Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Tengdur

Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf appel » Þri 17. Júl 2007 10:54

Við vaktarar viljum endilega rakka niður allar hugmyndir ykkar um vélbúnaðarkaup :)
En til að það gangi vel fyrir sig þurfum við að fá eftirfarandi upplýsingar, ásamt vélbúnaðarlýsingu:

1. Hvað á að nota tölvuna helst í (t.d. leiki, hugbúnaðarþróun, word/excel, vefráp, eða bara allt)

2. Hvað er budget ykkar. (Ekki segja að það skipti ekki máli!) Ódýr vél þarf ekkert endilega að vera síðri en dýrari vél!

3. Einhverjar aðrar kröfur, s.s. hvort þið kjósið bara Intel/AMD, eða hvort vélin eigi að vera mjög hljóðlát, eða þið viljið endilega hafa eitthvað ákveðið í vélinni s.s. 4gíg minni, ákveðið skjákort o.s.frv.



Athugið: Ekki senda ákveðnum aðilum spurningar í PM (einkaskilaboð), það er mun betra að spyrja á spjallinu, þá geta fleiri séð ráðleggingarnar og einnig svarað.


*-*


Gets
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mið 01. Ágú 2007 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Endurnýjunarpakki.

Pósturaf Gets » Mið 13. Feb 2008 02:04

Ég nota PC tölvuna mina í alhliða vinnslu sem sagt vefráp, word, myndvinnslu bæði Photoshop, dvd vinnslu og klippingar af 8 mm spólum.

Einnig vil ég geta kíkt í einhvern góðan leik af og til og þá fyrstu persónu skotleiki sem þarfnast góðs skjákorts.

Ég hef alltaf haldið mig við kaup á örgjörfa frá þeim framleyðanda sem þykir vera með öflugri vöru þegar mér finnst að endurnýjun komið og samkvæmt flestum öðrum vélbúnaði sem tomshardware.com hefur tekið fyrir og miðlað okkur af samanburðamælingum sínum
fyrsta vélin mín var AMD 233 Mhz en sá örgjörfi þótti alveg málið þegar hann var nýkomin út.

Hundrað kall hefur alltaf verið budgetið við endurnýjun og það viðmið að kaupa ekki dýrara en þriðja efsta búnaðin á verðskala/performance mér finnst einfaldlega ekki vera það mikil sjáanlegur/finnanlegur munur að það sé þess virði að greiða svo mikklu meira fé í það en raun ber vitni.

Ég vil hafa tvö gig af minni í vélini “nota Windows XP” hljóðlátar viftur og eins og áður sagði þriðja dýrasta skjákortið á markaðnum og hef þá notað sitt á hvað Wodoo, “síðar innlimað í Ati” eða nVidia.

Samkvæmt verði og persónulegu viðmiði tæki ég neðangreint í dag miðað við ofangreinda lýsingu.

Móðurborð

Gigabyte GA-P35-DS3L
Aflgjafi

550W ATX2.2
Örgjörvi

Core 2 Quad Q6600
Vinnsluminni

2GB DDR2-800 CL5
Harður diskur

500GB 7200RPM SATA2 16MB buffer
Geisladrif

20x hraða DVD-RW DL skrifari
Skjáhraðall

GeForce 8800GTS 512MB

Ásamt vel kældum kassa kostar svona pakki hundrað kall í dag.



Skjámynd

Skapvondur
Bannaður
Póstar: 73
Skráði sig: Sun 06. Júl 2008 23:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Skapvondur » Lau 12. Júl 2008 15:33

Hihi, sjáðu pakkann sem þú getur fengið í Tölvuvirkni, "Hvað finnst ykkur um þessa samsetningu?", var að skella þessu inn, getur fengið allan pakkann á rétt rúmlega hundrað kall! :D
Síðast breytt af Skapvondur á Lau 12. Júl 2008 16:49, breytt samtals 1 sinni.


