iMac 27" mid 2011 slekkur á skjánum eftir X tíma

Skjámynd

Höfundur
Sera
Ofur-Nörd
Póstar: 248
Skráði sig: Lau 04. Okt 2003 19:14
Reputation: 11
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

iMac 27" mid 2011 slekkur á skjánum eftir X tíma

Pósturaf Sera » Mán 14. Des 2020 14:05

Hæ,

Ég er með iMac 27" mid 2011 sem ég hef ekki verið með í notkun í ca. 2 ár. Ég ákvað að dusta rykið af honum og setja upp aftur - uppfærði og nú slekkur hann alltaf á skjánum eftir mis langan tíma. External skjár virkar fínt en skjárinn á iMac er svartur. Þegar hann virkar þá virðist hann vera í fínu lagi. Ég er búin að googla og sé að margir hafa lent í þessu með þessa tölvu en sé mjög mismunandi svör um lausn á vandamálinu, allt frá því að smella á einhvert combination af stöfum á lyklaborðinu í að skipta út skjánum, skjákorti eða skjákapli.

Ég hef engan sérstakan áhuga á að leggja í mikinn kostnað til að laga þessa öldruðu tölvu, en langaði að ath. hvort að einhver hefði lent í þessu eða viti hver lausnin er.

Þetta er tölvan:

https://support.apple.com/kb/sp689?locale=en_IS


*B.I.N. = Bilun í notanda*

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: iMac 27" mid 2011 slekkur á skjánum eftir X tíma

Pósturaf Tiger » Mán 14. Des 2020 15:26

ég lenti í þessu líka, fór með mína í epli og það þurfti að skipta um skjá. Seldi hana í varahluti.


Mynd


frr
has spoken...
Póstar: 186
Skráði sig: Þri 01. Ágú 2006 14:59
Reputation: 19
Staða: Ótengdur

Re: iMac 27" mid 2011 slekkur á skjánum eftir X tíma

Pósturaf frr » Þri 15. Des 2020 00:00

Sennilega þetta sem þarf að skipta um. Eða hita lóðningar/skipta um þétta, ef þú leggur í það,
https://www.ebay.com/p/1637579469



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16264
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: iMac 27" mid 2011 slekkur á skjánum eftir X tíma

Pósturaf GuðjónR » Þri 15. Des 2020 17:25

frr skrifaði:Sennilega þetta sem þarf að skipta um. Eða hita lóðningar/skipta um þétta, ef þú leggur í það,
https://www.ebay.com/p/1637579469


Ég lenti tvisvar í biluðu „Backlight Inverter Board“, í iMac 2009-2011 en það lýsti sér sem mikill hávaði/suð þegar birtustig skjásins var ekki 100%
Einhversskonar þetta suð, lagaðist með því að skipta um borð. En skjárinn datt aldrei út eins og OP lýsir.




frr
has spoken...
Póstar: 186
Skráði sig: Þri 01. Ágú 2006 14:59
Reputation: 19
Staða: Ótengdur

Re: iMac 27" mid 2011 slekkur á skjánum eftir X tíma

Pósturaf frr » Sun 20. Des 2020 15:30

GuðjónR skrifaði:
frr skrifaði:Sennilega þetta sem þarf að skipta um. Eða hita lóðningar/skipta um þétta, ef þú leggur í það,
https://www.ebay.com/p/1637579469


Ég lenti tvisvar í biluðu „Backlight Inverter Board“, í iMac 2009-2011 en það lýsti sér sem mikill hávaði/suð þegar birtustig skjásins var ekki 100%
Einhversskonar þetta suð, lagaðist með því að skipta um borð. En skjárinn datt aldrei út eins og OP lýsir.


Ég lagaði nú einu sinni 32 tommu sjónvarp sem missti algerlega baklýsingu. Það var interver borðið, en eina sem ég þurfti að gera var að lóða í eina díóðu.
Sem sagt, baklýsing getur dottið út ef inverter borðið er bilað, en það er misjafnt hvað gerist.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: iMac 27" mid 2011 slekkur á skjánum eftir X tíma

Pósturaf Klemmi » Sun 20. Des 2020 15:39

Yfirleitt geturðu séð móta fyrir mynd á skjánum ef inverterinn er bilaður, þ.e. eins og fyrri ræðumenn hafa sagt, þá dettur baklýsingin út, en þú ættir að geta séð mjöööög dökka mynd, ekki alveg svart.




frr
has spoken...
Póstar: 186
Skráði sig: Þri 01. Ágú 2006 14:59
Reputation: 19
Staða: Ótengdur

Re: iMac 27" mid 2011 slekkur á skjánum eftir X tíma

Pósturaf frr » Sun 20. Des 2020 16:44

Það er rétt, maður sér móta fyrir mynd með sterku ljósi, en margir taka samt ekkert eftir því.