Síða 1 af 1

Hjálp! Boota laptop á external skjá

Sent: Mán 16. Apr 2018 15:42
af joekimboe
Sælir! Ég er í vandræðum með lenovo z50 tölvu. Það er brotinn á henni skjárinn og það sést akkurat ekkert á hann. Ég er að reyna að formatta tölvuna en þegar ég boota henni með usb kubb þá kemur bara svartur skjár.. Er eitthver leið til að geta séð boot screenið á secondary skjá ? Öll hjálp og skítkast vel þegið :D

Re: Hjálp! Boota laptop á external skjá

Sent: Mán 16. Apr 2018 16:36
af joekimboe
Hún virðist ekki sýna neina mynd á external skjánum fyrr en stýrikerfið hefur ræst sig. Er leið til að external verði default monitor ? Og sýni þar af leiðandi allt sem tölvan gerir.

Re: Hjálp! Boota laptop á external skjá

Sent: Þri 17. Apr 2018 12:29
af joekimboe
Hjááálp! Veit þetta er ekki mjög pólitískt en vonandi hefur einhver vit á þessu líka.

Re: Hjálp! Boota laptop á external skjá

Sent: Þri 17. Apr 2018 12:47
af Njall_L
Ef þú aftengir skjákapalinn fyrir innbyggða skjáinn frá móðurborðinu og tengir utanáliggjandi skjá með HDMI þá ætti myndin bara að birtast á honum þar sem tölvan finnur ekki annan skjá.

Re: Hjálp! Boota laptop á external skjá

Sent: Þri 17. Apr 2018 19:18
af afrika
Windows + P ?

Re: Hjálp! Boota laptop á external skjá

Sent: Mið 18. Apr 2018 13:28
af joekimboe
Win+p og allar skjástillingar reyndar og ekkert virkaði. Njall_L þakka þér! Það virkaði að aftengja skjáinn við móðurborð og tengja með vga. Þvílíkur meistari! Átt verðskuldað sætabrauð í kaffinu!