Ég er svona Semi-Þolinmóður, ég get alveg beðið í röð í 3 tíma, en ef tölvan mín bilar..."&%$/$&/(#%/$#"#!"$"&#$(&(=)&%/$$!!!! DIE DIE DIE DDDIIIEEE!!!!!!!

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf GuðjónR » Lau 12. Júl 2008 15:59

Skapvondur skrifaði:Hihi, sjáðu pakkann sem þú getur fengið í Tölvuvirkni, "Hvað fynnst ykkur um þessa samsetningu?", var að skella þessu inn, getur fengið allan pakkann á rétt rúmlega hundrað kall! :D

Menn verða virkilega SKAPVONDIR þegar ársgamlir póstar eru endurvaktir!



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Gúrú » Lau 12. Júl 2008 16:39

Skapvondur skrifaði:Hihi, sjáðu pakkann sem þú getur fengið í Tölvuvirkni, "Hvað fynnst ykkur um þessa samsetningu?", var að skella þessu inn, getur fengið allan pakkann á rétt rúmlega hundrað kall! :D


Menn verða LÉTT PIRRAÐIR þegar að þú skrifar fynnst ekki finnst.


Modus ponens

Skjámynd

Skapvondur
Bannaður
Póstar: 73
Skráði sig: Sun 06. Júl 2008 23:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Skapvondur » Lau 12. Júl 2008 16:49

SORRY


Ég er svona Semi-Þolinmóður, ég get alveg beðið í röð í 3 tíma, en ef tölvan mín bilar..."&%$/$&/(#%/$#"#!"$"&#$(&(=)&%/$$!!!! DIE DIE DIE DDDIIIEEE!!!!!!!

Skjámynd

Jon1
Geek
Póstar: 843
Skráði sig: Sun 20. Jan 2008 04:25
Reputation: 15
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Jon1 » Fim 22. Jan 2009 10:17

jæja ... vantar endilega álit frá ykkur um nýjatölvu
það sem mig vantar er móðurborð,minni,örri,PSU

budget er 70k þarf að vera með ddr3 (2gb allaveg)
PSU 800w+ , með allavega einu 8 pinna pci-e tengi og fjórum 6pinna pci-e
er hrifin af intel örgjörvum nema þið getið sannfært mig um annað ;) (var að pæla að taka 2duo núna og fá mér quad seinna í sumar þegar ég ætla að uppfæra skjákortið)
eitthvað gott móðurboð sem höndlar sli/crossfire og ddr3 minni

tölvan sem ég er með í huga núna (setti hana saman á tigerdirect.com, ef þið farið út í að setja tölvu saman þar þá er það undir $500)

Vinnsluminni: http://www.tigerdirect.com/applications ... u=W19-1040

PSU: http://www.tigerdirect.com/applications ... No=4352342

móðurborð: http://www.tigerdirect.com/applications ... No=4008497

örri: http://www.tigerdirect.com/applications ... No=3574211


i7 6700k @ 4.0 GHz | Custom Loop Water Cooling| AsRock z170 extreme 6+ | G.skill trident z 16 GB DDR4 @ 3200 MHz | Gigabyte Aorus GTX 1080ti| Wallmount | BeQuiet Darkpower pro 850+ | Samsung 950 pro nvme m.2 512gb + Samsung SSD 850 evo 2.5'' 2x250GB SATA3|Acer X34a - BenQ G2450 24'' | W10 x64

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Gúrú » Fim 22. Jan 2009 14:51

Jon1 skrifaði:PSU 800w+ , með allavega einu 8 pinna pci-e tengi og fjórum 6pinna pci-e


ÁTTAHUNDRUÐ?

Skoðaðu þetta http://extreme.outervision.com/psucalculatorlite.jsp


Modus ponens

Skjámynd

Sydney
1+1=10
Póstar: 1108
Skráði sig: Lau 29. Mar 2008 19:26
Reputation: 55
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Sydney » Fim 22. Jan 2009 14:53

Ef þú ert ekki að fara í SLi eða CrossFireX hefuru EKKERT að gera við 800w, 500w ætti að get knúið öflugustu single kort vélarnar í dag.


Gigabyte X570 Aorus Ultra | Ryzen 9 5900X | Corsair Vengeance RGB Pro 32GB 3200MHz CL16 | Fractal Design Define S
Aorus Xtreme RTX 2080 Ti | 500GB Samsung 980 Pro | Corsair AX860 | ROG Swift PG279Q
Ducky YOTM | Glorious Model O | Sennheiser HD650 | Thrustmaster Warthog HOTAS
Thinkpad X1 Yoga 2nd Gen OLED


Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 603
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 86
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Manager1 » Fim 22. Jan 2009 16:58

Ég reiknaði út mína tölvu með þessum calculator og fékk út 882w :?
Þó er ég bara með 1stk 8800GTX skjákort og Q6600 örgjörva.

Vill til að ég er með 800w PSU þannig að ég þarf kannski ekki að hafa miklar áhyggjur.



Skjámynd

Jon1
Geek
Póstar: 843
Skráði sig: Sun 20. Jan 2008 04:25
Reputation: 15
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Jon1 » Fim 22. Jan 2009 17:20

ég vil hafa möguleikan á sli og jafnvel 3way sli i sumar ef ég verð gráðugur :P


og þettta test þitt seigir 650 W á mig atm.. langar bara að fá eitthvað sem endist. þar sem 550 PSU ið mitt er að deyja


i7 6700k @ 4.0 GHz | Custom Loop Water Cooling| AsRock z170 extreme 6+ | G.skill trident z 16 GB DDR4 @ 3200 MHz | Gigabyte Aorus GTX 1080ti| Wallmount | BeQuiet Darkpower pro 850+ | Samsung 950 pro nvme m.2 512gb + Samsung SSD 850 evo 2.5'' 2x250GB SATA3|Acer X34a - BenQ G2450 24'' | W10 x64

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3812
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 140
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Daz » Fim 22. Jan 2009 19:37

Manager1 skrifaði:Ég reiknaði út mína tölvu með þessum calculator og fékk út 882w :?
Þó er ég bara með 1stk 8800GTX skjákort og Q6600 örgjörva.

Vill til að ég er með 800w PSU þannig að ég þarf kannski ekki að hafa miklar áhyggjur.


Hvað ert þú eiginlega með í vélinni hjá þér sem er svona orkufrekt? Þegar ég set upp mína er niðurstaðan 263 W

System Type: Single Processor
Motherboard: High End - Desktop
CPU: Intel Core 2 Duo E6750 2660 MHz Conroe
CPU Utilization (TDP): 85% TDP
RAM: 2 Sticks DDR2 SDRAM
Video Card: NVIDIA GeForce 8800 GTS 640MB
Video Type: Single Card
SATA HDD: 1 HDD
DVD-RW/DVD+RW Drive: 1 Drive
Floppy Drive: 1 Drive
Fans
High Performance: 1 Fan 120mm;
Keyboard and mouse: Yes
System Load: 90 %

Recommended Wattage: 263 Watts




Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 603
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 86
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Manager1 » Fim 22. Jan 2009 21:18

Reiknaði þetta aftur, gerði smá fljótfærnisvillu fyrst :D

System Type: Single Processor
Motherboard: High End - Desktop
CPU: Intel Core 2 Quad Q6600 G0 2400 MHz Kentsfield
Overclocked: 3000 MHz, 1.3 V
CPU Utilization (TDP): 85% TDP

RAM: 4 Sticks DDR2 SDRAM
Video Card: NVIDIA GeForce 8800 GTX
Video Type: Single Card

SATA HDD: 2 HDDs

DVD-RW/DVD+RW Drive: 1 Drive
Additional PCI Card (avg): 1 Card

Fans
Regular: 4 Fans 120mm;

