Óeðlilega há memory notkun


Höfundur
psteinn
Ofur-Nörd
Póstar: 247
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 19:09
Reputation: 5
Staðsetning: Suður póllinn
Staða: Ótengdur

Óeðlilega há memory notkun

Pósturaf psteinn » Fös 09. Des 2016 18:46

Sælir vaktarar,

Vélin mín undað farið hefur verið að nota allt of mikið memory. Það liggur við að þegar hún er idle noti hún 70%+ en þegar chrome er opið og kannski teamspeak, csgo, spotify þá er hún bara í bullandi 90%+.

Er með í henni 2x8GB 2400MHz sticks. Það skrítna finnst mér er að hún segir ekki rétt í task manager hvað er að taka þessi 15GB+.Það stendur bara að chrome sé að taka kannski 1/2 GB og cs svipað en restin af forritunum er bara að taka 20MB max. Er þetta vírus sem ég veit ekki af eða bug í windows 10? :thumbsd
Þetta er alveg óþolandi og er að lenda í miklum vandræðum útaf þessu.

Lowmem.PNG
Lowmem.PNG (46.7 KiB) Skoðað 1074 sinnum


Nýlega sett upp Windows 10 og allir driverar up to date. Hafið þið grun um hvað þetta sé? ](*,)

Fyrirfram þakkir,
Pétur


Apple>Microsoft

Skjámynd

loner
Nörd
Póstar: 144
Skráði sig: Sun 25. Jan 2009 12:50
Reputation: -1
Staða: Ótengdur

Re: Óeðlilega há memory notkun

Pósturaf loner » Fös 09. Des 2016 19:04



Kannski var þetta rétt hjá þér allan tímann. !

Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Reputation: 101
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Óeðlilega há memory notkun

Pósturaf I-JohnMatrix-I » Fös 09. Des 2016 19:04

Settirðu nokkuð 32 bit windows 10 á vélina? Ef þú ert með 32 bit windows þá getur hún notað max 4gb af minninu þínu. :)




Höfundur
psteinn
Ofur-Nörd
Póstar: 247
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 19:09
Reputation: 5
Staðsetning: Suður póllinn
Staða: Ótengdur

Re: Óeðlilega há memory notkun

Pósturaf psteinn » Fös 09. Des 2016 19:55

Takk fyrir svörin ég skoða þetta :happy

I-JohnMatrix-I skrifaði:Settirðu nokkuð 32 bit windows 10 á vélina? Ef þú ert með 32 bit windows þá getur hún notað max 4gb af minninu þínu. :)
Haha neibb. Það væri frekar fyndið :D


Apple>Microsoft


Höfundur
psteinn
Ofur-Nörd
Póstar: 247
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 19:09
Reputation: 5
Staðsetning: Suður póllinn
Staða: Ótengdur

Re: Óeðlilega há memory notkun

Pósturaf psteinn » Fös 09. Des 2016 20:29


Snillingur!
Þetta var memory leak sem að netkort-driverinn minn var að valda. Þetta video hjálpaði mér ef einhver er líka í vandræðum með slíkt :happy
Ég re-installaði honum bara og þetta virðist vera hætt en spurning hvort svona getur gerst aftur? :-k
Væri alveg til í að vera með netið í lagi án þess að vera með eitthvað "Killer network" software. Bara algjört rusl sem er til vandræða! :mad

EDIT: Þetta er víst þekkt fyrir að vera algjört bull.


Apple>Microsoft


rbe
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 347
Skráði sig: Fös 06. Des 2013 00:11
Reputation: 73
Staða: Ótengdur

Re: Óeðlilega há memory notkun

Pósturaf rbe » Fös 09. Des 2016 20:52

smá varðandi memory notkun. tók eftir því að utorrent sýndi að hann notaði ákveðið mikið af minni ekkert stórvægilegt. var með um 40 torrenta í gangi og strokaði þá alla út í einu og minnisnotkun minnkaði um 3,5gb. reyndar hættur að nota þetta forrit þar sem til eru önnur mun betri sérstaklega varðandi hraða.



Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2018
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Óeðlilega há memory notkun

Pósturaf hfwf » Fös 09. Des 2016 21:15

rbe skrifaði:smá varðandi memory notkun. tók eftir því að utorrent sýndi að hann notaði ákveðið mikið af minni ekkert stórvægilegt. var með um 40 torrenta í gangi og strokaði þá alla út í einu og minnisnotkun minnkaði um 3,5gb. reyndar hættur að nota þetta forrit þar sem til eru önnur mun betri sérstaklega varðandi hraða.


Settu upp utorrent 2.2.1 ættir að vera laus við minnislekan eftir það upp að vissu. Minnir að allt eftir það sé blotware dauðsans og ef ekki bitcoin miner líka.




agnarkb
Tölvutryllir
Póstar: 625
Skráði sig: Fös 03. Okt 2008 20:36
Reputation: 106
Staða: Ótengdur

Re: Óeðlilega há memory notkun

Pósturaf agnarkb » Lau 10. Des 2016 01:05

Ég var að fá svona vesen líka þar sem minnisnotkunin fór upp úr öllu og festist í 99-100%. Lagaðist eftir restart en kom alltaf aftur. Fór a gruna að þetta væri annaðhvort einhver driver eða service sem væri að drain-a allt minnið og smá Gúggl staðfesti þann grun. Einhver driver sem heitir NDU.sys er þekkt að eiga það til að gera þetta. Eftir því sem ég best veit er þetta einhver network diagnostic monitoring driver en það er hægt að disable þetta í regedit undir HKEY_LOCAL_MACHINE\SYSTEM\ControlSet001\Services\Ndu og breyta gildinu í Start frá 0 í 4.

Allt verið eðlilegt síðan ég disable þetta drasl.


Leikjavél | ROG Strix X570-E | 5800x3D | LF II 240| RTX 3090 | G.Skill 32GB Flare X 3200Mhz | RM850x | Pure Base 500
Server | ASRock H610M-ITX/ac | i5 12400 | Dark Rock TF2 | 32GB | 14 TB | Unraid Basic