Síða 1 af 1

USB-C dockur

Sent: Fim 25. Jún 2020 09:50
af Spudi
Daginn,

Er einhver með reynslu af góðri USB-C docku sem virkar á margar fartölvur? HP, Dell og IBM eru að selja svona dockur en þær virka ekki endilega á flestar fartölvur en svo eru aðrir framleiðendur og mikið úrval þar. Það væri gaman að heyra ef þið hafið prófað einhverjar sem hafa komið vel út og prófað á á nokkrum fartölvum.

Re: USB-C dockur

Sent: Fim 25. Jún 2020 21:10
af jonsig
Icybox er yfirleitt gott stuff 'computer.is'. Líka orico, kísildalur var með það.

Re: USB-C dockur

Sent: Fim 25. Jún 2020 21:23
af worghal
https://verslun.origo.is/Tolvur-og-skja ... 644.action
þessi á að virka með öllu, hef prufað lenovo, dell, apple og android síma, meira að segja síminn fær mús, lyklaborð og mig minnir net :lol:



ætla ekki að lofa neinu en þessi ætti að virka en hleður ekki.
https://verslun.origo.is/Tolvur-og-skja ... 914.action

Re: USB-C dockur

Sent: Fim 25. Jún 2020 21:50
af Viktor
Þessi virkar fínt á Lenovo og Mac. Getur tengt hleðslutæki, skjá, mús og lyklaborð.

https://macland.is/product/satechi-slim ... dapter-v2/

Re: USB-C dockur

Sent: Fös 26. Jún 2020 08:46
af dabbihall
ég er að nota þessa hérna heima : https://vefverslun.advania.is/vara?ProductID=452-BCYH og virkar mjög vel, hef notað hana með tp t470 tölvu, hleður og alles í gegnum usb-c tengið, hef einnig tengt yoga vél við hana, og einnig optiplex 7040 með usb3 dongleinum. virkar allt saman mjög vel.

vinnan notar þessar https://verslun.origo.is/Tolvur-og-skja ... 644.action og virkar mjög vel, erum með lenovo og mac vélar.

Re: USB-C dockur

Sent: Lau 27. Jún 2020 10:40
af rapport
Hvaða kröfur er eðlilegt að gera?

USB Hleðslu og hvernig er það með nýtingu á skjákorti o.þ.h. í vélinni í gegnum svona dokkur?

Hvaða MAC adressa kemur upp, er það vélarinnar eða er USB netkort í dokkunni?

Re: USB-C dockur

Sent: Lau 27. Jún 2020 11:26
af Revenant
USB-C dokkur eins og Dell D6000 (sem er með DisplayLink, ekki thunderbolt) þjappa video signalinu áður en það er sent frá tölvunni til að spara bandvídd.
Það þýðir að í hærri upplausnum (t.d. >=1440p) þá getur bæði komið "lagg" og/eða þjöppunarartifacts við ákveðnar ástæður (t.d. við aukið CPU álag eða þegar maður er með svartan bakgrunn og hvítan texta).

Í tilfelli D6000 (sem ég er með í vinnunni) þá skilar MAC addressan sér í gegnum dokkuna frá tölvunni en það er mismunandi hvort dokkur styðji "MAC address pass-through".

Re: USB-C dockur

Sent: Lau 27. Jún 2020 11:46
af rapport
Revenant skrifaði:USB-C dokkur eins og Dell D6000 (sem er með DisplayLink, ekki thunderbolt) þjappa video signalinu áður en það er sent frá tölvunni til að spara bandvídd.
Það þýðir að í hærri upplausnum (t.d. >=1440p) þá getur bæði komið "lagg" og/eða þjöppunarartifacts við ákveðnar ástæður (t.d. við aukið CPU álag eða þegar maður er með svartan bakgrunn og hvítan texta).

Í tilfelli D6000 (sem ég er með í vinnunni) þá skilar MAC addressan sér í gegnum dokkuna frá tölvunni en það er mismunandi hvort dokkur styðji "MAC address pass-through".


Er líka með þessa og fann enga leið til að keyra tvo 2560x1440 skjái með henni, hugsanlega því ég var með outdated HDMI snúru.

Er ekki hrifinn af þessum útaf því veseni