Er gramur.. grr grr.


Höfundur
muslingur
Ofur-Nörd
Póstar: 252
Skráði sig: Þri 05. Nóv 2013 10:05
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Er gramur.. grr grr.

Pósturaf muslingur » Mán 22. Jan 2018 06:46

Keypti móðurborð, örgjörva 8350k, minni og skjákort af einni bestu búðinni í bænum. Þegar heim var komið með all hardwerið þá er skjákortið ekki það sem ég bað um. Bað um gigabyte 1060 3gb en fékk pny með einni viftu og bað um 16gb minni og fékk einn 16gb kubb svo að ef ég ætla í dual þá þarf ég að fara í 32gb. Ég sel yfirleitt vélarnar mínar eftir 8 mán, og finnst ég vera í smá vanda varðandi endursölu seinna meyr. Jú kortið svínvirkar en gigabyte kortið er mikið vinsælla og 1x16gb hljómar ekki eins vel og 2x 8gb. Á nótunni stendur gigabyte kort en ég fékk eins og áður sagði pny. Er ég að gera úlfalda úr mýflugu eða á ég að biðja þá að leiðrétta þetta, tek fram að ég hef verslað fyrir mjög marga 100 kalla þarna um tíðina. Hvað finnst vökturum?? Keypti þetta á laugardegi rétt fyrir lokun svo ég bara skellti þessu í turn.



Skjámynd

Baraoli
FanBoy
Póstar: 756
Skráði sig: Lau 04. Jún 2011 18:09
Reputation: 14
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Baraoli » Mán 22. Jan 2018 07:57

Tjaaa... miðað við póstinn þinn þá ættiru bara að kíkja aftur uppí þessa verslun með nótuna og kortið, útskýra fyrir þeim mistökin myndi nú halda að þeir myndu leiðrétt þetta fyrir þig


MacTastic!


Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Dúlli » Mán 22. Jan 2018 08:13

Ef það stendur gigabyte og þeir auglýstu gigabyte þá áttu að fá það sem var auglýst og þú vildir kaupa. Ekki flóknara en það.

Varðandi vinnsluminni, það fer allt eftir því um hvað þú baðst um, ekkert að því að vera með 1x16Gb kubb þá getur næsti leikmaður farið beint í 32 sem hljómar skemtilegra.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Klemmi » Mán 22. Jan 2018 08:26

Bara fá þetta lagfært, eitthvað klikkað í afhendingu :)

Ef móðurborðið er með 4x raufum, þá myndi ég fá þessu skipt yfir í 2x8GB, en ef það eru bara 2x raufar, þá myndi ég halda mig í 1x16GB.



Skjámynd

Haukursv
has spoken...
Póstar: 153
Skráði sig: Þri 29. Maí 2012 12:10
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Haukursv » Mán 22. Jan 2018 08:37

Ég lent í þessu líka, bað um sérstakt Asus kort sem þeir sögðust eiga, en fékk ódýrara pny kort því hitt var ekki in stock. Þeir héldu örugglega að mér væri drullusama en svo var ekki. Fór bara til þeirra og útskýrði þetta fyrir þeim, (ekkert hægt að OC pny að viti t.d) og þeir redduðu þessu. Tók nokkra daga reyndar en hafði tölvuna hjá mér á meðan svo þetta var ekkert mál. Alls ekki úlfaldi úr mýflögu imo


i7-4790K | Asus GTX 970 | Asus Z97 Sabertooth | Zalman CNPS7X | 16GB Crucial DDR3 | 250gb Samsung EVO | Seagate 2TB HDD | Antec 750W modular | NZXT H230 | Logitech G710+ | Steelseries Rival | Benq xl2411z | Benq gl2450


Höfundur
muslingur
Ofur-Nörd
Póstar: 252
Skráði sig: Þri 05. Nóv 2013 10:05
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf muslingur » Mán 22. Jan 2018 09:27

Takk fyrir peppið, já ég ætla að fá rétta kortið og svo stendur á nótunni að ég hafi keypt Gigabyte svo að þetta var frekar slappt hjá þeim :þ
Ef þeir vilja ekki skipta minninu í tvennt... þá það. Ég held að 1060 3gb séu ekki í sli svo best er að vera með skásta kortið.



Skjámynd

Jón Ragnar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 976
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 173
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Jón Ragnar » Mán 22. Jan 2018 09:40

1x16gb er betra og hraðara en 2x8 ekki satt?



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16265
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf GuðjónR » Mán 22. Jan 2018 09:42

Jón Ragnar skrifaði:1x16gb er betra og hraðara en 2x8 ekki satt?

Nei, 2x8 er hraðara en 1x16 ... „dual channel“...
En þú finnur ekki muninn.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Viktor » Mán 22. Jan 2018 09:43

Jón Ragnar skrifaði:1x16gb er betra og hraðara en 2x8 ekki satt?


Nei, hægara. "Dual channel" eykur afköst, tvöfalt fleiri pinnar sem minnin hafa aðgang að á móðurborðinu.

