Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Skjámynd

Höfundur
OddBall
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Þri 22. Okt 2013 17:05
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf OddBall » Sun 14. Ágú 2016 14:47

Þegar ég vaknaði í morgun var tölvan frosin á skjá með lóðréttum röndum sem litu út fyrir að vera texti sem var aftur og aftur ofaní hvað annað. Ég reyndi að endurræsa en þá kemur upp blár skjár með svipuðum röndum og tölvan startar sér ekki upp. Ctr.Alt.Del. virkar ekki. Getið þið ímyndað ykkur hvað hefur gerst?


Windows 10
Asus Z170 pro gaming móðurborð
Evga GTX970 skjákort
Corsair 650x aflgjafi



Eitthvað fleira sem skiptir máli?




Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf Dúlli » Sun 14. Ágú 2016 14:56

Góðar líkur að skjákortið sé dautt.

Móðurborðið þitt er með innbyggt skjákort, taktu 970 kortið úr og prufaðu innbyggða.




Emarki
Ofur-Nörd
Póstar: 266
Skráði sig: Mán 03. Maí 2010 22:19
Reputation: 52
Staða: Ótengdur

Re: Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf Emarki » Sun 14. Ágú 2016 18:27

Prófa það sem dúlli segir, ég tek undir það. Nema innbyggða skjástýringin er í örgjörvanum ekki móðurborðinu ;)



Skjámynd

Höfundur
OddBall
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Þri 22. Okt 2013 17:05
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf OddBall » Sun 14. Ágú 2016 18:37

Mér datt þetta líka fyrst í hug en það gerir ekkert að tengja skjáinn við móðurborðið, ég fæ bara svartan skjá þar :( það gerist heldur ekkert þó ég reyni að láta hana boota upp á windows 10 lykli



Skjámynd

vesi
/dev/null
Póstar: 1464
Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
Reputation: 121
Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
Staða: Ótengdur

Re: Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf vesi » Sun 14. Ágú 2016 18:54

OddBall skrifaði:Mér datt þetta líka fyrst í hug en það gerir ekkert að tengja skjáinn við móðurborðið, ég fæ bara svartan skjá þar :( það gerist heldur ekkert þó ég reyni að láta hana boota upp á windows 10 lykli


Gætir þurft að fara í bios og enebla þar on board video til að fá skjátengið á móðurborðinu í gang.


MCTS Nov´12
Asus eeePc

Skjámynd

Höfundur
OddBall
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Þri 22. Okt 2013 17:05
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf OddBall » Sun 14. Ágú 2016 19:12

ok nú er blái skjárinn kominn upp líka frá móðurborðinu og ég tengdi annan skjá við til að útiloka hann og fæ sama bláa skjáinn upp á hann. Er ekki raunhæfast að þetta sé bara móðurborðið?




Haflidi85
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 378
Skráði sig: Mán 27. Jún 2011 13:07
Reputation: 44
Staða: Ótengdur

Re: Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf Haflidi85 » Sun 14. Ágú 2016 19:35

prófaðu allavega að reseta cmos áður en þú afskrifar þetta borð




Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf Dúlli » Sun 14. Ágú 2016 19:46

OddBall skrifaði:ok nú er blái skjárinn kominn upp líka frá móðurborðinu og ég tengdi annan skjá við til að útiloka hann og fæ sama bláa skjáinn upp á hann. Er ekki raunhæfast að þetta sé bara móðurborðið?


Tókstu hitt skjákortið úr ? verður að fjarlægja það úr tölvunni til að geta prufað hitt.



Skjámynd

Höfundur
OddBall
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Þri 22. Okt 2013 17:05
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf OddBall » Mán 15. Ágú 2016 00:34

Dúlli skrifaði:
OddBall skrifaði:ok nú er blái skjárinn kominn upp líka frá móðurborðinu og ég tengdi annan skjá við til að útiloka hann og fæ sama bláa skjáinn upp á hann. Er ekki raunhæfast að þetta sé bara móðurborðið?


Tókstu hitt skjákortið úr ? verður að fjarlægja það úr tölvunni til að geta prufað hitt.


Já ég tók það úr og þar sem ég get ekki opnað biosinn þá tók ég batteríið úr móðurborðinu og aftur í. Eini munurinn er að nú eru rendurnar svart/hvítar svo það er greinilegt að þetta er liturinn frá startskjánum sem dreyfist svona




Mossi
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Mán 10. Jan 2011 00:01
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf Mossi » Mán 15. Ágú 2016 01:42

Bùinn að pròfa aðra snùru frà tölvu ì skjà?

Ertu með tengt ì Displayport? Pròfaðu ef þù getur DVI eða HDMI.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2287
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 386
Staða: Ótengdur

Re: Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf Moldvarpan » Mán 15. Ágú 2016 02:02

Hversu nýtt er þetta? Er þetta í ábyrð hérlendis? Þú ert að lenda pottþétt í hardware failure, og þá þarf bara að komast að því hvað er bilað.
Ef þetta er allt keypt á sama stað, þá bara fara með tölvuna í ábyrðarviðgerð.
Ef þetta er keypt á mismunandi stöðum, þá væri best að reyna útiloka sem flest.

Settiru tölvuna saman sjálfur? Var ekki örugglega allt rétt fest og engar snúrur hálf lausar?
Taka GPU úr sambandi og nota Onboard. (sýnist þú vera búinn að því)
Taktu allt úr sambandi nema það nauðsynlegasta.
Ef þú getur útilokað psu-ið, þá væri það kostur.

Ef þú hefur farið í gegnum allt þetta, og enn "scrambled screen" eða black screen, að þá myndi ég telja að móðurborðið væri gallað.
Það fyrsta sem tölvan á að gera er að POST-a, sem hún virðist ekki ná að komast í.



Skjámynd

Höfundur
OddBall
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Þri 22. Okt 2013 17:05
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ný tölva, lóðréttar rendur og startar ekki.

Pósturaf OddBall » Þri 16. Ágú 2016 01:56

Jæja það er komin niðurstaða, þetta var snúran og ég prófaði tvær áður en ég fann eina sem virkaði. Komst reyndar í leiðinni að því að ég fæ bara bleikan skjá ef ég tengi fartölvuna við skjá með VGA en það skiptir engu máli. Þetta leit ekkert vel út til að byrja með þar sem skjákortið er keypt í Tuscon, Arisona og móðurborðið í London... en það er áhættan sem maður tekur þegar maður er blankur og er að skrapa saman í þokkalega góða vél. Það er líka fínt að hafa náð að finna út úr þessu með hjálp góðra manna að sjálfsögðu. Takk fyrir hjálpina :)