Síða 1 af 1

Ný Custom Tölva - Ráðleggingar

Sent: Sun 10. Feb 2019 14:23
af elvarthor
Hæ,

Er að setja saman tölvu, ætla að kaup hlutina frá USA, en kaupa svo kassa hérna heima og setja saman.


Hér fyrir neðan er listinn sem ég er að spá í að kaupa. Einhverjar athugasemdir? Ætti að kaup betra af einhverju? Er ég að kaupa óþarfa gott af einhverju?

Er í dag bara að spila pubg og cs go, en vil auðvitað getað runnað nýjustu leikina og ekki þurfa að uppfæra eftir 2 ár

Tek öllu. Ráðum og tips :)


Link

https://pcpartpicker.com/user/elvarthor ... ved/KXX8YJ

Re: Ný Custom Tölva - Ráðleggingar

Sent: Sun 10. Feb 2019 23:14
af Benzmann
Passaðu að aflgjafinn sé 230v.

Þeir í amerikanistan nota 110v

Re: Ný Custom Tölva - Ráðleggingar

Sent: Mán 11. Feb 2019 01:05
af andriki
Benzmann skrifaði:Passaðu að aflgjafinn sé 230v.

Þeir í amerikanistan nota 110v

Er nokkuð viss að eiginlegar allir main stream aflgjafar supporti bæði 110v og 240v matt endilega leiðretta mig ef eg hef rangt fyrir mer

Re: Ný Custom Tölva - Ráðleggingar

Sent: Mán 11. Feb 2019 10:04
af Klemmi
Fer allt eftir því hverju þú ert að leita :)

Hérna er sambærileg vél nema $150 ódýrari. Ég vel íhlutina með hliðsjón af því að þú ert að kaupa þetta í USA, vel því ódýrari en traustari kælingu, þar sem það væri lítið gaman að reyna að fá vatnskælinguna í ábyrgð ef hún klikkar.

Að sama skapi vel ég EVGA skjákort, ekki því þau eru endilega traustari heldur en Gigabyte, heldur því af minni reynslu er auðveldara að sækja ábyrgðina hér í Evrópu. Þarft bara að muna að gera aðgang hjá EVGA og registera kortið við hann.

Vel mjög vandaðan 550W Seasonic aflgjafa, þarft ekki 750W og Seasonic er að mínu mati toppurinn í aflgjöfum.

Eiginlega no-brainer að fara í m.2 SSD disk í stað SATA disk líkt og þú valdir. Það er þá bara lítið spjald sem fer beint á móðurborðið í stað þess að þurfa sérstaklega að fá SATA og straumsnúru. Einnig ætti að vera auðveldara að sækja Intel ábyrgð heldur en Samsung, auk þess sem hann er hraðari og ogguponsu stærri ;)

Vel svo ódýrara móðurborð, þar sem ég sé ekki ástæðu til að fara í dýrara. Glæsilegt borð :)

Eina sem ég er iffy varðandi listann hjá mér er vinnsluminnið, þ.e. það getur alltaf eitthvað bilað, en ég þekki ekki bilanatíðnina hjá G.Skill, svo kannski er öruggara að borga aðeins meira fyrir t.d. Crucial eða Corsair... ætti samt að vera í lagi.