Síða 1 af 1

Bæta við CPU viftu á Corsair H45 vökvakælingu

Sent: Þri 02. Okt 2018 16:10
af Bandit79
Sælir strákar
Langar að bæta við 120mm viftu framan á Corsair H45. (push-pull)
En móðurborðið er bara með 2 cpu fan tengi.
Virkar þetta rétt ef ég tengi dæluna við SYSFAN tengi (3 pinna) og hef vifturnar tengdar í CPUFAN (4 pinna) tengin upp á hraðastjórnun ? Dælan keyrir alltaf á sama hraða er það ekki ?

Er að nota MSI Z170 Tomahawk með i7 6700k cpu ef það skiptir einhverju máli.

Fyrirfram þakkir

Re: Bæta við CPU viftu á Corsair H45 vökvakælingu

Sent: Þri 02. Okt 2018 16:53
af pepsico
Settu dæluna í SYSFAN tengi og stilltu það tengi Manual á að vera alltaf í 100%. Stilltu síðan allar viftur sem kæla örgjörvann til að hlusta á CPU Temperature.

Re: Bæta við CPU viftu á Corsair H45 vökvakælingu

Sent: Þri 02. Okt 2018 16:57
af Bandit79
Talaði við hann hjá ATT og hann staðfestir þetta. Vifturnar í CPUFAN og dæluna í SYSFAN tengi. Fara svo í BIOS og stilla sysfan tengið á DC mode/100%
Keypti 2 stk Corsair ML120 með 4 pinna :) Sjáum hvað kemur út úr þessu