Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4951
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 864
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf jonsig » Sun 24. Maí 2020 23:04

Sælir,
Ég var að pæla að kaupa aðra tölvu til að nota í folding, og er að skoða örgjörva úrvalið. Ég viðurkenni að ég keypti mér síðast 3900x, þá AMD í fyrsta skipti síðan 200X og er ég frekar sáttur fyrir utan þessa helvítins PGA pinna alltaf á amd örgjörvum. En ég var að pæla í 8 kjarna örgjörva í folding og eitthvað general use. Að vana athuga ég intel, og bjóst ég við einhverju svari við ryzen 3000. Eina sem ég sé er að 10700k er með lægra base clock en mikið ódýrari 3800x. intelinn er auglýstur sem 5.1GHz þá boost tíðni sem þessi lína virðist ekki getað haldið uppi án þess að sjóðhitna á sekúntunni. Og með nýtt móðurborðs platform til höndla gríðarlega orkuþörf á 14nm hönnuninni.

Pointið er að ég var að vonast til að kaupa eitthvað betra midrange, en ekki eins árs gamla AMD hönnun á fullu verði. Maður var að vonast til að kaupa 8kjarna örgjörva á einhverju meira mainstream verði.

darkppl
Gúrú
Póstar: 543
Skráði sig: Mán 12. Júl 2010 21:40
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf darkppl » Sun 24. Maí 2020 23:10

Það sem ég er búinn að lesa mér um þetta þá er staðan svona
Bara spila tölvuleiki og ekkert annað > Intel
Synthetic benchmarks og örlítið verra gaming perf(ekki mikið samt) > AMD
Svo má ekki gleyma að það er svakalega mikið vesen akkúrat núna á nýju intel móðurborðunum ss óstöðuleiki og fleira það á eftir að lagast en þetta er farið að lýta út eins og ryzen 1xxx serían þar sem hún var svo ný að þar voru þeir að uppfæra biosana oft á dag sem er núna að gerast með intel.

atm myndi ég býða ef þú ert með 3900x þá er það geggjaður örgjörfi.

I7-8700K|Corsair H-150i|Asus Maximus X Hero (Wifi) |32GB G.Skill Tridend Z RGB|GTX 1080ti |
Coolermaster Mastercase 5|

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4951
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 864
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf jonsig » Sun 24. Maí 2020 23:19

darkppl skrifaði:Það sem ég er búinn að lesa mér um þetta þá er staðan svona
Bara spila tölvuleiki og ekkert annað > Intel
Synthetic benchmarks og örlítið verra gaming perf(ekki mikið samt) > AMD
Svo má ekki gleyma að það er svakalega mikið vesen akkúrat núna á nýju intel móðurborðunum ss óstöðuleiki og fleira það á eftir að lagast en þetta er farið að lýta út eins og ryzen 1xxx serían þar sem hún var svo ný að þar voru þeir að uppfæra biosana oft á dag sem er núna að gerast með intel.

atm myndi ég býða ef þú ert með 3900x þá er það geggjaður örgjörfi.

Já takk fyrir góð svör, ég ætlaði mér að hafa aðra tölvu í þetta folding dæmi. Var að vonast til að sjá eitthvað skemmtilegt 8 kjarna, en klárlega ætla intel að púlla þetta á marketing.. einhverjar turbo boost tíðnir sem haldast ekki uppi að einhverju viti þótt dótið sé á vatnskælingu. Manni datt svosem í hug að kaupa bara 3950x í aðal tölvuna og hafa 3900x að folda. En það er kannski too much fyrir einhvern meðal dúdda :)

Dóri S.
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
Reputation: 72
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf Dóri S. » Sun 24. Maí 2020 23:43

jonsig skrifaði:

"Þetta folding dæmi" ertu að tala um "Folding@home" þar sem maður lánar tölvuna sína í reikniformúlur fyrir vísindafólk? :-k

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4951
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 864
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf jonsig » Mán 25. Maí 2020 00:05

Já.. keypti tvö gtx1080ti á kúk og kanil á ebay og ætla hafa þanning dedicated tölvu bara í gangi 24/7 niðrí geymslu. Það koma þung cpu tasks á milli sem hægt er að sleppa, en 8kjarni ætti að ráða við það á skynsamlegum tíma og tefja ekki úrvinnslu quoue'ið

Dóri S.
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
Reputation: 72
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf Dóri S. » Mán 25. Maí 2020 00:24

Frábært. En hvað borgar maður fyrir 1080ti á ebay? Og er ekkert riskí að versla svona hluti þar?

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4951
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 864
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf jonsig » Mán 25. Maí 2020 10:04

Dóri S. skrifaði:Frábært. En hvað borgar maður fyrir 1080ti á ebay? Og er ekkert riskí að versla svona hluti þar?

