Síða 1 af 1

Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Þri 01. Okt 2019 12:38
af bits
Er með ljósleiðara frá bæði Mílu og Gagnaveitunni

Vantar net með ótakmörkuðu niðurhali

og vill hafa Stöð2, VOD og erlendar rásir (Nat-Geo, Discovery, Animal Planet, CBS reality etc.)

Hvar er hagstæðast að taka net og sjónvarp? (Og það væri ekki verra ef maður gæti tekið þetta gegnum Android Box uppá Netflix og fleira, samt ekki dealbreaker)

Allar tillögur vel þegnar!

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Þri 01. Okt 2019 12:55
af steinar993
Gagnaveitan.

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Þri 01. Okt 2019 18:40
af bits
steinar993 skrifaði:Gagnaveitan.


Ok. Er Hringdu málið í dag með Netið? Hvar tekur maður þá myndlykil? Get ég verið með erlendar stöðvar þar?

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Þri 01. Okt 2019 19:06
af hagur
bits skrifaði:
steinar993 skrifaði:Gagnaveitan.


Ok. Er Hringdu málið í dag með Netið? Hvar tekur maður þá myndlykil? Get ég verið með erlendar stöðvar þar?


Sleppir myndlykli, færð þér ATV eða Android TV box og NovaTV appið. Getur fengið áskriftarstöðvarnar þangað.

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Mið 02. Okt 2019 08:09
af kjartanbj
Gagnaveituna allan daginn, Míla auglýsir Gig samband en nærð því aldrei, góðum degi svona 700, svo er Hringdu lang best

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Mið 02. Okt 2019 09:12
af tonycool9
kjartanbj skrifaði:Gagnaveituna allan daginn, Míla auglýsir Gig samband en nærð því aldrei, góðum degi svona 700, svo er Hringdu lang best


Hef reyndar alls ekki þessa reynslu af Mílu,hef sjálfur mun betri reynslu af þeim heldur en gagnaveitunni,er yfirleitt í rúmlega 1000Mb

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Mið 02. Okt 2019 09:15
af kjartanbj
þú ert þá einstaklega heppinn... Míla deilir álagi á milli notenda , ef nágrannar mínir eru að nota netið mikið þá hægist á hjá mér, þegar ég var hjá Gagnaveitunni var ég alltaf með max hraða í speedtest og 1ms í ping, núna fæ ég 600-700 yfirleitt og ca 6-8ms í ping

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Mið 02. Okt 2019 15:46
af Gemini
Ljósnetsdótið er auðvitað skítugri leið. Ferð á tveim vírum út í götu áður en þú kemst í ljósleiðara þar. Svo hraði er örugglega misjafn eftir því hversu langt er í næsta ljósnetsbox.

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Mið 02. Okt 2019 15:49
af GuðjónR
Hringdu, Hringdu, Hringdu ... gleymdi ég nokkuð að nefna Hringdu?
Ég banna þér að fara eitthvað annað...
AppleTV fyrir sjónvarpið og málið dautt.

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Mið 02. Okt 2019 18:04
af kristas
Öll fjarskiptaþjónusta gengur út á samnýtingu, einnig kerfi GR. Þetta vita þeir sem vilja. Í kerfi GR er t.d. samnýting á sambandinu út úr búnaðinum í spennistöðinni og lengra inn í kerfi GR.
Í flestum tilvikum þar sem menn eru ekki að ná fullum hraða á ljósleiðaratengingum Mílu (mælt á snúrutengdri tölvu) þá er flöskuhálsinn í stofnsambandinu yfir til nets internetþjónustuveitu. T.d. ef það samband er bara 1Gb/s þ.e. jafnstórt og notendasambandið þá er alveg ljóst að viðskiptavinir þess fyrirtækis ná ekki fullum hraða í hraðamælingum. Því miður er það internetþjónustuveitan sem stjórnar stærð þess sambands. Viðskiptavinum er því bent á að tala við þjónustuveitu ef slíkt vandamál kemur upp. Meðfylgjandi hraðamæling var gerð á neti Mílu.
Kristinn (starfsmaður Mílu)

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Mið 02. Okt 2019 18:26
af arons4
kjartanbj skrifaði:þú ert þá einstaklega heppinn... Míla deilir álagi á milli notenda , ef nágrannar mínir eru að nota netið mikið þá hægist á hjá mér, þegar ég var hjá Gagnaveitunni var ég alltaf með max hraða í speedtest og 1ms í ping, núna fæ ég 600-700 yfirleitt og ca 6-8ms í ping

GR gerir það líka, bara ekki eins. Tengingar GR fara í ljósleiðara swissa og uplinkinn þar getur alveg verið flöskuháls.