Keyboard and mouse: Yes

System Load: 90 %

Capacitor Aging (+ W %): 30 %


Recommended Wattage: 503 Watts


Þetta er nokkuð eðlilegra myndi ég segja.




thiwas
Nörd
Póstar: 126
Skráði sig: Þri 05. Apr 2005 18:35
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf thiwas » Mán 11. Maí 2009 13:31

Hvernig lýst mönnum á þennan turn, og þetta fyrirtæki reyndar ???

http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=1167

og jafnvel þessa líka
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=18937

Hvor er betri kostur ???


var að hugsa um ca þennan pening líka ....


ætla að nota hann aðallega í Netið, AutoCad, Einstaka leiki eins og t.d. FM2009, Fifa og eitthvað þannig

og jafnvel þessa líka.
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=18937


ætlaði að fara að versla mér tölvu í dag, þannig að það væri ágætt að fá álit !!!



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2806
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 195
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf CendenZ » Mán 11. Maí 2009 14:19

þráður sem spannar 2007-2008 og 2009 !

impressive!




JReykdal
Tölvutryllir
Póstar: 695
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 18:59
Reputation: 154
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf JReykdal » Fös 02. Okt 2009 18:53

Það þarf greinilega að kíkja á hann aftur 2010!


Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.


Asleep
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Mán 07. Des 2009 10:35
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Asleep » Mán 07. Des 2009 10:55

sælir Vaktarar..

ég er að fara að uppfæra tölvuna hjá mér.
fékk mér þessa sem ég er með fyrir þrem árum og hef ekki uppfært hana síðan.
ég keypti allt í gegnum att.is og var aðallega að leita mér að kick-ass hljóðkorti en núna er mig farið að langa að geta spilað nýjustu leikina án vandræða.
ég er ss að leita mér að örgjörva, móðurborði, vinnsluminni og skjákorti. einhver sagði mér að ég þyrfti nýtt power-supply þar sem mitt er bara 300w þannig að turn með 500w power-supply verður að vera með í kaupunum.. er með budget upp á 70 - 80 þ kr alls ekki ofar en 80 þ og undir 70 væri mjög gott.

ég var búinn að fara yfir þetta aðeins og sýnist þetta vera ódýrast hjá Att.is ef ég kaupi allt á einum stað.
það sem ég var að spá í er:

Intel Core 2 Quad Q8200 2.33GHz, 1333FSB 4MB cache, 45nm, OEM
25.950.-

MSI P41T-C31 - Intel P41T, 2xDDR2 800MHz, 1333FSB, 4xSATAII, 1x PCI-E 16X, GB lan, 7.1 hljóð
12.950.-

Corsair 800MHz ValueSelect 2GB 240pin PC2-6400 CL5, lífstíðarábyrgð
9.450.-

MSI GeForce N220GT-MD1G 1GB 810MHz GDDR2, 625MHz Core, DVI og VGA, HDMI, PCI-E 16X
15.950.-

Ace Core IV, svartur og grár - flottur kassi með 500W aflgjafa
11.950.-

þetta er það sem ég var að spá í..
vantar samt aðstoð með að finna þetta kannski ódýrara ef það er möguleiki.

mig langaði í :
Gigabyte 9600GT PCI-E2.0 skjákort 512GB GDDR3 Silent Cell
en það er ekki til hjá Att.is.. er MSI GeForce N220GT svipað, betra eða verra ?

öll aðstoð mjög vel þegin :D




Asleep
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Mán 07. Des 2009 10:35
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Asleep » Mán 07. Des 2009 12:19

held að ég sé kominn með þetta..

