Aðstoð við skjákaup í kringum 50.000

Skjámynd

Höfundur
Stingray80
Gúrú
Póstar: 530
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 16:28
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Aðstoð við skjákaup í kringum 50.000

Pósturaf Stingray80 » Fim 27. Júl 2017 14:29

Sælir vaktarar, eins og titillinn gefur til kynna er ég að fara versla mér tölvuskjá, helst 27" í kringum 50 Þúsund.
Ég þarf ekki 4K. Skjáirnir sem heilluðu mig mest við fyrstu athugun voru eftirfarandi :

http://www.trustedreviews.com/reviews/samsung-c27f591 Þessi fæst í Elko á 44 þúsund með ágætis afslætti.

Svo er það

https://att.is/product/aoc-27-g2770pf-skjar . Ég er einmitt ekki með AMD kort þannig ég get ekki nýtt mér þetta freesync dæmi.

Aðalnotkun mín er spilun tölvuleikja ásamt slatta af vídjó glápi. Ég hallast sjálfur meira í áttina að Samsung skjánum en væri vel til í álit hjá mönnum.

Með fyrirfram þökkum!




asgeirbjarnason
Ofur-Nörd
Póstar: 273
Skráði sig: Fim 28. Apr 2016 20:17
Reputation: 70
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við skjákaup í kringum 50.000

Pósturaf asgeirbjarnason » Fim 27. Júl 2017 19:31

Tékkaðu á þessum

https://elko.is/lenovo-27-skjar-2560x1440-le27q10sil

Betri upplausn en lík spec að öðru leyti; aðeins minni skerpa en hinsvegar bjartari. Reyndar VGA á Samsung skjánum en efast um að það sé stór sölupunktur á nýjum skjá fyrir flesta hérna. Ekki curved, en það er spurning hvort það er plús eða mínus. Þar sem ég er mikill sökker fyrir screen real estate er þetta örugglega skjárinn sem ég myndi fá mér en það er líklega góð hugmynd að bera þá saman í eigin persónu.




ivar85
Græningi
Póstar: 28
Skráði sig: Fös 30. Jún 2017 10:27
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við skjákaup í kringum 50.000

Pósturaf ivar85 » Fim 27. Júl 2017 19:35

Villtu ekki hafa hann 144hz ?



Skjámynd

Höfundur
Stingray80
Gúrú
Póstar: 530
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 16:28
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við skjákaup í kringum 50.000

Pósturaf Stingray80 » Fös 28. Júl 2017 11:27

Ég hef einmitt aldrei átt 144HZ skjá þannig ég veit í rauninni ekki hverju ég er að missa af ef það er eitthvað, ég spila enga FPS leiki allavega er það ekki aðal málið í svoleiðis leikjum?

Annars varðandi hinn skjáinn þá er ég að fara tengja með HDMI til að byrja með, er með gaming lappa sem er ekki með aðra tengimöguleika. Er að vísu ekki alveg viss hvort GPU ráði við að að keyra hærri upplausn en 19xx/1080



Skjámynd

joekimboe
has spoken...
Póstar: 192
Skráði sig: Sun 06. Apr 2014 18:52
Reputation: 22
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við skjákaup í kringum 50.000

Pósturaf joekimboe » Fös 28. Júl 2017 12:46

Mæli með að kíkja út í búð eða til félaga sem á þannig og fá að prufa ef þú hefur tök á því. Allar hreyfingar á skjánum verða mun meira smooth en þú munt mest finna fyrir því í fps leikjum og þá sérstaklega leikjum sem eru ekki cappaðir í 60fps. En eitt er nokkurnveginn staðreynd, þú ferð ekki úr 144hz og aftur í 60hz, þegar þú venst 144hz-unum þá muntu ekki geta notað neitt annað eiginlega, þér mun finnast 60hz skjáir hökta og sérð hvað allt er ósmooth í þeim.



Skjámynd

Höfundur
Stingray80
Gúrú
Póstar: 530
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 16:28
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við skjákaup í kringum 50.000

Pósturaf Stingray80 » Fös 28. Júl 2017 13:39

joekimboe skrifaði:Mæli með að kíkja út í búð eða til félaga sem á þannig og fá að prufa ef þú hefur tök á því. Allar hreyfingar á skjánum verða mun meira smooth en þú munt mest finna fyrir því í fps leikjum og þá sérstaklega leikjum sem eru ekki cappaðir í 60fps. En eitt er nokkurnveginn staðreynd, þú ferð ekki úr 144hz og aftur í 60hz, þegar þú venst 144hz-unum þá muntu ekki geta notað neitt annað eiginlega, þér mun finnast 60hz skjáir hökta og sérð hvað allt er ósmooth í þeim.


Já þú meinar, ég kannski prófa þá að fá mér þannig. Aðal áhyggjurnar mínar eru bara að litirnir og mögulega birtustigið sé ekki nógu gott á þessum AOC skjá, en hann er 144HZ.




Sam
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 302
Skráði sig: Mið 03. Des 2014 18:50
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við skjákaup í kringum 50.000

Pósturaf Sam » Fös 28. Júl 2017 17:10

Stingray80 skrifaði:Ég hef einmitt aldrei átt 144HZ skjá þannig ég veit í rauninni ekki hverju ég er að missa af ef það er eitthvað, ég spila enga FPS leiki allavega er það ekki aðal málið í svoleiðis leikjum?

Annars varðandi hinn skjáinn þá er ég að fara tengja með HDMI til að byrja með, er með gaming lappa sem er ekki með aðra tengimöguleika. Er að vísu ekki alveg viss hvort GPU ráði við að að keyra hærri upplausn en 19xx/1080


hvernig gaming lappa ertu með ?




ColdIce
Bara að hanga
Póstar: 1561
Skráði sig: Mán 11. Maí 2009 16:44
Reputation: 94
Staðsetning: 600
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við skjákaup í kringum 50.000

Pósturaf ColdIce » Fös 28. Júl 2017 20:46

Get alveg mælt með þessum AOC :)


Eplakarfan: Apple Watch S8 | iPad Pro M1 | Macbook Pro 14” M3 | Apple TV 4K | iPhone 14 Pro Max | Airpods Pro | Airpods Pro 2 | iMac 27”
Tölvan: PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro | ThinkPad T14
Útiveran: Honda CR-V 2021 | Zero 10X | Vsett 11+ | Bettinsoli | Savage B22 |

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við skjákaup í kringum 50.000

Pósturaf Viktor » Fös 28. Júl 2017 21:01

Freesync skjárinn alveg engin spurning (sem þú linkaðir)

https://att.is/product/aoc-27-g2770pf-skjar

Passaðu þig samt - þegar þú venur þig á 144Hz þá áttu aldrei eftir að geta farið í Bíó aftur án þess að taka eftir höktinu :crying ](*,) \:D/


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB