Val á aflgjafa


Höfundur
KHx
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Þri 14. Feb 2017 15:30
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Val á aflgjafa

Pósturaf KHx » Mið 08. Mar 2017 13:22

Góðan daginn.

Mig langar til þess að fá aðstoð við val á aflgjafa. Þ.e.a.s. ef þið þyrftuð að fá ykkur aflgjafa og í boði væri það sem til
er hérna á klakanum og hann þyrfti að vera í kringum 850W.

Ef það eru einhverjir hérna nýbúnir að kynna sér valkostina, þá væri gaman að heyra hvað varð fyrir valinu og af hverju.


MK
K



Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Reputation: 101
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf I-JohnMatrix-I » Mið 08. Mar 2017 14:22

Ég skoðaði þetta fyrir stuttu og varð þessi fyrir valinu : https://www.computer.is/is/product/spennugjafi-atx-evga-850w-80-gold-modular

Besta verð á 850w aflgjafa sem er rankaður í Tier 1 hjá Toms hardware: http://www.tomshardware.co.uk/forum/id-2547993/psu-tier-list.html



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4956
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Tengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf jonsig » Mið 08. Mar 2017 22:06

Finnst siðugt að hafa þetta single rail, er einmitt sjálfur með 750W b2 (bronze) en þegar hann var testaður er hann silver.




Höfundur
KHx
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Þri 14. Feb 2017 15:30
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf KHx » Mið 08. Mar 2017 22:29

jonsig skrifaði:Finnst siðugt að hafa þetta single rail, er einmitt sjálfur með 750W b2 (bronze) en þegar hann var testaður er hann silver.


Það virðast flestir af þessum betri vera farnir í single rail fyrir 12V. Ég þekki ekki fræðin á bakvið það af hverju einn er betri eða verri
en fleiri. Einhverntíman las ég eitthvað í sambandi við að lágmarka skaðann ef eitthvað surge kemur á einn rail.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4956
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Tengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf jonsig » Mið 08. Mar 2017 23:01

Ef það væri bara surge sem þú þarft að hafa áhyggjur af, ef þú hefur áhyggjur af eldingu í nágrenninu þá ættiru að hafa vara aflgjafa.

Svona uppá skemmtileg heitin þá eru þrjár helstu tegundir af surge :)

1030 Direct Strike

1034 Conductive Strike

1037 Inductive Strike

:D :D :D :D



Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3357
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf mercury » Fim 09. Mar 2017 08:53

Er einmitt byrjaður að hugsa um að endurnyja. Held að seasonic sé the way to go. Eða einhvað sem þeir framleiða sem er margt. Td corsair ax series.
Sést vel á þessum lista hvað þeir framleiða fyrir marga á þessum tier 1-2 lista




Höfundur
KHx
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Þri 14. Feb 2017 15:30
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf KHx » Fim 09. Mar 2017 09:04

mercury skrifaði:Er einmitt byrjaður að hugsa um að endurnyja. Held að seasonic sé the way to go. Eða einhvað sem þeir framleiða sem er margt. Td corsair ax series.
Sést vel á þessum lista hvað þeir framleiða fyrir marga á þessum tier 1-2 lista


Takk, ég tékka á þeim líka.
Vandamálið er að það eru líka svo margir sem eru að framleiða annaðhvort undir öðru nafni eða fyrir aðra að það
er erfitt að vita stundum hver framleiddi hvað :-)



Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3357
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf mercury » Fim 09. Mar 2017 09:19

Bara skoða reviews ætti að koma fram hver framleiðir fyrir viðkomandi
Síðast breytt af mercury á Fim 09. Mar 2017 09:37, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1987
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf GuðjónR » Fim 09. Mar 2017 09:25

Hvaða skoðun hafiði á þessum (12 ára ábyrgð):
https://seasonic.com/product/prime-850-w-titanium/

Fleiri tegurndir frá þeim:
https://seasonic.com/prime/

Review:
http://www.kitguru.net/components/power ... ly-review/

Veit ekki hvort hann fæst hérna heima en það tekur c.a. tvo daga að fá hann að utan.
https://www.bhphotovideo.com/c/product/ ... 0w_80.html



Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3357
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf mercury » Fim 09. Mar 2017 09:39

Menn færu varla að bjóða upp á svona ábyrgð nema þeir séu nokkuð vissir um að varan sé top notch




Höfundur
KHx
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Þri 14. Feb 2017 15:30
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf KHx » Fim 09. Mar 2017 12:37




Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3357
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf mercury » Fim 09. Mar 2017 13:08

KHx skrifaði:Spurning um að fara bara all-in:
http://www.jonnyguru.com/modules.php?na ... y&reid=508

haha ef þú ert til í að eyða um 200 þús í aflgjafa go nuts!



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4956
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Tengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf jonsig » Fim 09. Mar 2017 20:37

Það er enginn psu safe, sumir eru bara líklegri til að endast fremur en aðrir. Ég á 1kW energon aflgjafa sem ég recappaði fyrir 10árum+. Hann keyrir í dag SLI setup leikjavél og notaður mikið í leiki.

Tæknin bakvið þessa aflgjafa hefur lítið breyst frá seinnipart áttunda áratugsins. Þetta snýst um að hafa einhverjar varúðarráðstafanir í hönnuninni og ekki vera dús og hafa random kínacon componenta.


Ef menn vilja 99.9% örugga psu þá þurfa þeir að koma sér upp línulegum aflgjafa. En hann væri 5x stærri en venjulegur smps aflgjafi og nýtnin væri í ólínulegu hlutfalli við hámarks álag.



Skjámynd

loner
Nörd
Póstar: 144
Skráði sig: Sun 25. Jan 2009 12:50
Reputation: -1
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf loner » Fim 09. Mar 2017 22:39

Svona til að útskýra á einfaldan hátt, þá er hagstæðast að nota PSU sem er 2x það sem þú notar.
Þ.e.a.s. móðurborð+örri+gpu+hdd eða álíka, =300W x2 =600 PSU, til eru reiknivélar fyrir þetta

http://www.coolermaster.com/power-supply-calculator/

http://www.corsair.com/en-us/psu-finder

https://www.msi.com/power-supply-calculator

http://www.bequiet.com/en/psucalculator

Reiknivélarnar ætti að reikna út þína réttu þörf miðað við x2.

Best er að velja þá framleiðundur sem gefa það út að þeir noti japanska þétta,
gerðu samt greinamun á því að sumir nota japanska þétta bara að hluta til þ.e.a.s. ekki alla.
þar sem allir Psu sem eru seldir hér á landi eru framleiddir í Kína eða Taíwan(Kína).

Ætti að vera góðar greinar um þetta á "http://www.tomshardware.com"
held ég, ef leitað er.

Varðandi "Surge", þá er ekki hætta bara frá eldingum, það er orðum aukið.
"Surge" kemur sem dæmi, þegar rafmagn fer af, og kemur á aftur, þá kemur ákveðinn toppur sem
er hægt að kalla "Surge", þess vegna er alltaf ráðlagt að taka rafmagnstæki úr sambandi ef
rafmagn hefur farið af.

Surge Protector verndar einnig rafmagnstæki fyrir minni háttar truflunum sem getur komið fyrir allstaðar,
víða í löndum eru menn með margþátta Surge protector, gegn eldingum, þá Vör(Risastór Surge protector) í inntaki rafmagns og síma, síðan tekur innanhúss vörn við rest.

hér heima gegn smá truflunum sem geta skipt máli, það reynir á rafbúnaðinn og styttir endingu hans.


Kannski var þetta rétt hjá þér allan tímann. !


Höfundur
KHx
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Þri 14. Feb 2017 15:30
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf KHx » Fös 10. Mar 2017 00:18

Takk fyrir svörin, ég finn eitthvað sniðugt.

K



Skjámynd

loner
Nörd
Póstar: 144
Skráði sig: Sun 25. Jan 2009 12:50
Reputation: -1
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf loner » Fös 10. Mar 2017 01:10

Gangi þér vel, best er að skoða sig vel um þetta völundarhús hvað hentar þér best.


Kannski var þetta rétt hjá þér allan tímann. !


Höfundur
KHx
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Þri 14. Feb 2017 15:30
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Val á aflgjafa

Pósturaf KHx » Mið 03. Maí 2017 15:39

Nú veit ég að margir hafa beðið spenntir eftir niðurstöðunni, djók.

En þetta er sá sem varð fyrir valinu:
EVGA SuperNOVA 850 W G3 80 Plus Gold SLI/Crossfire Intelligent Thermal Control System Fully Modular PC Power Supply Unit - Black
https://www.amazon.co.uk/gp/product/B01MRU0ILQ/ref=oh_aui_detailpage_o00_s00?ie=UTF8&psc=1

MK
K