Örgjörvi
Tölvutækni.is - http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=1369
Intel Core 2 Quad Q8300 2.5GHz, LGA775, 4MB cache, OEM
26.900.-

Skjákort
http:/www.tolvutek.is/product_info.php?products_id=20166
Gigabyte 9600GT PCI-E2.0 skjákort 512GB GDDR3 Silent Cell
14.900.-

Móðurborð
Att.is http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 961c12b34b
MSI G41TM-E43
Intel G41, 2xDDR2 800MHz, 1333FSB, 4xSATAII, 1x PCI-E 16X,
GMA4500 skjákort, DVI og HDMI, GB lan, 7.1 hljóð
13.950.-

Vinnsluminni
Att.is - http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 961c12b34b
Corsair 800MHz ValueSelect 2GB
240pin PC2-6400 CL5, lífstíðarábyrgð Corsair
9.450.-

500w turn
http:/www.tolvutek.is/product_info.php?products_id=20056
Inter-Tech Starter 4 turnkassi með 500W spennugjafa, svartur
10.900.-

samtals: 76.100 kr


en ef þið hafið einhverju við að bæta þá væru allar ráðleggingar vel þegnar.



Skjámynd

Lunesta
Gúrú
Póstar: 568
Skráði sig: Mán 30. Nóv 2009 16:16
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Lunesta » Mán 07. Des 2009 13:43

ætlarðu ekki að hafa neinar viftur í þetta, ?




Asleep
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Mán 07. Des 2009 10:35
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Asleep » Mán 07. Des 2009 14:25

Lunesta skrifaði:ætlarðu ekki að hafa neinar viftur í þetta, ?


já meinar.. :roll: greinilega ekki.. hehe jú takk fyrir að minna mig á það :D

hvað mælir þú með ?

væri þessi nóg ?

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 33b924e0f6



Skjámynd

binnip
spjallið.is
Póstar: 401
Skráði sig: Mið 15. Apr 2009 14:44
Reputation: 0
Staðsetning: fyrir framan skjáinn.
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf binnip » Mán 07. Des 2009 14:42

Myndi nú taka einhverja betri .


nVidia 9600GT - 600GB HD- ASRockP43DE - Intel E6600 2.4 GHz - GeIL Ultra 4GB 1066 MHz


Asleep
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Mán 07. Des 2009 10:35
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Asleep » Mán 07. Des 2009 15:33

binnip skrifaði:Myndi nú taka einhverja betri .


eins og hvað þá ?

ég er með budget upp á 80 þ kr.. og það er alveg topp.. vill ekki fara hærra en það.

ef ég myndi taka eina fyrir kassann td
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=17656
og eina fyrir örgjörvan td
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 57204f5d32

þá er ég kominn upp í topp á budget..

eru þessar tvær nóg eða ?




vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf vesley » Mán 07. Des 2009 16:03

þessi coolermaster getur verið ekkert smá hávær myndi frekar bara taka stock viftuna.




Asleep
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Mán 07. Des 2009 10:35
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Asleep » Þri 08. Des 2009 09:37

vesley skrifaði:þessi coolermaster getur verið ekkert smá hávær myndi frekar bara taka stock viftuna.


takk fyrir ábendinguna.. finn út úr þessu



Skjámynd

Rubix
Fiktari
Póstar: 87
Skráði sig: Fös 10. Apr 2009 01:14
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lesið - Þeir sem vilja álit á nýrri vél

Pósturaf Rubix » Þri 08. Des 2009 10:00

Asleep skrifaði:
Lunesta skrifaði:ætlarðu ekki að hafa neinar viftur í þetta, ?


já meinar.. :roll: greinilega ekki.. hehe jú takk fyrir að minna mig á það :D

hvað mælir þú með ?

væri þessi nóg ?

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 33b924e0f6


Þar sem þú ert með quad, mæli ég með betri kælingu, þeir eiga það til að hitna svakalega mikið, og ef þú myndir hugsanlega pæla í yfirklukkun þá verð ég eiginlega að benda þér á þessa kælingu:
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=17641

Svo kannski eina góða viftu í kassann? : http://kisildalur.is/?p=2&id=819


||RubiX