Síða 1 af 1

ljósleiðara hraði

Sent: Sun 15. Des 2019 23:50
af nonesenze
ég var að fá ljósleiðarann og er búinn að verða að fá mismunandi results
Mynd
Mynd
Mynd

en stundum fæ ég svona
Mynd

frá 570 til 920 er soldið mikið, er eitthvað sem ég get gert í þessu eða er þetta bara ljósleiðara meigin?

ég er með einhvern sagemcom router frá símanum en ég á sjálfur asus dsl-ac68u sem ég er búinn að firmware breyta í rt-ac68u
græði ég á að nota hann?
ég er líka með desktop linux vél sem ég kann semi nýliði á, gæti notað hana sem router?

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mán 16. Des 2019 12:34
af kjartanbj
Velkominn á gpon mílu ljós....

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mán 16. Des 2019 13:22
af worghal
þetta er ástæðan fyrir "...allt að...hraði" klausunni á öllum internet tengingum :lol:

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mán 16. Des 2019 13:28
af Dr3dinn
ég bailaði á mílu útaf svona rugli.... fór í GR og er alltaf 920-992...

Var að flökta frá 220-650 og gafst svo upp.

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mán 16. Des 2019 14:37
af Dropi
Er míla GPON? Jæks

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mán 16. Des 2019 21:04
af kjartanbj
Ég er að bíða eftir að GR leggi inn hjá mér, komast af mílu, töluðu um vonandi næsta ár..

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 18. Des 2019 13:12
af brynjarbergs
Ég var að flytja mig yfir til Vodafone frá Símanum hérna á Akureyri og droppaði úr 650-800Mbps niður í 200-250Mbps og Vodafone gætu í raun ekki verið meira sama...
Þeir skýla sig á bakvið að "endabúnaðurinn sé miðaður við venjuleg heimili".
Þeir eru að nota Huawei HG659 sem er gefinn upp AC ( 1.300Mbps ) og ég er að nota M.2. AC netkort sem styður 1.733Mbps svo þau rök falla um sjálf sig...

Línan er sú sama frá Tengir og þeir mæla hana í "Mjög góðu ástandi".

Rant over ...

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 18. Des 2019 13:24
af Plushy
brynjarbergs skrifaði:Ég var að flytja mig yfir til Vodafone frá Símanum hérna á Akureyri og droppaði úr 650-800Mbps niður í 200-250Mbps og Vodafone gætu í raun ekki verið meira sama...
Þeir skýla sig á bakvið að "endabúnaðurinn sé miðaður við venjuleg heimili".
Þeir eru að nota Huawei HG659 sem er gefinn upp AC ( 1.300Mbps ) og ég er að nota M.2. AC netkort sem styður 1.733Mbps svo þau rök falla um sjálf sig...

Línan er sú sama frá Tengir og þeir mæla hana í "Mjög góðu ástandi".

Rant over ...

Fannst þér ekki asnalegt að borga tugþúsunda eða jafnvel hátt í 100.000 kr stofngjald til að fá ljósleiðarann einn og sér?

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 18. Des 2019 13:25
af kornelius

En ef þú tengist með netsnúru, hvaða hraða færðu þá?

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 18. Des 2019 14:27
af gnarr
brynjarbergs skrifaði:Ég var að flytja mig yfir til Vodafone frá Símanum hérna á Akureyri og droppaði úr 650-800Mbps niður í 200-250Mbps og Vodafone gætu í raun ekki verið meira sama...
Þeir skýla sig á bakvið að "endabúnaðurinn sé miðaður við venjuleg heimili".
Þeir eru að nota Huawei HG659 sem er gefinn upp AC ( 1.300Mbps ) og ég er að nota M.2. AC netkort sem styður 1.733Mbps svo þau rök falla um sjálf sig...

Línan er sú sama frá Tengir og þeir mæla hana í "Mjög góðu ástandi".

Rant over ...

2.4GHz eða 5GHz?
20MHz, 40MHz eða 80MHz víðar rásir?
3x3 MIMO?
Er þetta eina tækið á þráðlausa netinu?
Hvaða attenuation ertu að fá á merkið?

Flesti tæki sem ég hef prófað hafa toppað í circa 200-250Mbps á AC, þótt að framleiðandinn fullyrði að það sé 1.733MHz.

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 18. Des 2019 15:43
af brynjarbergs
Heyrðu 5GHz alveg pottó og já - þarf að skoða hitt!

Ég var hjá Símanum í 600-650Mbps og eina breytingin var þjónustuaðilinn og endabúnaður frá þjónustuaðila og eftir það mælist ég í 200Mbps.

