Síða 2 af 2

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Sun 29. Okt 2017 08:44
af stefhauk
Lendi oft í svipuðu er semsagt með kjallara íbúð og ef þvottavélin er í gangi frammi þá get ég ekki sett uppþvottavélina hjá mér í gang án þess að það slái út einnig ef þvottavélin er í gangi og mikið álag er á tölvunni hjá mér semsagt viftan alveg á fullu þá slær út orðið semí gamalt hús byggt í kringum 1970-1980 þetta er allt tengt á sömu greinina og getur verið óþolandi stundum.

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Sun 29. Okt 2017 11:38
af jonsig
Þú mátt setja 13A sjálfvar á greinina hjá þér, ef þú ert á limminu

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Mán 30. Okt 2017 05:40
af ElGorilla
Er þetta ekki vandamál sem power conditioner eða UPS myndu leysa?

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Mán 30. Okt 2017 23:21
af jonsig
ElGorilla skrifaði:Er þetta ekki vandamál sem power conditioner eða UPS myndu leysa?


Sjálfvarið kostar 800kr.
Góður upsi ,já.

En hvað meinaru með power conditioner?

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Þri 31. Okt 2017 04:31
af ElGorilla
Power conditioner er mikið notaður í hljóð og af tónlistarmönnum. Oft rack unit með lömpum að framan og power tengjum að aftan.

http://www.electricroom.com.au/wp-conte ... eter_1.jpg

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 10:29
af urban
jonsig skrifaði:það eru plebbarnir hér að ofan sem hafa eytt tíma í þetta en vita ekkert.


jonsig skrifaði:Loksins einhver sem er ekki froðuheili :)


Þarftu að vera með svona mikinn dónaskap ?

Ekkert mál að segja fólki að það hafi rangt fyrir sér, en slepptu þessum dónaskap.

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 14:21
af jonsig
urban skrifaði:
jonsig skrifaði:það eru plebbarnir hér að ofan sem hafa eytt tíma í þetta en vita ekkert.


jonsig skrifaði:Loksins einhver sem er ekki froðuheili :)


Þarftu að vera með svona mikinn dónaskap ?

Ekkert mál að segja fólki að það hafi rangt fyrir sér, en slepptu þessum dónaskap.


Ég skal setja like á athugasemdina þína þar sem ég dáist að þvílíku siðgæði sem þú býrð yfir. Sjálfhelgi, pólitískrar rétthugsunar er kostur að búa yfir í núverandi tíðaranda á samfélagsmiðlum.

Annars stend ég við þá skoðun að fólk sem veit ekki kúk um það sem það tjáir sig um sé að ráðleggja fólki hvernig á að leysa vandamál tengdu lífshættulegu rafmagni heima hjá sér .. eru annaðhvort gálaust eða froðuheilar, þó hallast ég að því síðarnefndu.

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 14:58
af ZiRiuS
Ekki sleikja á þér puttana og snerta svo strippaðan rafmagnskapal.

Sko mig, ég veit helling og er því ekki froðuheil né gálaus, haltu bara KJ!

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 15:02
af linenoise
urban skrifaði:
jonsig skrifaði:það eru plebbarnir hér að ofan sem hafa eytt tíma í þetta en vita ekkert.


jonsig skrifaði:Loksins einhver sem er ekki froðuheili :)


Þarftu að vera með svona mikinn dónaskap ?

Ekkert mál að segja fólki að það hafi rangt fyrir sér, en slepptu þessum dónaskap.


Mikið var að einhver sagði þessum dóna til syndanna. Ég er búinn að bíða eftir þessu innleggi í meira en hálft ár!

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 15:20
af jonsig
Ég er farinn að sjá mynstur hérna, alltaf sama siðferðis vinstra-liðið sem hrúgast á mig. Ykkur þætti hinsvegar leitt að heyra hvað mér er slétt sama um ykkar álit.

En skal like´a póstana ykkar, því allir eiga að fá verðlaun i ykkar heimi sama hversu mikið þeir leggja út. :lol:

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 15:30
af jonsig
OOOggg! Ég er kominn með orðið yfir ykkur...

Siðferðisvaktari/ar


En um leið vill ég þakka ykkur, án ykkar væri ég ekkert troll.

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 17:15
af ZiRiuS
Einhver verður nú að passa þessi litlu viðkvæmu hægriblóm.

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 18:43
af braudrist
Ég skilgreini mig sem fjöltengi og þessi þráður særir blygðunarkennd mína :(

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 19:16
af urban
jonsig skrifaði:
urban skrifaði:
jonsig skrifaði:það eru plebbarnir hér að ofan sem hafa eytt tíma í þetta en vita ekkert.


jonsig skrifaði:Loksins einhver sem er ekki froðuheili :)


Þarftu að vera með svona mikinn dónaskap ?

Ekkert mál að segja fólki að það hafi rangt fyrir sér, en slepptu þessum dónaskap.


Ég skal setja like á athugasemdina þína þar sem ég dáist að þvílíku siðgæði sem þú býrð yfir. Sjálfhelgi, pólitískrar rétthugsunar er kostur að búa yfir í núverandi tíðaranda á samfélagsmiðlum.

Annars stend ég við þá skoðun að fólk sem veit ekki kúk um það sem það tjáir sig um sé að ráðleggja fólki hvernig á að leysa vandamál tengdu lífshættulegu rafmagni heima hjá sér .. eru annaðhvort gálaust eða froðuheilar, þó hallast ég að því síðarnefndu.


Vel gert.

Það er semsagt pólitíks rétthugsun að vilja ekki að fólk sé með dónaskap ?

Einsog ég sagði, ekkert mál að segja að fólk hafi rangt fyrir sér, það er óþarfi að vera með dónaskapinn.

Það er nefnilega mikill munur á segja, hey þú, þetta er vitlaust, þetta virkar ekki svona, þetta virkar xxxxxx

Eða að segja, hey þú froðuheili, þetta er vitlaust hjá þér plebbinn þinn.

Ef að þú áttar þig ekki á muninum þá er eitthvað mikið að hjá þér.

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 22:57
af jonsig
Þú ættir að lýta þér nær, sjálfur ertu með plammeringar á mig núna því þú ákvaðst að móðgast fyrir hönd annarra.

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 23:06
af rbe
Ef allir eru fífl og fávitar í kringum mann er maður sjálfur mesta fíflið ?
t.d ef maður getur ekki keyrt um göturnar án þess að bölva og ragna öðrum sand og ösku.

það eru ákv félagskapur sem tekur vel og vandlega á svona "vandamálum" ?
það eru allir velkomir og vel tekið á móti manni. ekkert vinstri hægri snú þar.

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 23:26
af urban
jonsig skrifaði:Þú ættir að lýta þér nær, sjálfur ertu með plammeringar á mig núna því þú ákvaðst að móðgast fyrir hönd annarra.


Það er þetta með að vera stjórnandi, það er pínu mitt verk að "móðgast fyrir hönd annarra"

Það að þú sjáir ekki mun á því að segja fólki til eða segja fólki til með dónaskap er að mínu mati fáránlegt.

Já og hættu dónaskapnum.
Þetta er ekki beiðni, þetta er skipun, annars kommentaru bara ekki meira hérna.

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Lau 05. Maí 2018 23:58
af jonsig
Það væri þá réttast af þinni hálfu sem stjórnandi að úthluta pillum og aðvörunum á aðra sem rífa kjaft hérna á vaktinni... annars lyktar þetta huglæga mat þitt á hvað er viðeigandi og hvað ekki af tvískinnungi.

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Sun 06. Maí 2018 00:04
af ZiRiuS
Mynd

Re: Raunveruleiki Íslendings vegna fjöltengis

Sent: Sun 06. Maí 2018 00:12
af urban
jonsig skrifaði:Það væri þá réttast af þinni hálfu sem stjórnandi að úthluta pillum og aðvörunum á aðra sem rífa kjaft hérna á vaktinni... annars lyktar þetta huglæga mat þitt á hvað er viðeigandi og hvað ekki af tvískinnungi.


Já auðvitað á ég að vera duglegri við að útrýma dónaskap.
Núna var ég að segja þér að hætta honum.

Það að ég geri það ekki allstaðar, það að ég missi af einhverju, það að ég sé ekki með 100% yfirsýn á spjallborðinu gefur þér aftur á móti engan rétt á því að vera með dónaskap.

Semsagt, ekki afsaka þinn dónaskap með dónaskap annarra, það er alveg hriklega kjánalegt.
Þessi "hann byrjaði" hugsunarháttur er alveg út í hött, eitthvað sem að allir ættu að hafa vit á því að hætta einhvern tíman snemma á grunnskóla aldri.
Ef að þú vilt ekki dónaskap, þá er fyrsta hjá þér að hætta honum sjálfur.