Líftími tölvumúsa

Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Líftími tölvumúsa

Pósturaf appel » Sun 11. Okt 2020 00:08

Ég er að verða nokkuð reiður yfir þessum líftíma á tölvumúsum.

Er búinn að vera með 4 mýs á síðustu 4 árum og þær annaðhvort byrja að bila þannig að músahnapparnir virka ekki eða að gúmmíð á þeim byrjar að detta af.

Tvær logitech mx400 eru farnar í ruslið.
Gúmmíð er að detta af steelseries rival 310.
Og ein razer basilisk er að hætta að virka, miðjuhnappurinn farinn og gúmmíð að losna af.

Ég bara skil þetta ekki. Tölvumýs eru nú ekki beinlínis flóknar. Hér áður fyrr þá notaði maður tölvumús í kannski 5-6 ár.


*-*


netkaffi
</Snillingur>
Póstar: 1007
Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf netkaffi » Sun 11. Okt 2020 00:19

músartakkinn á Logitech M705 virkar stundum ekki eða tvísmellir stundum þegar ég smelli bara einu sinni, en það kemur það sjaldan fyrir að það böggar mig ekki það og það er ótrúelgt að hún virki eins vel og hún gerir því ég er alltaf að henda henni óvart í vegg eða gólfið (er með lappa upp í rúmi). búinn að eiga hana í ca 3 ár. ég er casual tölvuleikjaspilari. ef ég væri aðeins meira hardcore í tölvuleikjaspilun myndi ég náttla fá mér nýja mús.

en já tölvumýs voru harðbyggðari í gamladaga og einfaldari. bara eitthvað vírarusl inni í þeim, örlítið og einfalt. mýsnar voru harðari viðkomu og urðu frekar skítugar útaf kúlunni. kúlumýs sökkuðu. finnst eins og MS 3.0 músin hafi verið fyrsta svona nýaldarmúsin og djöfull var það góð mús. allir í Counter-Strike þurftu að eiga hana (Frá Microsoft)

ótrúlegt batterí samt í M705. enda heitir hún Marathon. þeir auglýsa 3 ár endingartíma á AA rafhlöðum og það er ekki djók. vissi ekkert af þessu þegar ég keypti hana. fór bara að taka eftir að hún gat keyrt margar vikur eða mánuði á rafhlöðum sem voru dauðar
Síðast breytt af netkaffi á Sun 11. Okt 2020 00:55, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

gotit23
Tölvutryllir
Póstar: 654
Skráði sig: Sun 13. Jún 2010 19:37
Reputation: 31
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf gotit23 » Sun 11. Okt 2020 00:38

held að þetta kemur allt niður á meðferð á búnaði.
hef sjálfur ekki upplífað neitt slæmt á þeimn mýsum sem ég hef keypt á siðustu árum.

u get what u pay for?




mjolkurdreytill
Ofur-Nörd
Póstar: 267
Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
Reputation: 59
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf mjolkurdreytill » Sun 11. Okt 2020 00:51

Er ennþá með logitech g400 sem ég keypti 2012.



Skjámynd

DaRKSTaR
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Þri 08. Apr 2003 04:01
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf DaRKSTaR » Sun 11. Okt 2020 02:07

dugir í 3-4 ár í besta falli, hafa mýs einhvertímann dugað lengur ef menn spila leiki?

ég er búinn að fara í gegnum haug af músum, var með mx510 frá 2003 til 2016, minnir að ég hafi skipt um mús á 2 ára fresti, hafði vísu vit
fyrir mér 2003 og keypti slatta af þeim þannig að ég átti varabirgðir, ég er núna á g502 mús nr2.


I9 10900k | Gigabyte RTX 3060 TI | Samsung Odyssey G7 32" | Corsair H100x | Gigabyte Z490 Aorus Elite | G.SKILL Trident Z 32GB @ 3600mhz | Lian-Li O11 XL ROG | XPG Pro 512GB | Seasonic Focus 850W Gold | Corsair K95 Platinum | Logitech G502 Hero | Steelseries Arctis Pro Wireless


pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf pepsico » Sun 11. Okt 2020 02:33