Ég þurfti svosem þrjár tilraunir :) fékk þau eitthvað aðeins yfir 50k innflutt. Verst að þau eru ekki í stíl. Ein salan var af hijaced ebay account, með seller með gott repp. En svo kom bara message frá ebay að ég fengi endurgreitt, og gerðist það daginn eftir.

Annars er ég búinn að kaupa 3x vega 64 líka. Og 1000w aflgjafa frá Bequiet!. Ekkert ves á neinu af þessu, bara setja nýja thermal pad og hreinsa kortin.
Síðast breytt af jonsig á Mán 25. Maí 2020 10:05, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16264
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf GuðjónR » Mán 25. Maí 2020 10:22

Ég er alltaf spenntur fyrir nýjungum, færi i 10 kynslóð ef ég væri að setja saman tölvu í dag.
Finnst samt eins og 10 kynslóð sé í raun yfirspennt 9 kynslóð miðað við orkunotkun og hitatölur og lítið hraðaboost.
Ætli næsta kick verði ekki þegar Intel fer niður fyrir 14nm?

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4951
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 864
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf jonsig » Mán 25. Maí 2020 10:58

GuðjónR skrifaði:Ég er alltaf spenntur fyrir nýjungum, færi i 10 kynslóð ef ég væri að setja saman tölvu í dag.
Finnst samt eins og 10 kynslóð sé í raun yfirspennt 9 kynslóð miðað við orkunotkun og hitatölur og lítið hraðaboost.
Ætli næsta kick verði ekki þegar Intel fer niður fyrir 14nm?

Af hverju setja saman build í dag með PCI-e 3.2? Og þessi 5Ghz sem þú átt aldrei eftir að sjá útaf thermal throttli. Og eld gamla value ram 2400mhz hjá mér er ekki langt frá því að cappa hraðaspekkinn á 2020 árgerð örgjörvum....Hugsa að ég færi bara í 9th gen ef verðin á þessu yfir samkeppnishæf við AMD
Síðast breytt af jonsig á Mán 25. Maí 2020 11:08, breytt samtals 2 sinnum.

Dóri S.
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
Reputation: 72
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf Dóri S. » Mán 25. Maí 2020 11:27

jonsig skrifaði:
Dóri S. skrifaði:Frábært. En hvað borgar maður fyrir 1080ti á ebay? Og er ekkert riskí að versla svona hluti þar?

Ég þurfti svosem þrjár tilraunir :) fékk þau eitthvað aðeins yfir 50k innflutt. Verst að þau eru ekki í stíl. Ein salan var af hijaced ebay account, með seller með gott repp. En svo kom bara message frá ebay að ég fengi endurgreitt, og gerðist það daginn eftir.

Annars er ég búinn að kaupa 3x vega 64 líka. Og 1000w aflgjafa frá Bequiet!. Ekkert ves á neinu af þessu, bara setja nýja thermal pad og hreinsa kortin.

Snilld þarf að skoða það fyrir næsta project. :) En ef þú endar á því að nota ekki lottó 1070ti kortið í neitt máttu endilega láta mig vita, langar í annað svoleiðis mini kort, væri vel settur með tvö svoleiðis for now. ;)

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4951
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 864
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf jonsig » Mán 25. Maí 2020 11:30

Dóri S. skrifaði:Snilld þarf að skoða það fyrir næsta project. :) En ef þú endar á því að nota ekki lottó 1070ti kortið í neitt máttu endilega láta mig vita, langar í annað svoleiðis mini kort, væri vel settur með tvö svoleiðis for now. ;)

Ég var með mini útgáfuna, held að þú sért betur settur án þessa helvítins korts :)

Dóri S.
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
Reputation: 72
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf Dóri S. » Mán 25. Maí 2020 11:38

jonsig skrifaði:
Dóri S. skrifaði:Snilld þarf að skoða það fyrir næsta project. :) En ef þú endar á því að nota ekki lottó 1070ti kortið í neitt máttu endilega láta mig vita, langar í annað svoleiðis mini kort, væri vel settur með tvö svoleiðis for now. ;)

Ég var með mini útgáfuna, held að þú sért betur settur án þessa helvítins korts :)

Afhverju? Var þitt lélegt?

nonesenze
Kerfisstjóri
Póstar: 1223
Skráði sig: Fim 10. Des 2009 17:06
Reputation: 99
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf nonesenze » Mán 25. Maí 2020 12:28

ég hefði endað í 0.68% bottleneck hefði ég náð einu svona 1070ti
Síðast breytt af nonesenze á Mán 25. Maí 2020 12:28, breytt samtals 1 sinni.

