Kemur eitthvað í staðinn fyrir MX518?


Höfundur
elight82
Fiktari
Póstar: 87
Skráði sig: Fös 24. Júl 2009 02:29
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Kemur eitthvað í staðinn fyrir MX518?

Pósturaf elight82 » Mið 14. Jan 2015 08:51

Eftir að hafa þjónað mér dyggilega í næstum 10 ár er MX518 músin mín að gefa upp öndina.

Spurningin er, hvað kemur í staðinn? Er það G400s (sem reyndar virðist uppseld) eða á maður að fara í einhverja aðra átt?



Skjámynd

vikingbay
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 364
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 03:07
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Kemur eitthvað í staðinn fyrir MX518?

Pósturaf vikingbay » Mið 14. Jan 2015 09:04

Ég var í sömu pælingum.
Endaði á að fá mér g502, þrátt fyrir að vera ekki alveg viss með hana til að byrja með, þá hef ég elskað hana frá því ég plöggaði henni í :D



Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1680
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Kemur eitthvað í staðinn fyrir MX518?

Pósturaf Stutturdreki » Mið 14. Jan 2015 09:59

Nei það kemur ekkert í staðinn fyrir MX518, sorry. :)

Hef átt G5 sem ég var sæmilega ánægður með, G500 sem entist í rétt ár hjá mér (fyrsta skipti sem logitech klikkar) og er með G500s núna sem mér finnst bara nokkuð góð.




vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Kemur eitthvað í staðinn fyrir MX518?

Pósturaf vesley » Mið 14. Jan 2015 11:00

Það kemur bara víst eitthvað í staðinn fyrir MX518 og það er G400S..

Sama lögun, sama hönnum og allir takkarnir á nákvæmlega sama stað, báðar mýsnar eru optical og því eru þær sambærilegar.

Hinsvegar hefur hún ekki verið til í ágætis tíma..



Skjámynd

Zpand3x
spjallið.is
Póstar: 401
Skráði sig: Lau 12. Des 2009 22:48
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Kemur eitthvað í staðinn fyrir MX518?

Pósturaf Zpand3x » Mið 14. Jan 2015 11:24

Ef þetta er sambandsleysi þá geturðu prufað að skipta um usb kapal í henni, finna einhverja gamla ódýra logitech víra mús og notar kapalinn úr henni :)


i7 4770k, MSI H97M-G43, 4x8GB, Corsair TX650W, CM silencio 550
Ryzen 3600, MSI B550I Gaming Edge Wifi, GTX 1660 Super, 2x16GB, DAN Cases A4-SFX V4.1


Höfundur
elight82
Fiktari
Póstar: 87
Skráði sig: Fös 24. Júl 2009 02:29
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Kemur eitthvað í staðinn fyrir MX518?

Pósturaf elight82 » Mið 14. Jan 2015 12:24

Zpand3x skrifaði:Ef þetta er sambandsleysi þá geturðu prufað að skipta um usb kapal í henni, finna einhverja gamla ódýra logitech víra mús og notar kapalinn úr henni :)


Þetta komment fékk mig til að opna músina (ekki í fyrsta skipti!) og fjarlægja rykhnoðra úr henni. Það virðist hafa lagað alltsaman!




brynjarbergs
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 382
Skráði sig: Mið 28. Maí 2014 13:57
Reputation: 54
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Kemur eitthvað í staðinn fyrir MX518?

Pósturaf brynjarbergs » Mið 14. Jan 2015 13:58

Ég nota MX510 bláa sem ég keypti mér 2004/2005 og er ennþá í topp standi! Vantar reyndar 1 glider undir hana en því verður auð-reddað!

Klikkuð mús!




Gerbill
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 324
Skráði sig: Mán 22. Sep 2008 16:36
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Kemur eitthvað í staðinn fyrir MX518?

Pósturaf Gerbill » Mið 14. Jan 2015 17:38

Ég notaði einmitt MX518 í einhver 8 ár og skellti mér svo í Razer Deathadder og er alveg sáttur með hana.