Síða 2 af 3

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 17:40
af Einarba
HringduEgill skrifaði:Hæ!

Það kom upp vandamál fyrr í dag sem leystist um 14:40 leitið. Lýsti sér þannig að sumar vefsíður annað hvort opnuðust ekki eða voru mjög lengi að opnast. Ef einhver er enn að lenda í þessu má endilega senda mér skilaboð!

Afsakið þessi óþægindi :(

Kveðja,
Egill


Mikið vesen buið að vera hér i dag og er enn i gangi dns hja ykkur er ekki að skila rétt frá sér virðist vera

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 18:58
af hallihg
Sumar vefsíður eru nánast einmitt eins og þær séu down en aðrar fínar. Er svo ekki þannig á 4G. Er hjá hringdu með ljós.

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 19:01
af gnarr
vísir er alveg steindauð hjá mér og margar erlendar síður líka :\

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 19:08
af ZiRiuS
gnarr skrifaði:vísir er alveg steindauð hjá mér og margar erlendar síður líka :\


Sama hér ennþá

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 19:20
af kjartanbj
Þetta er svoleiðis hjá mér, sumar síður eru ekki að opnast

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 20:21
af GuðjónR
Restartaði router og ljósleiðaraboxi í dag, netið búið að vera algjöru fokki síðan.

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 20:22
af nonesenze
er hjá GR og ekkert vess hér seinustu daga, búinn að vera skoða þennann þráð og alltaf er speedtest hjá mér 945 innanlands og eins og venjulega erlendis

eru allir hérna hjá hringdu?

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 20:29
af audiophile
Vesenið sem ég var með þegar ég stofnaði þráðinn hvarf eftir dag eða tvo. Virðist allt vera normalt núna.

Speedtest síðustu daga úr símanum sýna hvernig það var og svo hvernig það er núna.

Screenshot_20200322-165949_Speedtest.jpg
Screenshot_20200322-165949_Speedtest.jpg (131.52 KiB) Skoðað 5308 sinnum

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 20:49
af kjartanbj
Vísir einmitt virkar ekki hér heldur né sumar erlendar síður

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 20:55
af gnarr
Speedtest er alveg eðlilegt.
Mynd

Vísir, who.int og fleira virkar samt ekki.

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 20:58
af ZiRiuS
Hræðilegt hjá mér og flest erlent í ruglinu.

Mynd

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 23:01
af HringduEgill
Okkur grunar að þetta sé álagstengt og ætlum því að gera breytingar í nótt til að jafna það út. Viðhaldsvinna verður milli 01 og 04 -- fólk ætti hins vegar ekki að finna fyrir neinu rofi á þjónustu. Krossleggjum að sjálfsögðu fingur :)

Re: Álag á netinu?

Sent: Sun 22. Mar 2020 23:25
af GuðjónR
HringduEgill skrifaði:Okkur grunar að þetta sé álagstengt og ætlum því að gera breytingar í nótt til að jafna það út. Viðhaldsvinna verður milli 01 og 04 -- fólk ætti hins vegar ekki að finna fyrir neinu rofi á þjónustu. Krossleggjum að sjálfsögðu fingur :)

Nú er gott að vera með 1TB af 4G, er að nota símann sem hotspot ljósleiðaranetið er bara í ruglinu.
Næ ekki að loda síðum innanlands eins og visir.is og covid.is kveikt á steam en næ ekki að spila leiki þar í gegn nema með 4G
Reyndi að horfa á appleTV í dag, þ.e. RUV var alveg a gefast upp endalaus að frjósa. Versti netdagurinn til þessa.

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 06:49
af kjartanbj
Vísir.is ennþá dauður hjá mér og netið hægt

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 07:57
af gnarr
Sama hér :'(

Eftifarandi síður eru dauðar hjá mér:
slack.com
heroku.com
asana.com
zoom.us
visir.is
who.int
covid.is

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 08:06
af ZiRiuS
Sama hér... enn í ruglinu

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 08:41
af Maniax
Góður hraði en mikið af síðum sem virkar ekki, Snapchat virkar ekki í símum á wifi, vísir hefur ekki virkað í lengri tíma.
Crunchyroll dettur inn en sýnir engar myndir. Virðist vera eins og eitthvað caching vandarmál stundum

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 08:46
af steiniofur
Sama hjá mér -
næ ekki upp visi.is eða slack
heroku dashboardið hefur ekki virkað lengi en kom upp snappí núna í morgun.
dashboardið hjá háskólanum í reykjavík hefur verið með bras af og til líka

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 09:03
af HringduEgill
Sæl aftur.

Við teljum að vandamálið liggi í útlandasambandi sem við erum að taka í gegnum Símann en þeir hafa staðfest við okkur sambærileg tilvik sín megin. Búið er að vinna í þessu síðan í nótt og vonandi kemur lausn sem allra fyrst. Þetta er virkilega slæm tímasetning en við þökkum innilega þolinmæði allra!

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 11:14
af ZiRiuS
Er komið í lag upp í vinnu sem er hjá Símanum. Vonandi komið í lag heima líka :)

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 11:30
af gnarr
Það virðist allt vera komið í lag hjá mér :)

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 11:36
af HringduEgill
Það var gerð breyting um 11 leitið sem hefur vonandi lagað þetta. Ekki hika við að láta mig vita ef þið lendið aftur í sama vandamáli. Takk aftur fyrir þolinmæðina fólk!

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 11:40
af gnarr
Ég er bara gífurlega þakklátur fyrir að hafa ekki þurft að bíða í 40 mínútur á hold í símanum til þess að láta 16 ára krakka í símaveri segja mér að restarta beininum ;)

Þvílíkt next level quality of life að vera með Hringdu sem ISP :happy

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 13:43
af GuðjónR
Allt virkar tipp pott hérna núna. :happy

Re: Álag á netinu?

Sent: Mán 23. Mar 2020 14:26
af kjartanbj
Virðist virka flott hjá mér núna