Dual-channel architecture DDR/DDR2/DDR3 SDRAM describes a motherboard technology that effectively doubles data throughput from RAM to the memory controller.


GuðjónR skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:1x16gb er betra og hraðara en 2x8 ekki satt?

Nei, 2x8 er hraðara en 1x16 ... „dual channel“...
En þú finnur ekki muninn.


Hvað kallar þú að "finna"? Getur hækkað FPS um ca. +5 og sparar pening í leiðinni.



I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Klemmi » Mán 22. Jan 2018 09:50

muslingur skrifaði:Ef þeir vilja ekki skipta minninu í tvennt... þá það. Ég held að 1060 3gb séu ekki í sli svo best er að vera með skásta kortið.


Efast um að það verði vandamál með minnið :wtf



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16265
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf GuðjónR » Mán 22. Jan 2018 10:00

Sallarólegur skrifaði:Hvað kallar þú að "finna"? Getur hækkað FPS um ca. +5 og sparar pening í leiðinni.
Ég vissi þetta, það sem ég meinti var að þú „finnur“ ekki mun á single eða dual channel minni í flestallri venjulegri vinnslu. Og ég stórefast um að það skipti þig máli hvort þú sért með 50 fps eða 52fps. Þú gætur mælt muninn en það er mjög hæpið að þú „finnir“ muninn. ;)

Ef ég væri með tvær identical tölvur, önnur með dual og hin með single channel minni og þú fengir að spila PUBG í þeim báðum, ég þyrði að veðja að þú gætir ekki sagt með vissu (án þess að giska) hvor þeirra væri single og hvor væri dual þar sem fps rokkar upp og niður eftir aðstæðum.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Viktor » Mán 22. Jan 2018 10:36

GuðjónR skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Hvað kallar þú að "finna"? Getur hækkað FPS um ca. +5 og sparar pening í leiðinni.
Ég vissi þetta, það sem ég meinti var að þú „finnur“ ekki mun á single eða dual channel minni í flestallri venjulegri vinnslu. Og ég stórefast um að það skipti þig máli hvort þú sért með 50 fps eða 52fps. Þú gætur mælt muninn en það er mjög hæpið að þú „finnir“ muninn. ;)

Ef ég væri með tvær identical tölvur, önnur með dual og hin með single channel minni og þú fengir að spila PUBG í þeim báðum, ég þyrði að veðja að þú gætir ekki sagt með vissu (án þess að giska) hvor þeirra væri single og hvor væri dual þar sem fps rokkar upp og niður eftir aðstæðum.


Samt fáránlegt að borga meira fyrir lélegra FPS, getur alveg fundið muninn á því að droppa niður í 40 fps. vs að droppa niður í 50 fps.

Hér er munurinn 20-30 fps, svo jú þú myndir finna mikinn mun í PUBG.



I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1565
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Reputation: 41
Staðsetning: Breiðholt
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Benzmann » Mán 22. Jan 2018 10:53

hvaða búð var þetta keypt í ?


CPU: Intel i9 13900K | MB: Asus ROG Strix Z790-E Gaming| GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair 7000D| PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Kingston Fury 5600mhz 64gb |Storage: 2x Samsung 980Pro 2Tb| OS: Windows 11 Enterprise E5 64bit


Höfundur
muslingur
Ofur-Nörd
Póstar: 252
Skráði sig: Þri 05. Nóv 2013 10:05
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf muslingur » Mán 22. Jan 2018 11:53

Ég vil ekki tjá mig um verslunina, en þeir bjóða besta verðið á örgjörvum, minnum og m2 ssd. Fór þangað áðan og þeir hringja þegar þeir eru með kortið klárt, þá fer ég með turninn og þeir skipta, ég keypti ísetningu á kortinu sem ég er með. Náði mér í samsung 960 evo m2, 250gb í leiðini, þeir eru víst svaka hraðir.



Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1565
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Reputation: 41
Staðsetning: Breiðholt
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Benzmann » Mán 22. Jan 2018 13:00

muslingur skrifaði:Ég vil ekki tjá mig um verslunina, en þeir bjóða besta verðið á örgjörvum, minnum og m2 ssd. Fór þangað áðan og þeir hringja þegar þeir eru með kortið klárt, þá fer ég með turninn og þeir skipta, ég keypti ísetningu á kortinu sem ég er með. Náði mér í samsung 960 evo m2, 250gb í leiðini, þeir eru víst svaka hraðir.


þeir hljóta að redda þessu á faglegann hátt fyrir þig.
Trúi ekki öðru.