Ég snúrutengdi lappann og það kom svipað út í mælingum ( Latitude 7470 ).

kv

gnarr skrifaði:
brynjarbergs skrifaði:Ég var að flytja mig yfir til Vodafone frá Símanum hérna á Akureyri og droppaði úr 650-800Mbps niður í 200-250Mbps og Vodafone gætu í raun ekki verið meira sama...
Þeir skýla sig á bakvið að "endabúnaðurinn sé miðaður við venjuleg heimili".
Þeir eru að nota Huawei HG659 sem er gefinn upp AC ( 1.300Mbps ) og ég er að nota M.2. AC netkort sem styður 1.733Mbps svo þau rök falla um sjálf sig...

Línan er sú sama frá Tengir og þeir mæla hana í "Mjög góðu ástandi".

Rant over ...

2.4GHz eða 5GHz?
20MHz, 40MHz eða 80MHz víðar rásir?
3x3 MIMO?
Er þetta eina tækið á þráðlausa netinu?
Hvaða attenuation ertu að fá á merkið?

Flesti tæki sem ég hef prófað hafa toppað í circa 200-250Mbps á AC, þótt að framleiðandinn fullyrði að það sé 1.733MHz.

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 18. Des 2019 15:44
af brynjarbergs
Plushy skrifaði:
brynjarbergs skrifaði:Ég var að flytja mig yfir til Vodafone frá Símanum hérna á Akureyri og droppaði úr 650-800Mbps niður í 200-250Mbps og Vodafone gætu í raun ekki verið meira sama...
Þeir skýla sig á bakvið að "endabúnaðurinn sé miðaður við venjuleg heimili".
Þeir eru að nota Huawei HG659 sem er gefinn upp AC ( 1.300Mbps ) og ég er að nota M.2. AC netkort sem styður 1.733Mbps svo þau rök falla um sjálf sig...

Línan er sú sama frá Tengir og þeir mæla hana í "Mjög góðu ástandi".

Rant over ...

Fannst þér ekki asnalegt að borga tugþúsunda eða jafnvel hátt í 100.000 kr stofngjald til að fá ljósleiðarann einn og sér?

Ég satt að segja hef ekki sjálfur tekið það á mig þar sem að ljósleiðarinn var til staðar í blokkinni þegar ég flyt þangað.
En jú, mér finnst þetta svolítið kjánalegt!

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Þri 07. Jan 2020 16:34
af Benz
Dropi skrifaði:Er míla GPON? Jæks

Og er eitthvað að því?

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Þri 07. Jan 2020 17:01
af nonesenze
ég var að fá max 130 -150 á wifi hjá mér, sá að tækin voru að fá 200mb linka og 400mb svo ég breytti channel á 5ghz úr 132 sem var auto rásin í 52 sem var lægsta ónotaða (notaði wifi analyzer í símanum) og þá fékk ég réttu linkana á wifi upp að 1.7gb, speedtesta samt bara í krinum 500mb á wifi núna, nema s10 sem kemst á wifi6 og nær um 700-800mb

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Þri 07. Jan 2020 17:46
af kjartanbj
Benz skrifaði:
Dropi skrifaði:Er míla GPON? Jæks

Og er eitthvað að því?

Já, hér heima skiptir miklu hvenær dags ég speedtesta, rosalega rokkandi hraði og aldrei næ ég 900 niður, virðist vera að þegar nágrannarnir eru að nota netið þá hægist á hjá mér, þegar ég var með Gagnaveituna þar sem ég bjó áður með sama isp þá fékk rt fullan hraða alltaf

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Þri 07. Jan 2020 18:05
af vikingbay
kjartanbj skrifaði:
Benz skrifaði:
Dropi skrifaði:Er míla GPON? Jæks

Og er eitthvað að því?

Já, hér heima skiptir miklu hvenær dags ég speedtesta, rosalega rokkandi hraði og aldrei næ ég 900 niður, virðist vera að þegar nágrannarnir eru að nota netið þá hægist á hjá mér, þegar ég var með Gagnaveituna þar sem ég bjó áður með sama isp þá fékk rt fullan hraða alltaf

Svona fyrir forvitnis sakir, eruði að borga sama verð fyrir þetta og hjá öðrum félögum sem nota ekki GPON?

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Þri 07. Jan 2020 18:36
af pepsico
Línugjaldið er 3.300 kr. hjá Mílu og 3.377 hjá GR. Dæmi um ótakmarkaða pakka: hjá Símanum (Míla) 7.400 & 3.300, hjá Vodafone (GR) 6.990 & 3.377.

