Síða 1 af 1

Reynsla á Kísildal?

Sent: Sun 13. Jan 2019 23:01
af fjak
Sælir,

Keypti móðurborð frá Kísildal fyrir cirka 2 vikum max og keypti svo örgjörva hjá TL í dag og móðurborðið styður ekki örgjörvann, hafiði einhverja reynslu á að skila hlutum til Kísildals?

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Sun 13. Jan 2019 23:07
af halipuz1
Kísildalur > Tölvulistinn. Eina sem ég hef að segja.

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Sun 13. Jan 2019 23:09
af fjak
halipuz1 skrifaði:Kísildalur > Tölvulistinn. Eina sem ég hef að segja.

Það er fact en þeir selja ekki i5 8600k :/

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Sun 13. Jan 2019 23:11
af halipuz1
Oww :/

Hef aldrei þurft að skila neinu hjá þeim myndi ekki þekkja það, en talaðu bara við Guðbjart hann ætti að geta reddað málunum. Þeir eru yfirleitt mjög sanngjarnir.

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Sun 13. Jan 2019 23:19
af fjak
Já, reyni sem mest að versla aðeins við þá þar sem þjónustan hjá þeim er 10/10, heyri bara í þeim í fyrramálið og vona það besta :)

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Sun 13. Jan 2019 23:19
af MrIce
Ekkert nema góð viðskipti við þá félaga sl 3 ár.

Talaðu við Guðbjart eða Alla, ætti ekki að vera vandamál, ekkert nema sanngjarnir og fínir

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Sun 13. Jan 2019 23:22
af fjak
Okei það er ákveðinn léttir, var að fara búast við að eyða auka 27k~ í móðurborð í sama mánuðnum

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Mán 14. Jan 2019 01:57
af DJOli
Myndi gefa TL mínus í kladdann fyrir að spyrja ekki einusinni hvernig móðurborð þú varst að versla, upp á að vera notendavænir, og geta þá sagt þér hvort móbóið sem þú sért með myndi styðja örrann, eða ekki.

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Mán 14. Jan 2019 11:08
af Alfa
DJOli skrifaði:Myndi gefa TL mínus í kladdann fyrir að spyrja ekki einusinni hvernig móðurborð þú varst að versla, upp á að vera notendavænir, og geta þá sagt þér hvort móbóið sem þú sért með myndi styðja örrann, eða ekki.


TL just can't win with you bunch ! Nei hættu nú alveg. Persónulega myndi ég ekki nenna hlusta sölumann spyrja mig hvernig móðurborð, minni osfv ég væri með því ég myndi bara sjá hann vera reyna selja mér eitthvað meira. Kannski kúnninn hefði bara getað kynnt sér málið betur, bæði á netinu og spyrja bara sjálfur ?

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Mán 14. Jan 2019 11:32
af Mossi__
DjÓli - Ekki að ég sé sérsatklega að taka upp hanskann fyrir TL, en ég get ekki séð hvenrig þeir bera nokkra ábyrgð hér.

Hinsvegar ef OP hefði tilgreint hvaða móðurborð hann væri með og sölumaðurinn hafi selt honum rangan örgjörva þá mætti tuða yfir TL. En þá mætti í raun bara tuða yfir þeim tiltekna sölumanni fyrir hans mistök en ekki fyrirtækisins (við klaufumst öll).
Hinsvegar ef TL væri svo með múður útfrá því, þá fyrst mætti byrja að tuða yfir versluninni sjálfri.


En!

Ég er með spurningu beint Kísildal. Ég heyri alltaf að þeir séu með svo góða þjónustu. Þegar ég skoða svo vörunar og forsamsettu vélarnar vakna spurningar um gæðin.
Eru vélarnar og vörurnar frá þeim alveg solid?

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Mán 14. Jan 2019 12:22
af DJOli
Mossi__ skrifaði:DjÓli - Ekki að ég sé sérsatklega að taka upp hanskann fyrir TL, en ég get ekki séð hvernig þeir bera nokkra ábyrgð hér.

Hinsvegar ef OP hefði tilgreint hvaða móðurborð hann væri með og sölumaðurinn hafi selt honum rangan örgjörva þá mætti tuða yfir TL. En þá mætti í raun bara tuða yfir þeim tiltekna sölumanni fyrir hans mistök en ekki fyrirtækisins (við klaufumst öll).
Hinsvegar ef TL væri svo með múður útfrá því, þá fyrst mætti byrja að tuða yfir versluninni sjálfri.

[tuð]
Ég er ekki að segja þá bera ábyrgð, ég er bara að setja lítinn mínus í kladdann vegna starfsfólks TL.

Það er ekki svo flókið að spyrja kúnnann "Þetta móðurborð er fyrir socket 1150 örgjörva. Mætti ég spyrja hvernig örgjörva þú ert með?" eða "Þetta er 1151 örgjörvi. Móðurborðið sem þú ert að biðja um styður ekki örgjörvann sem þú ert með." og leyfa viðskiptavininum að spyrja í kjölfarið "Hvað þýðir styður ekki?" "Geturðu mælt með öðru?" etc.

Ég er bara að segja, fyrst þeir hjá LTT voru að gefa fyrirtækjum strik í kladdann fyrir að spyrja ekki, af hverju ættum við ekki að fara að "ranka" Íslenskum tölvuverslunum eftir þjónustu?

Góð þjónusta væri þá augljóslega niðurstaða þjálfunar yfirmanna fyrirtækis í að láta starfsmenn sína leiðbeina og hjálpa þér í að velja hlut/hluti sem passa því sem þú ert með, frekar en að reyna bara að selja þér dýra vöru sem nýtist þér ekki.
[/tuð]

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Mán 14. Jan 2019 13:47
af Alfa
Ég skil alveg hvert þú ert að fara sko, en setjum dæmið svona upp, ég bý í eyjum og ef ég panta bara á netinu frá fyrirtæki vitlaust átti þá fyrirtækið að hafa samband við mig áður en þeir sendu hlutin af stað til að kanna hvort ég hefði gert heimavinnuna mína?

Re: Reynsla á Kísildal?

Sent: Mán 14. Jan 2019 13:52
af Alfa
Mossi__ skrifaði:Ég er með spurningu beint Kísildal. Ég heyri alltaf að þeir séu með svo góða þjónustu. Þegar ég skoða svo vörunar og forsamsettu vélarnar vakna spurningar um gæðin.
Eru vélarnar og vörurnar frá þeim alveg solid?


Ég hef persónulega ekki verslað mikið við Kísildal en það er ákveðin "persónulegri viðskipti" sem kostur að versla við minni búðir en "stórar stofnanir" eins og td TL og Tölvutek engin spurning, en auðvitað gallar líka. það er kúnnans að meta hvort t.d. vörumerkin Gigabyte, MSI og Asus séu betri en t.d. Inno3D og Palit í skjákortum og þá AsRock í móðurborðum. Ég veit alveg hvað ég myndi velja en þetta er oft sama sullið bara.