Álit og ráðleggingar óskast á nýrri vél


Höfundur
Remion
Græningi
Póstar: 31
Skráði sig: Sun 23. Sep 2012 18:10
Reputation: 0
Staðsetning: /root
Staða: Ótengdur

Álit og ráðleggingar óskast á nýrri vél

Pósturaf Remion » Fös 08. Ágú 2014 22:38

Sælir vaktarar. Hef nú í smá tíma verið að pæla í að uppfæra allan turninn minn. Myndi mest nota hana í CS:GO, Minecraft og einhverja fleiri létta leiki ásamt slatta vefrápi og einhverri léttri vinnslu. Langar að hafa hana sem hljóðláta og hægt er þannig að lágvær kæling og vel einangraður kassi væri stór kostur. Budget er svo í kringum svona 160k.

Hérna fyrir neðan er smá uppkast (takk Swagmark). Veit sjálfur ekkert svakalega mikið um vélbúnað almennt en þetta ætti allavega að púslast saman. Hinsvegar er örugglega hægt að gera þetta betur, ég veit mjög lítið þannig að allar ábendingar og öll hjálp er vel þegin. Takk fyrir :D

Örgjörvi: Tölvutækni - Intel Core i5-4670K 3.4GHz 32.900 kr
Örgjörvakæling: Tölvulistinn - CoolerMaster Hyper 412S 8.900 kr
Vinnsluminni: Tölvulistinn - 8GB 2x4GB DDR3 1600MHz 16.900 kr
Skjákort: Tölvutækni - Gigabyte NVIDIA GeForce GTX760 OC 2GB 37.900 kr
Móðurborð: Start - Gigabyte S1150 G1.Sniper B5 19.900 kr
Aflgjafi: Tölvulistinn - Corsair CX 600W ATX 13.990 kr
Harður diskur: Start - 3TB Seagate 64MB 7200sn 16.800 kr
Turnkassi: Tölvutækni - Cooler Master Silencio 550 18.900 kr

Sem endar í 166.190 kr. Ég á síðan 60GB SSD sem ég myndi líka nota.

Og svo enn ein spurning, haldiði að sendingarkostnaður á þessu öllu til Akureyrar væri viðráðanlegur? Eða ætti ég frekar bara að skutlast sjálfur eftir þessu?




Bioeight
Gúrú
Póstar: 525
Skráði sig: Þri 31. Mar 2009 22:41
Reputation: 6
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Álit og ráðleggingar óskast á nýrri vél

Pósturaf Bioeight » Lau 09. Ágú 2014 19:22

Ef þú ert að fara að senda út á land þá hefði ég haldið að það væri ódýrast að panta sem mest frá sama stað.

Skiptir þá út:
Vinnsluminni http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2670 13.900 kr.
Harður diskur http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2341 16.900 kr.
Móðurborð http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2726 23.900 kr.

Og þá er allt frá Tölvutækni(sem eru frábærir) nema aflgjafinn og örgjörvakælingin sem þú getur svo fengið í Tölvulistanum á Akureyri.

G1 Sniper B5 móðurborðið var mjög vinsælt og ef það er einhver sérstök ástæða fyrir því að þú vilt það þá endilega halda í það. Nýja Z97 borðið lítur betur út að mínu mati, auk þess sem það er nýrra og kostar aðeins 4000 kr. meira.

Væri frábært ef einhverjir aðrir gætu svo komið með sitt álit, fannst bara vanta svar svo ég kom með mínar 10 krónur.


Corsair Carbide 400Q| MSI Nvidia 2080| AMD R9 5900X| Gigabyte X470 Aorus Gaming 5| EVGA SuperNOVA 750 G3


Höfundur
Remion
Græningi
Póstar: 31
Skráði sig: Sun 23. Sep 2012 18:10
Reputation: 0
Staðsetning: /root
Staða: Ótengdur

Re: Álit og ráðleggingar óskast á nýrri vél

Pósturaf Remion » Sun 10. Ágú 2014 22:41

Bioeight skrifaði:Ef þú ert að fara að senda út á land þá hefði ég haldið að það væri ódýrast að panta sem mest frá sama stað.

Skiptir þá út:
Vinnsluminni http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2670 13.900 kr.
Harður diskur http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2341 16.900 kr.
Móðurborð http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2726 23.900 kr.

Og þá er allt frá Tölvutækni(sem eru frábærir) nema aflgjafinn og örgjörvakælingin sem þú getur svo fengið í Tölvulistanum á Akureyri.

G1 Sniper B5 móðurborðið var mjög vinsælt og ef það er einhver sérstök ástæða fyrir því að þú vilt það þá endilega halda í það. Nýja Z97 borðið lítur betur út að mínu mati, auk þess sem það er nýrra og kostar aðeins 4000 kr. meira.

Væri frábært ef einhverjir aðrir gætu svo komið með sitt álit, fannst bara vanta svar svo ég kom með mínar 10 krónur.

Lýst vel á að færa þetta allt yfir til Tölvutækni, fyrst að vinnsluminnið er ódýrara hækkar þetta bara um 1000 kr. samtals. Sorry Start.

En jú væri alveg til í fleiri álit, takk allavega fyrir að eyða tíma í að svara mér :)