CPU: Intel i9 13900K | MB: Asus ROG Strix Z790-E Gaming| GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair 7000D| PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Kingston Fury 5600mhz 64gb |Storage: 2x Samsung 980Pro 2Tb| OS: Windows 11 Enterprise E5 64bit

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16265
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf GuðjónR » Mán 22. Jan 2018 14:56

Sallarólegur skrifaði:Samt fáránlegt að borga meira fyrir lélegra FPS...
Já sammála, ég myndi aldrei gera það. Myndi alltaf taka tvo átta í stað einn sextán, nema ég væri búinn að ákveða að bæta öðrum 16 við síðar.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf appel » Mán 22. Jan 2018 18:14

GuðjónR skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Samt fáránlegt að borga meira fyrir lélegra FPS...
Já sammála, ég myndi aldrei gera það. Myndi alltaf taka tvo átta í stað einn sextán, nema ég væri búinn að ákveða að bæta öðrum 16 við síðar.

Og værir bara með 2 raufar á móbóinu :) (t.d. microatx/itx móðurborð)

Svo er það, með íhluti og annað, maður þarf að taka fram frekar skýrt hvað það er sem maður vill, því það eru til margar gerðir af sama hlutnum.


*-*

Skjámynd

Alfa
Geek
Póstar: 823
Skráði sig: Mið 02. Apr 2008 13:14
Reputation: 108
Staðsetning: Vestmannaeyjar
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Alfa » Mán 22. Jan 2018 19:39

Ég hef lent í svona sambærilegu (þó ekki jafn slæmu) í að ég held sömu búð (miðað við kommentið þitt), var að panta í tölvu með glugga, útlit skipti miklu máli og var með svart rautt þema. Fékk alla hlutina senda út á land sem gekk svo sem vel fyrir sig. Þegar ég opnaði minnið sá ég að það var ógeðslegt grænt án headspreader og CL17 en ekki CL16 eins og ég hafði keypt (sem var dökkgrátt á svartri plötu svo slapp í "þemað"). Ekkert svona grænt minni var að finna á heimasíðunni og nótan var yfir CL16 minni með allt öðru framleiðandanr (því sama og ég pantaði á netinu).

Ég hringdi í þá og þeim fannst þetta pínu fyndið fyrst að ég væri að gera mál úr þessu en samþykktu alveg að skipta því út reyndar. Tók samt tíma vegna þess að ég er á fangaeyju !


TOW : Be quiet! Pure Base 500DX PSU : Corsair RMx 850W MB : MSI B550 Gaming Edge Wifi CPU : AMD 5800X3D + EK-Nucleus AIO CR240 H2O
Mem : 32GB 3600Mhz G.Skill Neo RGB GPU : PALIT 4080 RTX GAMEROCK
SSD : 250GB Samsung Evo 960 + 1TB WD 770 M2 + 500GB Samsung Evo 850 + 1TB WD HDD OS : W10
LCD : LG 32GP850 32" + AOC 24G2U KEY : Roccat Vulcan 121 MOU : Logitech PRO X Superlight


Mossi__
FanBoy
Póstar: 781
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Reputation: 297
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Mossi__ » Þri 23. Jan 2018 12:38

Fólk á að fá það sem það kaupir.

Verslunin hefði átt að hringja og spyrja þig/ykkur álits áður.

Þú gætir farið með þetta í neytendasamtökin ef þeir eru með múður því þetta er í raun vörusvik, sérstaklega ef á nótunni segjast þeir hafa selt þér Gigabyte. Þarft samt ekki að vera með læti.

Það er munur á gæðum, bilanatíðni og verði.




Höfundur
muslingur
Ofur-Nörd
Póstar: 252
Skráði sig: Þri 05. Nóv 2013 10:05
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf muslingur » Þri 23. Jan 2018 19:19

Éf fót í búðina í gær og þeir vilja hringja þegar þeir fá rétta kortið, bera því við að minarar kaupi öll kort, og það sé skortur en allavega þá fer ég með turninn þegar kallið kemur.




vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf vesley » Þri 23. Jan 2018 20:18

muslingur skrifaði:Éf fót í búðina í gær og þeir vilja hringja þegar þeir fá rétta kortið, bera því við að minarar kaupi öll kort, og það sé skortur en allavega þá fer ég með turninn þegar kallið kemur.


Það er massífur skortur á heimsvísu á kortum enda er gtx-1080 t.d. að seljast á 1300-1400usd í dag.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf appel » Þri 23. Jan 2018 20:21

f. bitcoin :D


*-*


Mossi__
FanBoy
Póstar: 781
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Reputation: 297
Staða: Ótengdur

Re: Er gramur.. grr grr.

Pósturaf Mossi__ » Þri 23. Jan 2018 21:18

muslingur skrifaði:Éf fót í búðina í gær og þeir vilja hringja þegar þeir fá rétta kortið, bera því við að minarar kaupi öll kort, og það sé skortur en allavega þá fer ég með turninn þegar kallið kemur.


Þeir hefðu átt að hringja í þig og spyrja þig hvað þér þætti um þetta áður en þér létu þig fá ranga vöru.

Þess má geta að PNY er verðlagt lægra, þannig að ef þeir rukkuðu þig sama verð á þessum kortum eru þeir að hafa af þér pening.

/Dropmic