Tölvan frís og restartar uppúr þurru


Höfundur
halli1987
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Mán 16. Mar 2015 10:41
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf halli1987 » Fös 20. Des 2019 23:33

Góðan dag. Var að uppfæra tölvuna aðeins um daginn og eftir að ég var búinn að setja saman byrjaði tölvan að frjósa öðru hvoru. Nú var ég að skipta um tölvukassa og setja allt inn í hann og vandamálið færist í aukana. Þannig er að þegar ég ræsi tölvuna þá nær hún að starta windows( næstum allataf) en eftir nokkrar min frís hú algjörlega og ekkert hægt að gera nema drepa á henni alveg. Stundum kemur svartur skjá en ekki alltaf. Er búinn að reyna að fara yfir búnaðinn en finn ekkert sem gæti verið að. Er búinn að athuga hvort þetta gæti verið stýrikerfisdiskurinn, tók hann úr og reyndi að setja upp windows af usb lykli á annan ssd disk en tölvan kemst aldrei í gengnum installið án þess að drepa á sér og restarta. Er búinn að taka svissa ram og prufa að starta með bara eina ram stöng í einu en sama vandamál er. Er búinn að taka gpu úr og setja í aftur og athuga plug. Er með nýjasta driver fyrir skjákortið installaðan. Hitastigið er eðlilegt og ný búið að skipta um kælikrem á örgjörfa og skjákorti

Þetta er amd 3700x og asus tuf gaming x570 móðurborð. Gtx 1070 founders edition.



Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2699
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 151
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf SolidFeather » Fös 20. Des 2019 23:40

Hvert er hitastigið á CPU?




Sporður
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Mán 22. Okt 2018 09:06
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf Sporður » Fös 20. Des 2019 23:44

Getur verið að stýrikerfið sé vandamálið?

Gölluð ISO skrá eða eitthvað álíka?

Gætir prufað að sækja aðra iso skrá frá windows, eða bara einhverja útgáfu af linux og prufa að keyra það af usb drifi.

Þú virðist allavega hafa villurprófað allt sem manni myndi detta í hug.



Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3357
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf mercury » Fös 20. Des 2019 23:57

fyrsta sem ég myndi athuga er bios. gæti verið vandamál með bios>memory support.. henda inn nýjasta bios ef þú ert ekki búinn að því.




Höfundur
halli1987
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Mán 16. Mar 2015 10:41
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf halli1987 » Lau 21. Des 2019 00:11

SolidFeather skrifaði:Hvert er hitastigið á CPU?

Hitastigið er í idle um svona 35 gráður og í 100% um 65 gráður. er með hann vatnskældann




Höfundur
halli1987
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Mán 16. Mar 2015 10:41
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf halli1987 » Lau 21. Des 2019 00:15

Sporður skrifaði:Getur verið að stýrikerfið sé vandamálið?

Gölluð ISO skrá eða eitthvað álíka?

Gætir prufað að sækja aðra iso skrá frá windows, eða bara einhverja útgáfu af linux og prufa að keyra það af usb drifi.

Þú virðist allavega hafa villurprófað allt sem manni myndi detta í hug.

Grunaði að mað væri málið eða ssd diskurinn með stýrikerfinu væri að klikka. Er búinn að taka hann úr og er að reyna að setja upp windows á annan disk en næ aldrei að klára, drepur alltaf á tölvunni




Höfundur
halli1987
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Mán 16. Mar 2015 10:41
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf halli1987 » Lau 21. Des 2019 00:19

mercury skrifaði:fyrsta sem ég myndi athuga er bios. gæti verið vandamál með bios>memory support.. henda inn nýjasta bios ef þú ert ekki búinn að því.

Er með nokkuð gömul minni keipti þau um 2016 gæti verið málið . Er með bios sem fylgdi með borðinu, hef ekkert uppfært hann



Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3357
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf mercury » Lau 21. Des 2019 00:26

hef verið að lenda í veseni með reyndar gigabyte borð og z390 borð undanfarið. Þar sem ég næ ekki einusinni að setja upp windows þar sem vélin frýs. Bios uppfærsla hefur alltaf lagað það vesen. Allt annað setup sem þú ert með en það er aldrei að vita.




Höfundur
halli1987
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Mán 16. Mar 2015 10:41
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf halli1987 » Lau 21. Des 2019 00:28

mercury skrifaði:hef verið að lenda í veseni með reyndar gigabyte borð og z390 borð undanfarið. Þar sem ég næ ekki einusinni að setja upp windows þar sem vélin frýs. Bios uppfærsla hefur alltaf lagað það vesen. Allt annað setup sem þú ert með en það er aldrei að vita.

Gott að vita ætla að uppfæra bios á morgun vona að það leysi vandann




Höfundur
halli1987
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Mán 16. Mar 2015 10:41
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: (fixed)Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf halli1987 » Sun 22. Des 2019 01:41

Eftir að ég uppfærði bios virðist allt virka eins og skildi. frekar skrítið að borðunum sé shippað út með fucked bios, en svona gerist bara.



Skjámynd

HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf HalistaX » Sun 22. Des 2019 02:02

Sporður skrifaði:Getur verið að stýrikerfið sé vandamálið?

Gölluð ISO skrá eða eitthvað álíka?

Mér finnst það nefninlega svo magnað að ef download'ið corrupt'ast á .Iso skránni sem þú þarft til þess að install'a Windows, þá geturu samt alveg install'að af said .Iso og í staðinn færðu bara fucked up Windows með ekkert nema villumeldingum... Maður hefði haldið að ef eitthvað kæmi fyrir skránna sjálfa þá ætti maður ekkert að geta install'að með henni, en nei, getur það alveg, tekur styttri tíma þessvegna, og þú fokkar tölvuni þinni upp með því!

Hef lent í þessu sjálfur! Heavy weird!


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3357
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: (fixed)Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf mercury » Sun 22. Des 2019 02:48

halli1987 skrifaði:Eftir að ég uppfærði bios virðist allt virka eins og skildi. frekar skrítið að borðunum sé shippað út með fucked bios, en svona gerist bara.

Já þetta er mjög sérstakt. En flott að þetta var ekki meira vesen en þetta. \:D/




Sinnumtveir
spjallið.is
Póstar: 473
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 149
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: (fixed)Tölvan frís og restartar uppúr þurru

Pósturaf Sinnumtveir » Mán 23. Des 2019 01:08

mercury skrifaði:
halli1987 skrifaði:Eftir að ég uppfærði bios virðist allt virka eins og skildi. frekar skrítið að borðunum sé shippað út með fucked bios, en svona gerist bara.

Já þetta er mjög sérstakt. En flott að þetta var ekki meira vesen en þetta. \:D/


Reyndar ekki svo mjög sérstakt, þegar um nýja seríu af borðum, chipset og örgjörfum er að ræða. Alls ekki óalgengt að í kjölfarið finnist vandamál sem ekki höfðu komið fram í prófunum framleiðanda. Ætla má að stór hluti x570 móðurborða sem komin eru í notkun í dag hafi farið frá verksmiðju með "fyrstadagsbios".