Síða 1 af 1

Dream Machine Pro umræða

Sent: Mið 30. Des 2020 20:40
af chaplin
Sælir snillingar!

Núna er komin smá della í kallinn og langar mig smá að "uppfæra" úr EdgeRouter X í Dream Machine Pro, hverjir hérna eiga þetta ofur tæki og hver er ykkar reynsla? :)

Re: Dream Machine Pro umræða

Sent: Mið 30. Des 2020 21:31
af kjartanbj
Ég er með einn og búin að vera með í nokkra mánuði, Keyri líka Unifi Protect með 5stk myndavélum, mín reynsla er bara æði, virkar bara flott

Re: Dream Machine Pro umræða

Sent: Fös 01. Jan 2021 17:13
af Calexico
Ég er búinn að nota DMP í 6 mánuði. Er mjög ánægður og ekki lent í neinum vandræðum. Keyri einnig protect með nokkurm myndavélum og þar virkar frábærlega. Mæli hiklaust með DMP en hann er samt smá “overkill” fyrir mig. Er með 5 acess punkta og 9 switcha tengda og venjulega í kringum 70-90 clienta á netinu. Unifi dótið hefur varla þurft restart síðan ég byrjaði að nota það fyrir 5 árum.

Re: Dream Machine Pro umræða

Sent: Fös 01. Jan 2021 19:14
af MrIce
DMP er overkill fyrir einföld kerfi... ég er samt að íhuga að fá mér og ég er bara með 1 AP og 4 hluti hardwired :P

No kill like overkill