Það er broslegt að heyra að þetta komi allt niður á meðferð á búnaði. Ég hef ekki lengur tölu á því hversu oft ég eða einhver sem ég þekki lendir á Logitech mús sem tvíklikkar (eða meira) strax frá upphafi eða eftir örfáar vikur af eðlilegri notkun. Þetta hrjáir ekki bara ódýru módelin þeirra heldur líka þau allra dýrustu. Logitech G Pro, G Pro Wireless og MX518 Reborn eru þau allra verstu þegar kemur að þessu vandamáli svo ég viti, en svo voru önnur módel af eldri kynslóðum t.d. G502 og félagar sem voru ekki að hrjást svona harkalega af tvíklikki/margklikki, en voru með sín eigin algengu vandamál með skrollhjól, snúrutengingarnar og fleira. Það er eitthvað súrrealískt og svekkjandi við það að fyrirtæki sem hefur verið leiðandi í músum svona lengi, og byggði orðspor sitt á einhverri endingabestu mús allra tíma (MX518), framleiði núna mýs sem er ekki hægt að treysta á að klikki rétt oftar en þetta. Maður biður ekki um mikið.

En ég mæli samt sterklega með Logitech G305 því það er ódýr en frábær þráðlaus mús--og maður fær 2 ára ábyrgð á henni hér á landi svo það bitnar ekkert of leiðinlega á manni ef maður lendir á eintaki sem tvíklikkar eða byrjar að tvíklikka.



Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf upg8 » Sun 11. Okt 2020 03:09

Rofar voru einfaldlega stærri og vandaðari áður fyrr. Mjög algengt að rofarnir gefi sig en lítið mál að fá rofa frá td Omron og skipta í flestum músum.

Hinsvegar lúkka þessir rofar frá Razer vel
https://www.razer.com/razer-optical-mouse-switch


Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"

Skjámynd

vesi
/dev/null
Póstar: 1464
Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
Reputation: 121
Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf vesi » Sun 11. Okt 2020 03:12

er einnmitt að uplifa þetta með "nýju" Mx 518. fynnst hún ekki nema 1.click. heldur þarf að tvíklika óþægilega oft... allavega nóg til að ég taki eftir því.
Aðrir í svipuðum sporum??


MCTS Nov´12
Asus eeePc


netkaffi
</Snillingur>
Póstar: 1007
Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf netkaffi » Sun 11. Okt 2020 03:18

pepsico skrifaði:Það er broslegt að heyra að þetta komi allt niður á meðferð á búnaði. Ég hef ekki lengur tölu á því hversu oft ég eða einhver sem ég þekki lendir á Logitech mús sem tvíklikkar (eða meira) strax frá upphafi eða eftir örfáar vikur af eðlilegri notkun.

Shit, þegar þú segir þetta þá kom þetta fyrir nokkuð fljótt. Bara innan nokkurra mánaða eða nokkra vikna. Og Logitech lyklaborðið í pakkanum drapst eftir nokkra mánuði. Eru Logitech orðnir slappari en þeir voru í endingu, greinilega, hryggir mig.
Síðast breytt af netkaffi á Sun 11. Okt 2020 03:24, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4953
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Tengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf jonsig » Sun 11. Okt 2020 11:44

Var að hætta að nota mx518 (2004?) Samt fúnkerar hún vel. En búinn að vaða gegnum margar nýrri logitech í vinnunni



Skjámynd

beggi90
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 15. Okt 2008 21:02
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf beggi90 » Sun 11. Okt 2020 12:00

Endingin hefur verið ca 3 ár hjá mér áður en þær byrja að tvíklikka eða missa signal við og við.



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1795
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf Danni V8 » Sun 11. Okt 2020 16:01

Var með Logitech MX518 sem ég hætti að nota bara því mig langaði í gaming mús, hún klikkaði aldrei þau 8 ár sem ég notaði hana.

Eftir það hef ég verið með mýs frá allskonar framleiðendum og endingin alltaf þessi 2-3 ár, þangað til núna en núna spila ég ekki næstum því eins mikið af tölvuleikjum og ég gerði svo það skýrir sennilega hvers vegna núverandi Logitech G900 er búin að endast í rúmlega 3 ár og so far ekkert merki um bilun...


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16265
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf GuðjónR » Sun 11. Okt 2020 16:31

appel skrifaði:Ég er að verða nokkuð reiður yfir þessum líftíma á tölvumúsum.

Er búinn að vera með 4 mýs á síðustu 4 árum og þær annaðhvort byrja að bila þannig að músahnapparnir virka ekki eða að gúmmíð á þeim byrjar að detta af.

Tvær logitech mx400 eru farnar í ruslið.
Gúmmíð er að detta af steelseries rival 310.
Og ein razer basilisk er að hætta að virka, miðjuhnappurinn farinn og gúmmíð að losna af.

Ég bara skil þetta ekki. Tölvumýs eru nú ekki beinlínis flóknar. Hér áður fyrr þá notaði maður tölvumús í kannski 5-6 ár.


Ég er með Steelseries Rival 310 og gúmmíið dettur af, kiddi er með Logitech Lighspeed G502 og G903 og báðar hættar að virka.
Viðhengi
0B98832A-5D60-48E4-A82E-DBFBA4D15991.jpeg
0B98832A-5D60-48E4-A82E-DBFBA4D15991.jpeg (448.69 KiB) Skoðað 4173 sinnum




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1777
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 72
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf axyne » Sun 11. Okt 2020 16:33

Er mikið að teikna í vinnunni, fer í gegnum mörg músarklikk yfir daginn.

Átti Logitech G403 sem byrjaði að tvíklikka eftir ár.
skipti yfir í Logitech G603 sem byrjaði síðan að tvíklikka líka eftir ár.
Einn daginn þá var það orðið svo rosalega slæmt ég frussaði af reiði og grítti henni frá mér, skoppaði af borðinu á vegginn og útá gólf.
Rage-quitaði í vinnunni og fór rakleiðis og keypti mér Logitech MX3. Á að hafa tvöfalda músarklikka endingu miðan við "venjulegu" mýsnar.
Búinn að hafa hana í 8 mánuði núna og so far so good.

Nokkrum vikum seinna þá ákvað ég að reyna að laga þessa G603 og hafa hana heima í staðin fyrir gömlu góðu MX518, keypt 2004/2005 sem virkar fínt en er orðin lúin útlitslega.
Mér til mikillar undrunar þá þurfti ég ekkert að eiga við hana, hún bara virkar... hún hefur lært sína lexíu :twisted:


Electronic and Computer Engineer

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16265
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf GuðjónR » Sun 11. Okt 2020 16:37

axyne skrifaði:Er mikið að teikna í vinnunni, fer í gegnum mörg músarklikk yfir daginn.

Átti Logitech G403 sem byrjaði að tvíklikka eftir ár.
skipti yfir í Logitech G603 sem byrjaði síðan að tvíklikka líka eftir ár.
Einn daginn þá var það orðið svo rosalega slæmt ég frussaði af reiði og grítti henni frá mér, skoppaði af borðinu á vegginn og útá gólf.
Rage-quitaði í vinnunni og fór rakleiðis og keypti mér Logitech MX3. Á að hafa tvöfalda músarklikka endingu miðan við "venjulegu" mýsnar.
Búinn að hafa hana í 8 mánuði núna og so far so good.

Nokkrum vikum seinna þá ákvað ég að reyna að laga þessa G603 og hafa hana heima í staðin fyrir gömlu góðu MX518, keypt 2004/2005 sem virkar fínt en er orðin lúin útlitslega.
Mér til mikillar undrunar þá þurfti ég ekkert að eiga við hana, hún bara virkar... hún hefur lært sína lexíu :twisted:


Lesson to learn, ef það virkar ekki kasta þá í vegginn! ](*,)




pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf pepsico » Sun 11. Okt 2020 16:43

axyne inniloft er rakara á sumrin og rakinn hjálpar switchunum að ná betra sambandi. Ekki undrast á því ef þetta vandamál vaknar aftur von bráðar og hverfur svo aftur í vor.



Skjámynd

Verisan
has spoken...
Póstar: 166
Skráði sig: Sun 20. Sep 2009 10:53
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf Verisan » Sun 11. Okt 2020 17:52

logitech mouseman cordless.jpg
logitech mouseman cordless.jpg (9.57 KiB) Skoðað 4114 sinnum


Ég notaði þessa í ca. 15 ár, þá hætti vinstri takkinn að virka.
Tel það bara mjög góða endingu. :megasmile


P4 @ 1,5 GHz | Msi 845 Pro Socket 423 | 2x256Mb og 1x512Mb@ 133MHz | Nvidia GeForce4 MX 420 64 MB | Samsung SP1614N| Sennheiser HD430 | Logitech Cordless Desktop Pro og Mouse Man|Win XP Pro |Sampo 19" |


netkaffi
</Snillingur>
Póstar: 1007
Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf netkaffi » Sun 11. Okt 2020 18:25





einarn
Gúrú
Póstar: 542
Skráði sig: Mán 15. Mar 2010 06:06
Reputation: 25
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf einarn » Sun 11. Okt 2020 18:54

gotit23 skrifaði:held að þetta kemur allt niður á meðferð á búnaði.
hef sjálfur ekki upplífað neitt slæmt á þeimn mýsum sem ég hef keypt á siðustu árum.

u get what u pay for?


