Lan snúra inní herbergi


Höfundur
Hausverkur
Græningi
Póstar: 41
Skráði sig: Fös 29. Nóv 2013 14:25
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Lan snúra inní herbergi

Pósturaf Hausverkur » Þri 05. Maí 2020 19:49

Sæl/ir

Mig vantar ráð.

Unglingurinn vill lan snúru inní herbergi og ég veit ekki alveg hvar éG byrja þar.

*Þarf ljósnetshraða

Það var þrætt tv antenna snúra gegnum vegginn sem ég tók í burtu og eru því göt svo hægt sé að leiða þetta snyrtilega inn til hans. Þannig það er pláss að setja lan snúru þar í gegn en ekki með tenginu þá.(ég er búnað prófa með stuttri snúru. plast tengið kemst ekki í gegn, þarf það að komast með...?)

Þarf tæknimann í þetta eða er selt einhverstaðar svona plast gaur sem klemmist í endan endan eða hvað? (Veit núll.)

(held að plast gaurinn heiti RJ45 Cable Crimp End Plug Connector)

Hvar kaupi ég 10-15metra af lan snúru? til að byrja með og hvað þarf ég að passa? Eru til sérstakkar snúrur sem eru betri verri?)

edit:
Held að ég hafi fundið sirka hvernig það er skipt um plast gaurinn. Finn samt ekki góðan stað til að kaupa þetta hérlendis.
http://venkatsps.blogspot.com/2016/12/l ... p-end.html
Síðast breytt af Hausverkur á Þri 05. Maí 2020 19:55, breytt samtals 2 sinnum.


RAZER BLADE 15 advanced
DELL 27" 1440P H-IPS


davida
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Mið 20. Jan 2010 20:49
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Lan snúra inní herbergi

Pósturaf davida » Þri 05. Maí 2020 20:25

Jebb, ekkert mál að crimpa svona hausa á snúrur, tekst með nokkrum æfingatilraunum. Þú þarft crimptöng, poka með RJ45 tengjum, og síðan geturðu keypt hvaða cat6 snúru sem er sem dugar á lengdina og klippt af henni annan hausinn, dregið í gegnum götin og svo crimpað á. Ég var í sömu æfingum fyrr á árinu, og þá keypti ég bæði RJ45 tengin og 20 metra snúru í computer.is, klippti annan hausinn af snúrunni, þræddi og crimpaði. Hviss bamm búmm :)

Computer.is selur töngina líka, 1 stop shop: https://www.computer.is/is/product/verk ... cgp89510bu



Skjámynd

ZiRiuS
Of mikill frítími
Póstar: 1798
Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
Reputation: 387
Staðsetning: Við tölvuna
Staða: Ótengdur

Re: Lan snúra inní herbergi

Pósturaf ZiRiuS » Þri 05. Maí 2020 20:28

CAT5e er feiki nóg fyrir ljósnet og ljósleiðara sem er 1gig. CAT6 eru dýrari snúrur.



Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe


heinrich
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Lau 06. Apr 2019 11:09
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lan snúra inní herbergi

Pósturaf heinrich » Þri 05. Maí 2020 20:48

Getur sett utanáliggjandi box yfir gatið.
Þessi t.d. er litakóðaður og getur fest þræðina með flötu skrúfjárni.
https://www.byko.is/leit/vara?ProductID=220634




Tóti
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 353
Skráði sig: Fös 04. Jún 2004 23:52
Reputation: 30
Staða: Ótengdur

Re: Lan snúra inní herbergi

Pósturaf Tóti » Þri 05. Maí 2020 20:51

Þetta sett er með græju til prófa þegar búið er að krumpa tengin upp á og sjá hvort það er rétt tengt í snúru.
Og líka með LSA töng til að tengja snúru fyrir utanáliggjandi box.
https://www.oreind.is/product/verkfaera ... lsa-punch/
Síðast breytt af Tóti á Þri 05. Maí 2020 20:55, breytt samtals 1 sinni.




Höfundur
Hausverkur
Græningi
Póstar: 41
Skráði sig: Fös 29. Nóv 2013 14:25
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lan snúra inní herbergi

Pósturaf Hausverkur » Þri 05. Maí 2020 21:19

Snillingar, takk fyrir hjálpina. Allt mjög góðar upplýsingar.

Hendist í að prófa að græja þetta sjálfur :)


RAZER BLADE 15 advanced
DELL 27" 1440P H-IPS


einarbjorn
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Mán 23. Nóv 2015 19:25
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Lan snúra inní herbergi

Pósturaf einarbjorn » Þri 05. Maí 2020 21:48

svo skiptir máli hvaða vír (litur ) fer hvar, ég man aldrei röðina en google is your friend.


Fólk sem stamar er ekki heimskt eða vanþroskað, það bara laggar

Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1246
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 374
Staða: Ótengdur

Re: Lan snúra inní herbergi

Pósturaf Njall_L » Þri 05. Maí 2020 21:58

einarbjorn skrifaði:svo skiptir máli hvaða vír (litur ) fer hvar, ég man aldrei röðina en google is your friend.

Á Íslandi er notuð T-568B röðin báðu megin, ekki T568A eða einhver blanda. Fínt að fara eftir þeirri röð til að allt sé nú rétt gert.

RJ-45-Pinout-T-568B-pin-diagram.jpg
RJ-45-Pinout-T-568B-pin-diagram.jpg (61.17 KiB) Skoðað 2363 sinnum


Löglegt WinRAR leyfi


arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 938
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: Lan snúra inní herbergi

Pósturaf arons4 » Mið 06. Maí 2020 00:30

Var kóaxinn í dós? ef svo þá kaupiru bara rj45 tengla í sama stíl og tenglaefnið í húsinu.

td skiptir þessu
https://www.ronning.is/loftnetstengill- ... hv-6941669

fyrir þetta
https://www.ronning.is/gagnatengill-1xc ... hv-6940930
Síðast breytt af arons4 á Mið 06. Maí 2020 00:31, breytt samtals 1 sinni.