Síða 1 af 1

Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Fös 23. Ágú 2019 22:34
af jonfr1900
Ég veit ekki hvernig þessi könnun var framkvæmd en Ísland er í 34 sæti hérna. Þetta er frétt frá árinu 2018.

UK slips to 35th in global table of broadband speeds

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Fös 23. Ágú 2019 22:38
af Hjaltiatla
Greinilegt að í Singapore eru aðal tölvusnápanir ;)

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Fös 23. Ágú 2019 23:01
af appel
18.85 mbits.

Held að þessi könnun sé svolítið lang frá raunveruleika flestra. Meirihluti íslendinga er kominn með 1000 mbit, þannig að ég skil ekki þessa könnun, þannig að þetta yrði aldrei lægra en 500 mbit.

Ég veit ekki hvað skilgreiningin er í þessari könnun. Hvort þetta sé bundið við koparlínur eða þvíumlíkt.

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Fös 23. Ágú 2019 23:06
af Hjaltiatla

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Fös 23. Ágú 2019 23:25
af appel
Þetta er eitthvað algjört bull tbh.

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Fös 23. Ágú 2019 23:46
af russi
appel skrifaði:Þetta er eitthvað algjört bull tbh.


Tel líklegt að þetta sé að hluta til tekið saman úr Speedtest prófunum, þá eru farsímar með til dæmis og jafnvel verið að horfa á einhverjar ákveðnar staðsetningapunta til viðmiðunar, við vitum að hraði hér innanlands er mjög góður, en þegar við erum að fara út fyrir skerið okkar fer hann frekar hratt niður.

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Fös 23. Ágú 2019 23:56
af nonesenze
Haha country: hongkong

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Lau 24. Ágú 2019 13:39
af Dropi
Ég flutti frá 1000/1000Mb/s á Íslandi yfir í 18Mb/s down - 1Mb/s up ADSL í UK og er ekki sammála þessum lista :mad

Hef fylgst mjög vandlega með framgangi ljósleiðara hér, sérstaklega þar sem ég bý sem er í miðbæ á borg með 700.000 manns og get sagt þér að hér er ennþá nokkur ár í að fólk fái meira en ADSL, og þá verður það 50Mb/s kopar ekki FTTP eins og við erum farin að venjast meira og meira á Íslandi.

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Lau 24. Ágú 2019 19:21
af braudrist
LMAO Madagascar Í 22 sæti. Greinilegt að dýrin í frumskóginum þurfa hraða tengingu.

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Lau 24. Ágú 2019 22:43
af bigggan
Þetta getur verið alveg rétt samkvæmt skyrslu PFS þá var bara 47% landsins kominn með ljósleiðara júni 2018, og gert ráð fyrir flestir séu tengdir 2025.

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Lau 24. Ágú 2019 23:14
af appel
bigggan skrifaði:Þetta getur verið alveg rétt samkvæmt skyrslu PFS þá var bara 47% landsins kominn með ljósleiðara júni 2018, og gert ráð fyrir flestir séu tengdir 2025.

Langflest heimili landsins hafa aðgengi að VDSL, sem er hvað 100mbit?

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Sun 25. Ágú 2019 09:24
af Hizzman
russi skrifaði:
appel skrifaði:Þetta er eitthvað algjört bull tbh.


Tel líklegt að þetta sé að hluta til tekið saman úr Speedtest prófunum, þá eru farsímar með til dæmis og jafnvel verið að horfa á einhverjar ákveðnar staðsetningapunta til viðmiðunar, við vitum að hraði hér innanlands er mjög góður, en þegar við erum að fara út fyrir skerið okkar fer hann frekar hratt niður.


speedtest.net - pfft... þeir sem eru að fá lélgan hraða eru að prófa miklu oftar en þeir sem eru etv með gig-ljós. Meðalmælingin fellur auðvitað þess vegna. Það er einnig líklegt að þjóðir með marga net-nörda séu mikið að speedtesta, sérstaklega á hægum tengingum. Það ruglar tölfræðina.

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Sun 25. Ágú 2019 10:34
af Vaski
Mér sýnist að það sé verið að notast við gögn frá þessari test síðu:
https://speed.measurementlab.net

Einhver hérna sem að notast við þetta? Eru ekki allir að notast við speedtest síðuna á Íslandi? Þar er t.d. server á íslandi en mér sýnist svona í fljótu bragði að svo sé ekki hjá m-lab test síðunni

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Sun 25. Ágú 2019 12:28
af stjani11
Hérna eru niðurstöður frá speedtest.net:
https://www.speedtest.net/insights/blog ... ds-global/

Þarna er Ísland í öðru sæti bæði broadband og mobile

Re: Ísland í 34 sæti með internet hraða árið 2018

Sent: Sun 25. Ágú 2019 13:24
af jonfr1900
appel skrifaði:
bigggan skrifaði:Þetta getur verið alveg rétt samkvæmt skyrslu PFS þá var bara 47% landsins kominn með ljósleiðara júni 2018, og gert ráð fyrir flestir séu tengdir 2025.

Langflest heimili landsins hafa aðgengi að VDSL, sem er hvað 100mbit?


Ég er næstum því við hliðina á símstöðinni en þetta er samt hraðinn sem ég er að fá.