Reyndar ekki með clickið. Logi eru dáldið nískir á switchana sem þeir nota í nýjju mýsnar sínar.



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf appel » Sun 11. Okt 2020 19:59

GuðjónR skrifaði:
appel skrifaði:Ég er að verða nokkuð reiður yfir þessum líftíma á tölvumúsum.

Er búinn að vera með 4 mýs á síðustu 4 árum og þær annaðhvort byrja að bila þannig að músahnapparnir virka ekki eða að gúmmíð á þeim byrjar að detta af.

Tvær logitech mx400 eru farnar í ruslið.
Gúmmíð er að detta af steelseries rival 310.
Og ein razer basilisk er að hætta að virka, miðjuhnappurinn farinn og gúmmíð að losna af.

Ég bara skil þetta ekki. Tölvumýs eru nú ekki beinlínis flóknar. Hér áður fyrr þá notaði maður tölvumús í kannski 5-6 ár.


Ég er með Steelseries Rival 310 og gúmmíið dettur af, kiddi er með Logitech Lighspeed G502 og G903 og báðar hættar að virka.


Fyndið, er með sömu mús og gúmmíið á hægri hliðinni er farið af.

Þetta er bara hönnunargalli á þessu drasli. Hefur ekkert með það að gera hvernig maður fer með músina.


*-*

Skjámynd

Zorglub
spjallið.is
Póstar: 415
Skráði sig: Mið 16. Jan 2008 12:42
Reputation: 41
Staðsetning: Nokkuð góð!
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf Zorglub » Sun 11. Okt 2020 20:54

Þetta er nú ekki sérlega flókið hvort sem við tölum um mýs eða eitthvað annað, ef dótið endist skemur þarftu oftar að kaupa nýtt. Er ekki viðskiptasiðferði nútímans frábært alveg.


Gigabyte Z790 Aorus Master | I9 14900K | Corsair Vengeance 64GB | Asus TUF 3080 OC | Samsung 990 Pro | Corsair AX 860i | Noctua NH-D15

Skjámynd

GullMoli
Stjórnandi
Póstar: 2464
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 212
Staðsetning: NGC 3314.
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf GullMoli » Mán 12. Okt 2020 08:48

Ég er ennþá að nota fyrstu músina mína, MX510, keypt í byrjun árs 2005. Virkar merkilega vel.
Síðast breytt af GullMoli á Mán 12. Okt 2020 09:58, breytt samtals 1 sinni.


Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7053
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1000
Staða: Tengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf rapport » Mán 12. Okt 2020 11:15

Keypti FUNC mús fyrir löngu löngu bæði í vinnuna og heima... loving it...




kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 683
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf kjartanbj » Mán 12. Okt 2020 13:17

appel skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
appel skrifaði:Ég er að verða nokkuð reiður yfir þessum líftíma á tölvumúsum.

Er búinn að vera með 4 mýs á síðustu 4 árum og þær annaðhvort byrja að bila þannig að músahnapparnir virka ekki eða að gúmmíð á þeim byrjar að detta af.

Tvær logitech mx400 eru farnar í ruslið.
Gúmmíð er að detta af steelseries rival 310.
Og ein razer basilisk er að hætta að virka, miðjuhnappurinn farinn og gúmmíð að losna af.

Ég bara skil þetta ekki. Tölvumýs eru nú ekki beinlínis flóknar. Hér áður fyrr þá notaði maður tölvumús í kannski 5-6 ár.


Ég er með Steelseries Rival 310 og gúmmíið dettur af, kiddi er með Logitech Lighspeed G502 og G903 og báðar hættar að virka.


Fyndið, er með sömu mús og gúmmíið á hægri hliðinni er farið af.

Þetta er bara hönnunargalli á þessu drasli. Hefur ekkert með það að gera hvernig maður fer með músina.



Rival 310 hér 3-4 ára gömul ennþá Rock solid



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16265
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Líftími tölvumúsa

Pósturaf GuðjónR » Mán 12. Okt 2020 14:58

Kannast einhver við drag&drop vesen með Logitech G502 Lightspeed?
Er með eina sem er ekki orðin ársgömul og hún er nýbyrjuð á því að „sleppa“ glugganum sem ég er að draga yfir skjáinn þrátt fyrir að ég haldi vinstri takkanum niðri.
Þarf líka stundum að klikka nokkrum sinnum á + í Chrome til að opna nýjan glugga, eins og takkinn respondi ekki.
Þetta er ekki constant en ferlega pirrandi þegar það gerist. Tengist ekki software því það skipir ekki máli á hvaða tölva er notuð þegar þetta byrjar.