CPU: Intel i9-14900KS
Móðurborð: Asus z790 apex encore
Minni: G.skill 2x16gb 7600mhz cl36
Skjákort: RTX 4090 rog strix
Turn psu: lian li o11d xl rog, Bequiet straight 1200w13xQL120
Kæling: EK CR360 direct die AIO
SSD: Samsung SSD 980 PRO 1TB
HDD: WD 12TB
Skjár: asus pg32uqr
Lyklaborð Mús heyrnatól : Corsair k100 rgb, corsair Virtuos

Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3071
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 42
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf beatmaster » Mán 25. Maí 2020 12:53

Ætli þetta verði ekki bestu mid-range 8 core örgjörvarnir AMD 3750X og 3850X

https://www.tomshardware.com/news/amd-r ... 50x-rumors

Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.

Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1562
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 129
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf audiophile » Mán 25. Maí 2020 13:04

i5-10600K virðist vera að jákvæða dóma vegna hversu nálægt hann er 9900K, 10700K og 10900K í tölvuleikjum en á töluvert lægra verði. En fyrir alla vinnslu er AMD með yfirhöndina og á lægra verði og töluvert minni orkunotkun.

Have spacesuit. Will travel.

Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf kiddi » Mán 25. Maí 2020 14:12

Verandi með 8700K og 9900K vélar í dag þá heillar 10x línan mig nákvæmlega ekki neitt - ef ég þyrfti að uppfæra í dag þá hugsa ég að ég færi í AMD, en ég finn enga þörf til að uppfæra í bili, skoða næstu kynslóð kannski :) Í viðhengi sýni ég benchmarks úr því forriti sem ég hef lifibrauð af, og þar er munurinn hvergi nærri nógu mikill til að réttlæta að bruðla í nýjan CPU og móðurborð. Ég held að stærsta hraðastökkið sem maður getur raunverulega gert í dag, er að losa sig við alla spinning harða diska og skipta alveg yfir í SSD/m2 með öll gögn sem eru geymd innan tölvukassans.
Viðhengi
puget.png
puget.png (223.8 KiB) Skoðað 6600 sinnum

Skjámynd

Templar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 982
Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
Reputation: 366
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf Templar » Mán 25. Maí 2020 16:32

Algert vindhögg 10th gen frá Intel. Gaman að fá eitthvað nýtt en þetta er orðin mjög þungur róður hjá Intel.
Orðið á götunni er að Ryzen 3600, 3800, 3900 komi í XT útgáfu í júní með 200-300Mhz auka block og betra boost, gerist það verður þetta strembið ár fyrir Intel og líklegt að við sjáum verðlækkanir strax um haustið.

--
|| 14900KS - Z790 - DDR 8000 - 4090 - ||

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4951
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 864
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf jonsig » Mán 25. Maí 2020 16:38

Hinsvegar vonast ég til að intel geri góða hluti með nýja Intel Xe , svo nvida fái einhverja samkeppni.

Skjámynd

Templar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 982
Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
Reputation: 366
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf Templar » Mán 25. Maí 2020 16:43

Og AMD, Nvidia hafa setið þarna á toppnum áreynslulaust núna í mörg ár.

--
|| 14900KS - Z790 - DDR 8000 - 4090 - ||

Dr3dinn
Tölvutryllir
Póstar: 613
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 21:44
Reputation: 95
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf Dr3dinn » Þri 26. Maí 2020 08:41

Óháð því hvað örrarnir eru mikil vonbrigði (big time) þá er 2.5gb standard netsjpald a móðurborðum og hraðara wifi áhugavert.

Ef intel fer að setja "standard" sem 2.5gb á venjulegt móðurborð þá þarf svolítið mikið að breytast í allir í 1gb væðingu heimsins.

Ekki að það væri mikið mál hérlendis að breyta standard 1000mb í hærra... aðrar sfp breytur og endabúnaður hjá mílu og gagnaveitunni... en innanhús lagnir gætu orðið vandamálið. (og swissar)

Fannst þetta eiginlega stærsta "new" fréttin með þessa gömlu örgjörfa :)
Síðast breytt af Dr3dinn á Þri 26. Maí 2020 10:00, breytt samtals 1 sinni.

Vélar
Leikja:Corsair Carbide 400C Clear - AMD 7800X3D - ASROCK b650 lightning - Samsung 990 1tb, Sabrent m.2 1TB, s 32GB(2x16 GB) 6000 MHz - ASRock Radeon RX 6900XT Phantom Gaming D 16GB -1x Odyssey G7 32, 240hz, 1ms, QHD 1440p

Vinnuvélin:Corsair Carbide 275R White - AMX 3900x -Samsung 1TB Pro-32GB (2x16 GB) 3400 MHz Corsair -2060 MSI Ventus 6 GB

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4951
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 864
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf jonsig » Þri 26. Maí 2020 10:23

Dr3dinn skrifaði:Óháð því hvað örrarnir eru mikil vonbrigði (big time) þá er 2.5gb standard netsjpald a móðurborðum og hraðara wifi áhugavert.