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Mið 02. Okt 2019 21:09
af HringduEgill
bits skrifaði:Er með ljósleiðara frá bæði Mílu og Gagnaveitunni

Vantar net með ótakmörkuðu niðurhali

og vill hafa Stöð2, VOD og erlendar rásir (Nat-Geo, Discovery, Animal Planet, CBS reality etc.)

Hvar er hagstæðast að taka net og sjónvarp? (Og það væri ekki verra ef maður gæti tekið þetta gegnum Android Box uppá Netflix og fleira, samt ekki dealbreaker)

Allar tillögur vel þegnar!


Mæli auðvitað með að koma til okkar. Ótakmarkað net og farsímaáskrift á besta verðinu!

Ef VOD er nauðsynlegt þá er ekki annað í boði en myndlykill frá Símanum eða Vodafone. Ef þú getur sleppt VOD-inu mæli ég með Apple TV og að vera með RÚV og svo Stöð 2 / Nova TV öppin. Getur keypt áskrift að t.d. enska boltanum og öllum áskriftarstöðvum Stöðvar 2 í gegnum þessi öpp. Ert í leiðinni að spara þér mánaðargjald myndlykils sem er 2200 - 2500 kr. á mánuði. Ef þú kaupir Apple TV hjá okkur færðu einnig 3 frímánuði af neti.

Sendu mér endilega línu ef þú ert með spurningar eða vilt að ég setji saman pakka fyrir þig!

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Fim 03. Okt 2019 15:53
af einarth
arons4 skrifaði:
kjartanbj skrifaði:þú ert þá einstaklega heppinn... Míla deilir álagi á milli notenda , ef nágrannar mínir eru að nota netið mikið þá hægist á hjá mér, þegar ég var hjá Gagnaveitunni var ég alltaf með max hraða í speedtest og 1ms í ping, núna fæ ég 600-700 yfirleitt og ca 6-8ms í ping

GR gerir það líka, bara ekki eins. Tengingar GR fara í ljósleiðara swissa og uplinkinn þar getur alveg verið flöskuháls.



Öll kerfi "geta" haft flöskuhálsa.

Við göngum einfaldlega mjög langt í að tryggja að kerfið okkar er aldrei flöskuháls - og eigum nægan ljósleiðaraforða til að gera það.
Við notum ekki setningar eins og "allt að 1Gb" - þú færð alltaf 1Gb hraða gegnum okkar kerfi - ef svo er ekki er eitthvað bilað og það verður lagað.

Kv, Einar
Starfsmaður GR.

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Lau 05. Okt 2019 07:35
af kjartanbj
Ég bíð bara eftir að ég geti fengið GR ljós inn til mín, míla lagði inn þegar húsið var byggt, en núna er verið að leggja í restina af Selfossi ljós frá báðum, geri svo ráð fyrir að maður geti fengið inn GR ljós seinna hingað líka

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Lau 05. Okt 2019 09:32
af brain
kjartanbj skrifaði:Gagnaveituna allan daginn, Míla auglýsir Gig samband en nærð því aldrei, góðum degi svona 700, svo er Hringdu lang best



Held ég hafi aldrei sé undir 900 hjá mér, átt ekki að henda svona bulli fram.

Mynd

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Lau 05. Okt 2019 12:39
af kjartanbj
Þetta er ekkert bull, ég fékk alltaf 930 upp og niður hjá GR , en núna með Mílu fæ ég mjög rokkandi hraða

Mynd

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Lau 05. Okt 2019 17:45
af HringduEgill
kjartanbj skrifaði:Þetta er ekkert bull, ég fékk alltaf 930 upp og niður hjá GR , en núna með Mílu fæ ég mjög rokkandi hraða

Mynd


Sæll! Gætirðu sent mér linu? Langar að skoða hvort þetta geti verið eitthvað okkar megin.

Takk.

Re: Hvar á maður að vera með net og sjónvarp?

Sent: Þri 26. Nóv 2019 00:28
af rbe
ogvodafone.jpg
OgVodafone auðvitað !