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 08. Jan 2020 00:36
af KrissiK
Uppfærðu netkorts driverinn, ég uppfærði hjá mér Realtek PCIe GBE driver og fór úr 500-600Mb/s uppí 899-910Mb/s. Gamli driver var frá árinu 2015 og nýji frá því 2019.

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 08. Jan 2020 09:57
af Dropi
Benz skrifaði:
Dropi skrifaði:Er míla GPON? Jæks

Og er eitthvað að því?

Ég var alltaf hjá GR og þær tengingar sem ég nota á klakanum eru allar þar nema dark fiberinn í vinnuni, hef kynnt mér GPON fyrir sum verkefni í vinnuni og niðurstaðan okkar var sú að við viljum ekki nota GPON undir neinum kringumstæðum. Ástæðan var einfaldlega sú að við kærum okkur ekki um að vera með ekkert guarantee á hraðanum sem hver og einn notandi fær hverju sinni, heldur breytist það eftir notkun annara.

Eins og að deila netinu með freka bróður þínum, nema það er öll blokkin eða öll gatan en ekki bróðir þinn.

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 08. Jan 2020 11:53
af Benz
Dropi skrifaði:

Það er mikill misskilningur á því að P2P eins og GR hefur sett það upp sé ekki einnig samnýtt, samnýtingin á sér stað inni í tengivirkjunum (t.d. spennistöðvum OR). Það er ekki eins og þú sért með ljósleiðaratengingu frá þér beint inn til fjarskiptafyrirtækisins þíns ;)
Sé hraðinn vandamál þá á auðvitað að gera athugasemd við það hjá sínu fjarskiptafyrirtæki . Ef það getur ekki lagað vandamálið hjá sér þá á það auðvitað að snúa sér til Mílu sem á þá að skoða málin hjá sér.
Ef maður kaupir ákveðinn hraða þá á maður auðvitað að fá það sem keypt var.

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 08. Jan 2020 15:23
af pepsico
Benz ef þú og níu aðrir Gbps viðskiptavinir deilið 10 Gbps streng þá er ekki hægt að tala um að það sé samnýting á hraðanum - sem er það sem Dropi er að tala um. Ekki bara að það sé samnýting á innviðum. Ég á minningu um það að lesa einarth eða einhvern annan starfsmann GR tala um að GR leggi fyrir fullum hraða fyrir hvern viðskiptavin. Sel það ekki dýrt en mig minnir það allavega.

Þetta er frekar óþægilegt vandamál fyrir viðskiptavini Mílu því það er ekkert sem er að fara að gerast a.m.k. á stuttum tíma ef einhver nágranni eða nágrannar ákveða að byrja að nota tengingarnar sínar allan sólarhringinn.

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 08. Jan 2020 17:29
af nonesenze
GR er s.s. eing og allir eru að segja að fá stable hraða yfir 900mb sem míla er ekki að gera, en hvernig eru speedtest utan íslands að koma út? er GR betri þar líka eða eins ?

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 08. Jan 2020 17:37
af pepsico
Kerfi GR og Mílu eru bara innanlandsinnviði. Þú getur ekki fengið meiri hraða en þeirra kerfi skila til þín því þau sitja á milli þín og netfyrirtækisins þíns, en allur hraði til útlanda (og innanlands útfrá netfyrirtækinu) er á ábyrgð netfyrirtækisins.

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 08. Jan 2020 17:49
af nonesenze
pepsico skrifaði:Kerfi GR og Mílu eru bara innanlandsinnviði. Þú getur ekki fengið meiri hraða en þeirra kerfi skila til þín því þau sitja á milli þín og netfyrirtækisins þíns, en allur hraði til útlanda (og innanlands útfrá netfyrirtækinu) er á ábyrgð netfyrirtækisins.

s.s. þá væri maður að skoða mun á milli t.d. símans og vodafone eða nova ? er einhver búinn að prófa mun á milli fyrirtækjana utan íslands?

Re: ljósleiðara hraði

Sent: Mið 08. Jan 2020 18:03
af kjartanbj
Hér á mílu ljósi amsk er aldrei sami hraði á speedtest, þegar nágrannar eru komnir heim og byrjaðir að nota sjónvarp og net þá dettur hraðinn niður hjá mér, þegar ég var á GR neti þá var ég alltaf með 930 í speedtest, núna rokkar þetta frá 600-850, háir mér ekkert en samt.. Latency er síðan hærra a mílu tengingunni 5-8ms a móti 1-2ms a GR