjálfur er ég búinn að vera með 460W aflgjafa síðustu 9 árin og hann hefur ekki haldið aftur af mér, en hins vegar er það mjög vandaður Seasonic aflgjafi :)




pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf pepsico » Lau 11. Ágú 2018 15:22

Vil skjóta því inn í umræðuna að þó að 3200 MHz vinnsluminni sé auðvitað frábært upp á framtíðina og ýmislegt í nútíðinni þá er þetta móðurborð bara fært um 2666 MHz og því þyrfti að borga fimm þúsund krónur fyrir "uppfærslu" á því áður en maður gæti eytt þessum litla þrjú þúsund kalli í uppfærslu á vinnsluminninu - sem væri einn og sér þess virði.

Svo er allt of erfitt að tala um flöskuhálsa á turni sem er notaður bæði fyrir grafíkvinnslu og leikjaspilun svo það ætti að pása það. Þyrftum ekki bara að fá svar frá þráðarhöfundi hvort þetta er leikjaturn sem á að nota í grafíkvinnslu stundum eða öfugt, heldur líka að vita svo til nákvæmlega hvernig verkefni hann er aðallega að stunda í Blender, sem og hvernig tölvuleiki hann ætlar sér að spila.



Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1101
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf mind » Lau 11. Ágú 2018 15:47

Klemmi skrifaði:Þú getur sett 5-7þús krónum meira í kassann, 5-7þús krónum meira í aflgjafann, 3-5þús krónum meira í vinnsluminnið o.s.frv, en þessar krónur safnast samt allar saman. Það þarf að vega og meta hvort þessi 15-20þús kall sé betur varið í skjákorti/örgjörva, eða þessum fyrrnefndu íhlutum.

Þetta er náttúrulega óttalegt pjátur. Ef lykilhlutirnir eins og góður NVMe, örgjörvi og skjákort hefur verið valið, þá er mjög erfitt að enda með vél sem stendur sig ekki mjög vel fyrir peninginn. En ef umræðan eykur skilning og möguleika viðkomandi þá held ég að spjallborðið sé að standa undir markmiði sínu.

Og ætli þetta fari ekki svolítið eftir hvernig maður horfir á hlutina. Ég horfi meira á tölvuna sem verkfæri og hún er nú þegar eitt hagkvæmasta verkfæri sem er til ef metinn er kostnaður á móti aukningu í vinnuafköstum eða klukkustundum í afþreyjingu. 10-20 þús auka krónur í tölvuna til að hún verði skotheld og 100% eins og maður vill hafa hana er bara ekki einusinni spurningarmerki í mínum huga. Fólk eyðir meiri peningum í skópör sem það notar svo kannski nokkrar klukkustundur á ári, en eyðir auðveldlega 1000+ klst í tölvunni sem það tímdi ekki peningum í.



Skjámynd

Höfundur
Risaeðla
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Lau 25. Feb 2012 01:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf Risaeðla » Lau 11. Ágú 2018 16:58

mind skrifaði:10-20 þús auka krónur í tölvuna til að hún verði skotheld og 100% eins og maður vill hafa hana er bara ekki einusinni spurningarmerki í mínum huga. Fólk eyðir meiri peningum í skópör sem það notar svo kannski nokkrar klukkustundur á ári, en eyðir auðveldlega 1000+ klst í tölvunni sem það tímdi ekki peningum í.


Vel mælt og alveg sammála þér! Ég er að miða við 200 þús krónur í tölvuna, en það er bara viðmið. Það er plús að geta fengið góða tölvu undir því viðmiði en myndi alveg klárlega bæta nokkrum þúsundumköllum við til að uppfæra hluti sem gætu skipt miklu máli í náinni framtíð, ekki spurning.

Þessi tölva er hugsuð fyrst og fremst sem leikjatölva, allt annað er auka, mun samt að sjálfsögðu nota hana einnig sem "verkfæri" og vinna eitthvað í þrívíddarvinnslu, klippiforritum og mögulega Unity.

Er enn að melta og gúggla hvað verður fyrir valinu en þessi umræða hefur hingað til alveg klárlega hjálpað mikið. Er að hallast að Kísildalstölvunni eins og er en mun líklega velja mér annan kassa, stærri disk og 3200 Mhz 16gb. minni.



Skjámynd

Höfundur
Risaeðla
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Lau 25. Feb 2012 01:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf Risaeðla » Lau 11. Ágú 2018 19:37

Er þetta kannski gáfulegri pakki? Myndi þetta virka saman? Tek það aftur fram að ég veit voðalega lítið um þetta.

leikjatolva1.png
leikjatolva1.png (110.16 KiB) Skoðað 1820 sinnum



Skjámynd

rickyhien
Gúrú
Póstar: 559
Skráði sig: Lau 25. Maí 2013 20:39
Reputation: 28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf rickyhien » Lau 11. Ágú 2018 20:34

viljum ekki líka einhverja kælingu fyrir örgjörva líka? svona betri en stock..það bætist 10-20k




pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf pepsico » Lau 11. Ágú 2018 20:35

Kauptu 3000 MHz CL15 minnið, það er örlitlu verra en er á listanum yfir vinnsluminni sem eru staðfest til að virka á uppgefnum hraða með þessu móðurborði. 3200 MHz CL16 minnið er ekki á listanum og því ólíklegt til að virka á tilskildum hraða. Held það sé óþarfi að kaupa betri kælingu og fórna annars staðar í turninum eða borga aukalega fyrir það. Getur alltaf ákveðið að kaupa betri og/eða hljóðlátari kælingu síðar.



Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1101
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf mind » Lau 11. Ágú 2018 20:59

Risaeðla skrifaði:Er þetta kannski gáfulegri pakki? Myndi þetta virka saman? Tek það aftur fram að ég veit voðalega lítið um þetta.

Ástæðan fyrir því að klemmi valdi NVMe SSD disk í staðinn fyrir SATA SSD er að þeir eru svona oftast um 5 sinnum hraðvirkari, eðlilega eru nördar hrifnari af meiri hraðanum þó kosti smá :D

Veit að AMD stock viftan er frekar góð því er með svoleiðis og það heyrist í þokkabót varla í henni. Skiptir þig kannski engu máli en ég nota aflgjafa+skjákort sem slökkva á viftunum þegar vélin er í lágri vinnslu, meiri ending og verður hljóðlaus. Veit ekki hvort þessi aflgjafi og skjákort geri það, það gæti verið, veit að Asus Strix og Corsair RMx gera það því er með svoleiðis í minni vél.

Með minnið þá flettir maður bara upp á vefsíðu framleiðanda hvaða móðurborð+minni virka saman ef maður vill fara í 3200MHz eða jafnvel hærra.



Skjámynd

Dropi
FanBoy
Póstar: 770
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 223
Staða: Ótengdur

Re: Álit á 200k leikjaturni

Pósturaf Dropi » Mán 13. Ágú 2018 10:46

rickyhien skrifaði:viljum ekki líka einhverja kælingu fyrir örgjörva líka? svona betri en stock..það bætist 10-20k


Án þess að hafa reynslu af því, en Ryzen stock kælingarnar eiga að vera hörku góðar. Amk samaborið við fretið sem Intel lætur fylgja í pakkanum.


34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - ASRock B450M-Pro4 - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS