Aflgjafa kaup


Höfundur
agust15
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Fös 09. Des 2016 02:02
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Aflgjafa kaup

Pósturaf agust15 » Mán 30. Jan 2017 23:36

Sælir nördar!

Ég er nýbuinn að uppfæra tölvuna mína á allavegu nema aflgjafa, er með eldgamlan aflgjafa sem er að minni bestu vitund ekki einu sinni 80+ og frá einhverju noname brandi

Þar sem ég er með frear dýran búnað stefni ég nú á að kaupa mér aflgjafa.

Ef eg er að runna bara 1 skjákort og tjah slatta yfirklukkun en ekkert geðveikislega á örgjövanum er ekki 650W nóg fyrir mig?

Lýst vel á rm650x frá Corsair þar sem hann er með 7 ára ábyrgð, fully modular, gold80+, og hljóðláta viftu

Þyrfti ég stærri aflgjafa eða mynduði mæla með einhverjum öðrum en þessum sambandi við Price/performance

Specsin mín eins og er eru ;
i7-6700k
Gtx 1080 G1
16gb ram
z270 Gaming 7 frá gigabyte
1x Samsung 850 evo m.2
Stefni á að fá mér NVMe disk.
Er með hyper 212 evo eins og er, en stefni á custom loop/aio í mjög náinni framtíð fyrir overclock


Any tips mjög vel þegnar!

M.b.k
Ágúst



Skjámynd

Gunnar
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
Reputation: 56
Staðsetning: 105 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf Gunnar » Mán 30. Jan 2017 23:52

650W er allveg nóg.
en ég myndi taka 850W (sem ég er með (corsair 850)) til að vera með aðeins of öflugann svo hann þurfi ekki að erfiða jafn mikið svo hann endist lengur. það er allaveganna pælingin min. nærð þá að láta hann keyra aðeins kaldar og viftan snýst þá jafnvel hægar.




Höfundur
agust15
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Fös 09. Des 2016 02:02
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf agust15 » Þri 31. Jan 2017 00:09

Já það hljómar reyndar mjög gáfulega, vill helst hafa tölvuna sem hljóðlátasta.

Er þá samt ekki RMX gáfulegasta línan? Eða er eitthvað annað svipað eða jafnvel betra? Breytir mig litlu þó ég þurfi að panta að utan og bíða ef gæðin eru betri og verðið svipað eða minna

M.b.k




baldurgauti
has spoken...
Póstar: 165
Skráði sig: Mán 30. Nóv 2015 03:01
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf baldurgauti » Þri 31. Jan 2017 19:01

Er með mjög svipað build og þú, ég keypti mér hér á vaktinni Corsair AX760 og er mjög sáttur :)




Emarki
Ofur-Nörd
Póstar: 266
Skráði sig: Mán 03. Maí 2010 22:19
Reputation: 52
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf Emarki » Þri 31. Jan 2017 19:46

RMX serían frá corsair er með japönskum þéttum í primary og secondary, þeir eru í sömu gæðum og AX serían nánast.

Ég mæli með þessum aflgjafa sem þú ert að skoða, hann er meira enn nóg fyrir þetta build. Enn ef þú ert eins og sumir og heldur að það þurfi að " futureproofa " sig með stærri þá er það svo sem í lagi enn þú verður að hafa í huga að þeir eru líka " Lengri ". Semsagt ekki eins nettir í laginu og þessi.

Svo er eitt sem menn þurfa að hafa í huga að "futureproofa" sig með stærri aflgjafa er í þversögn við þróunina sem er að eiga sér stað, allir hlutir eru að taka minni og minni straum, sem sést best á nýjustu Nvidia kortunum, sem taka miklu minni straum enn síðustu kynslóðir.

Kv. Einar




Emarki
Ofur-Nörd
Póstar: 266
Skráði sig: Mán 03. Maí 2010 22:19
Reputation: 52
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf Emarki » Þri 31. Jan 2017 19:53

Gleymdi að nefna um hljóð, þá er ég með AX 860 í einu buildi ( i5 3570k OC 4.5Ghz, 8gb ram, 970GTX oc edtion) viftan fer aldrei í gang nema ´þá í svona 5 sekúndur í einu þegar það er 100% load.

Svo er ég með 750rmx í i7 2600k 4,4Ghz OC, 8 gb ram, 1070 asus strix. Viftan púlsar líka bara eins og hinum.

Semsagt það fer ekkert fyrir viftunum í þessum aflgjöfum, mjög hljóðlátar enda eru þessir aflgjafar með sérstaklega góða nýtni.
Fá sér almennilegan aflgjafa strax fyrir svona gott dót, ég myndi aldrei kveikja á tölvu með no-name drasli fyrir svona stöff :D



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf GuðjónR » Þri 31. Jan 2017 19:57

RM serían frá Corsair er kölluð "Quiet Series" : http://www.custompcguide.net/the-differ ... ply-units/
Minimum noise level 0 dBA up to 40% load.
Maximum noise level 20 dBA



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4967
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 870
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Tengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf jonsig » Þri 31. Jan 2017 22:58

Evga supernova kemur vel útúr gárutesti, svo kosta þeir ekkert svakalega miðað við lookið. Sá toms hardware athuga parasitic transients en þeir hverfa útaf inductans í pcb. Þannig að gárutestið skiptir mestu máli finnst mér. 8-[




Höfundur
agust15
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Fös 09. Des 2016 02:02
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf agust15 » Þri 31. Jan 2017 23:24

EVGA supernova í sama verðflokki og RMX en er samt einungis bronze, ekki gold eins og RMX

Held ég haldi mig bara við RMX 650.

Takk fyrir góð svör!

Fer líklegast í 650, en ef veskið er spennt þá stækka ég nú aðeins, uppa á að hafa minni nýtingu og lengri líftíma, þó það sé nú ekki þörf, þar sem þeir hafa 7 ára ábyrgð


M.b.k
Ágúst!
Síðast breytt af agust15 á Mið 01. Feb 2017 00:43, breytt samtals 1 sinni.




Emarki
Ofur-Nörd
Póstar: 266
Skráði sig: Mán 03. Maí 2010 22:19
Reputation: 52
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf Emarki » Mið 01. Feb 2017 00:39

Það er mikill munur á RM seríunni og RMX seríunni, alls ekki það sama hvað gæði varðar.

Rm serían notar ódýrari þétta sem eru frá taiwan, þeir jafnast ekki við þá japönsku sem eru í RMX seríunni.

Kv. Einar




Höfundur
agust15
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Fös 09. Des 2016 02:02
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf agust15 » Mið 01. Feb 2017 00:43

Já, ég ætla í Rm650X líklegast.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4967
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 870
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Tengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf jonsig » Mið 01. Feb 2017 08:36

Emarki skrifaði:Það er mikill munur á RM seríunni og RMX seríunni, alls ekki það sama hvað gæði varðar.

Rm serían notar ódýrari þétta sem eru frá taiwan, þeir jafnast ekki við þá japönsku sem eru í RMX seríunni.

Kv. Einar


Já einar, útaf góð hönnun á psu snýst aðallega um þéttana sem eru í því..



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf GuðjónR » Mið 01. Feb 2017 08:58

En hver er munurinn á t.d. RM850x og RM850i ?
Modular vs fully modular?



Skjámynd

EggstacY
Fiktari
Póstar: 78
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 23:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf EggstacY » Mið 01. Feb 2017 09:41

agust15 skrifaði:EVGA supernova í sama verðflokki og RMX en er samt einungis bronze, ekki gold eins og RMX

Held ég haldi mig bara við RMX 650.

Takk fyrir góð svör!

Fer líklegast í 650, en ef veskið er spennt þá stækka ég nú aðeins, uppa á að hafa minni nýtingu og lengri líftíma, þó það sé nú ekki þörf, þar sem þeir hafa 7 ára ábyrgð


M.b.k
Ágúst!


Er með EVGA supernova G3 750W og hann er gold.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4967
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 870
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Tengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf jonsig » Mið 01. Feb 2017 09:46

Ótrúlegt hvað menn eru uppteknir við einhverja ónákvæma GOLD, silver sölumennsku.

Eitt mikilvægt atriði sem ég sé aldrei í psu auglýsingu er hvort spennurail´in séu group-regulated eða independent ef upp kæmi slæmt crossload. Þá mundi ég frekar taka bronze klass.




Höfundur
agust15
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Fös 09. Des 2016 02:02
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf agust15 » Mið 01. Feb 2017 17:28

EggstacY skrifaði:
agust15 skrifaði:EVGA supernova í sama verðflokki og RMX en er samt einungis bronze, ekki gold eins og RMX

Held ég haldi mig bara við RMX 650.

Takk fyrir góð svör!

Fer líklegast í 650, en ef veskið er spennt þá stækka ég nú aðeins, uppa á að hafa minni nýtingu og lengri líftíma, þó það sé nú ekki þörf, þar sem þeir hafa 7 ára ábyrgð


M.b.k
Ágúst!


Er með EVGA supernova G3 750W og hann er gold.



Ég er að tala um Supernova B2, sem er í sama verðflokki og RMX en B2 er bara bronze meðan RMX er gold.. :fly




snakkop
has spoken...
Póstar: 190
Skráði sig: Mán 07. Júl 2014 20:50
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Aflgjafa kaup

Pósturaf snakkop » Mið 01. Feb 2017 17:59

super flower þetta er flottir aflgjafar er með svona er mjog sáttur https://www.overclockers.co.uk/super-fl ... 22-sf.html


[url]<a href="https://www.passmark.com/baselines/V10/display.php?id=130428749474"><img src="https://www.passmark.com/baselines/V10/images/130428749474.png" alt="PassMark Rating" border="0" /></a>[/url]