Ef intel fer að setja "standard" sem 2.5gb á venjulegt móðurborð þá þarf svolítið mikið að breytast í allir í 1gb væðingu heimsins.

Ekki að það væri mikið mál hérlendis að breyta standard 1000mb í hærra... aðrar sfp breytur og endabúnaður hjá mílu og gagnaveitunni... en innanhús lagnir gætu orðið vandamálið. (og swissar)

Fannst þetta eiginlega stærsta "new" fréttin með þessa gömlu örgjörfa :)

Ég hinsvegar hef ekki komist nálægt því að cappa 1Gbps á Wan svo ég ætla ekki að stressa mig. Hef meiri áhyggjur af pci-e 3.2 ef maður ætlar að maxa hörðu diskana eða splæsa í rtx2080 sli
Síðast breytt af jonsig á Þri 26. Maí 2020 10:23, breytt samtals 1 sinni.

Dr3dinn
Tölvutryllir
Póstar: 613
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 21:44
Reputation: 95
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf Dr3dinn » Þri 26. Maí 2020 14:39

jonsig skrifaði:
Dr3dinn skrifaði:Óháð því hvað örrarnir eru mikil vonbrigði (big time) þá er 2.5gb standard netsjpald a móðurborðum og hraðara wifi áhugavert.

Ef intel fer að setja "standard" sem 2.5gb á venjulegt móðurborð þá þarf svolítið mikið að breytast í allir í 1gb væðingu heimsins.

Ekki að það væri mikið mál hérlendis að breyta standard 1000mb í hærra... aðrar sfp breytur og endabúnaður hjá mílu og gagnaveitunni... en innanhús lagnir gætu orðið vandamálið. (og swissar)

Fannst þetta eiginlega stærsta "new" fréttin með þessa gömlu örgjörfa :)

Ég hinsvegar hef ekki komist nálægt því að cappa 1Gbps á Wan svo ég ætla ekki að stressa mig. Hef meiri áhyggjur af pci-e 3.2 ef maður ætlar að maxa hörðu diskana eða splæsa í rtx2080 sli

Intel eru sjálfir að hanna pc.e 4 m.2 diska svo þeir hljóta að fara supporta það..... eða vonum það....

Vélar
Leikja:Corsair Carbide 400C Clear - AMD 7800X3D - ASROCK b650 lightning - Samsung 990 1tb, Sabrent m.2 1TB, s 32GB(2x16 GB) 6000 MHz - ASRock Radeon RX 6900XT Phantom Gaming D 16GB -1x Odyssey G7 32, 240hz, 1ms, QHD 1440p

Vinnuvélin:Corsair Carbide 275R White - AMX 3900x -Samsung 1TB Pro-32GB (2x16 GB) 3400 MHz Corsair -2060 MSI Ventus 6 GB

Gormur11
Fiktari
Póstar: 96
Skráði sig: Lau 17. Des 2005 16:06
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf Gormur11 » Þri 26. Maí 2020 16:46

Nú er ég að spá í að fara að uppfæra hjá mér tölvuna, er með i5-6600K í dag en var einmitt að spá í að fara í I5-10600K þegar hann kemur. Ráðið þið mér frá því að gera það og fara frekar í 9th gen örgjörva?

Kv,
G.

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4951
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 864
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf jonsig » Þri 26. Maí 2020 20:27

Gormur11 skrifaði:Nú er ég að spá í að fara að uppfæra hjá mér tölvuna, er með i5-6600K í dag en var einmitt að spá í að fara í I5-10600K þegar hann kemur. Ráðið þið mér frá því að gera það og fara frekar í 9th gen örgjörva?

Kv,
G.

Ég skil ekki af hverju þú íhugar ekki AMD fyrir þennan klassa.

Gormur11
Fiktari
Póstar: 96
Skráði sig: Lau 17. Des 2005 16:06
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Er einhver spenntur fyrir Intel 10th gen ?

Pósturaf Gormur11 » Mið 27. Maí 2020 10:14

Ég er svosem ekkert ákveðinn í Intel frekar en Amd, hverju mælir þú með í staðinn fyrir I5-10600k?

Í eldgamladaga lenti ég í leiðindarveseni með Amd en það eru líklega einhverjir fortíðardraugar sem gerðu það að verkum að ég hef frekar horft til Intel.