Síða 1 af 1

Tengingar símans núna og síðustu daga? Hátt ping !

Sent: Þri 10. Mar 2020 21:36
af Alfa
Einhver sem getur staðfest að ping hjá símanum bæði innanlands og sérstaklega til útlanda hafi verið gjörsamlega út í hött. Er að pinga t.d vel yfir 100 á mbl.is og ekkert undir 120-180 til UK td.

nb er á ljósneti ennþá !

Strax hérna siminn-linx-gw-1.isholf.is er pingið orðið 140.

Er að spila með nokkrum hjá öðrum sem eru hjá Hringdu, Vodafone og eitthvað og allir í fínu lagi.

Re: Tengingar símans núna og síðustu daga? Hátt ping !

Sent: Þri 10. Mar 2020 22:01
af Daffy
Er að lenda í svipuðu rugli,
ljósleiðari, pinga 100-150 á innlendum síðum.
Þetta dettur svo aðeins niður stundum og maður heldur að allt sé golden -> startar upp einhverjum leik og spilar í 5 mín og þá byrjar þetta rugl aftur.