Vandræði með tölvuna :/


Höfundur
<=BaD=>RaGnaR
Nýliði
Póstar: 19
Skráði sig: Sun 08. Jan 2006 08:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vandræði með tölvuna :/

Pósturaf <=BaD=>RaGnaR » Lau 08. Apr 2006 14:00

ég var að uppfæra tölvuna mína svolítið ég semsagt skipti um Móðurborð lét þetta í

MSI K8N SLI FI - nForce4

http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_25_165&products_id=2112


Og skipti um skjákort og fékk mér þetta

NVIDIA - Sparkle Geforce 7900GTX 512 MB
Core Clock : 650 MHz
Memory Clock : 1600MHz
http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view&flo=product&id_top=1651&id_sub=2020&topl=10&page=1&viewsing=ok&head_topnav=VGA_SP_7900GTX


Síðan formattaði ég harðadiskinn og setti windows Xp pro aftur upp en ég næ bara ekki að komast lengra en þegar windows merkið kemur. Svo Þegar hún er að fara koma upp með desktopið þá restartar hún. Nær ekki að loada desktopið. Skiptir engu þó ég reyni að starta í safemode það virkar ekki hún fer bara aftur hring.

Ég var að hugsa um hvort að powersupplie væri ekki nógu öflugt ?
Thermaltake 400w . Stendur peak load 500w . Model : XP 480




Arnarr
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 367
Skráði sig: Þri 12. Okt 2004 21:28
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnarr » Lau 08. Apr 2006 16:28

ég mundi giska á það líka....




hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Lau 08. Apr 2006 16:31

Fremur hæpið sammt, þá getur þetta ekki verið gott PSU.



Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1564
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 129
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf audiophile » Lau 08. Apr 2006 17:24

Efast um að það sé powersupply.

Þegar Windows restartar svona er eitthvað að í uppsetningunni. Hef lent í svona þegar ég installað einhverju sem það ræður ekki við. Reyndar lenti ég oft og mörgum sinnum í þessu á gamla MSI K8N Platinum kortinu mínu og það reyndist gallað. Fékk K8N SLI í staðinn og það svínvirkaði.

Myndi giska að það sé eitthvað hardware rugl í gangi eða eitthvað drover eða software rugl sem kemur í veg fyrir að Windows hlaðist inn.

Það sem þú getur gert og reddaði mér var að redda mér Bootdisk með ERD Commander, á því getur þú gert allskonar repair og sett inn gamlan Restore Point t.d.




Höfundur
<=BaD=>RaGnaR
Nýliði
Póstar: 19
Skráði sig: Sun 08. Jan 2006 08:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf <=BaD=>RaGnaR » Lau 08. Apr 2006 18:37

mér var sagt að þetta væri örugglega annaðhvort eitthvað að vinnsluminni eða harðadisknum. Gæti nátturulega verið harði diskurinn hann er elstur eða um 3 ára annars er móðurborðið og skjákortið glænýtt og restin keypt fyrir ári.




Höfundur
<=BaD=>RaGnaR
Nýliði
Póstar: 19
Skráði sig: Sun 08. Jan 2006 08:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf <=BaD=>RaGnaR » Lau 08. Apr 2006 21:25

jæja þetta reddaðist :D það kom loksins í ljós að það er einhvað að harðadisknum en er núna búinn að setja upp stýrikerfið á annan disk og allt í góðu :8) nú er bara að fara prófa nýja skjákortið :twisted: