Versla vélbúnað að utan


Höfundur
Moreno8
Nýliði
Póstar: 22
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 12:20
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Versla vélbúnað að utan

Pósturaf Moreno8 » Þri 07. Feb 2017 20:58

Sælir drengir og stúlkur.

Ég er byrjaður að gæla við að kaupa mér nýja tölvu og tími svona helst ekki að kaupa hana hérna á Íslandi.

Hinsvegar er ég alltaf tregur við að kaupa vélbúnað að utan upp á ábyrgðarmálin.

Hvaða netsíður/fyrirtæki eru öruggastar og eru einhver merki sem ég get keypt úti sem eru með umboðsaðila hér þannig að það verði ekki mikið vesen?

Finnst ég koma þessu voðalega illa frá mér. Til að einfalda þetta - Hvernig er best að snúa sér ef maður ætlar að kaupa sér tölvu/íhluti í tölvuna að utan? Allt frá sama stað?

Þakkir..



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4967
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 870
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Versla vélbúnað að utan

Pósturaf jonsig » Þri 07. Feb 2017 21:39

Það er alltaf gaman að kaupa eitthvað að utan, þangað til að það bilar :) Það virðist varla taka því að kaupa eitthvað frá t.d. Uk.



Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 976
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: Versla vélbúnað að utan

Pósturaf brain » Þri 07. Feb 2017 21:59

Versla aðalega frá Amazon og BestBuy is US.

Ekkert mál allavega með Amazon ef eitthvað bilar. lent í að HD hafi farið.
Hef keypt 3 áara ábyrgð á dýrari hluti.



Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1246
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 374
Staða: Ótengdur

Re: Versla vélbúnað að utan

Pósturaf Njall_L » Þri 07. Feb 2017 22:06

Ég versla mikið við overclockers.co.uk. Verðin eru fín og þú færð ábyrgð innan evrópusvæðisins.


Löglegt WinRAR leyfi

Skjámynd

steinarsaem
has spoken...
Póstar: 158
Skráði sig: Fim 26. Jún 2008 16:35
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Versla vélbúnað að utan

Pósturaf steinarsaem » Þri 07. Feb 2017 22:39

https://www.bhphotovideo.com/
Þeir bjóða uppá 2 eða þriggja ára auka ábyrgð, ég er að versla HDD frá þeim og keypti 2 ára tryggingu á 6$, 3 ára var á 9$.