4.5G hjá Nova

Skjámynd

Höfundur
daremo
spjallið.is
Póstar: 458
Skráði sig: Mið 27. Okt 2004 00:39
Reputation: 71
Staða: Ótengdur

4.5G hjá Nova

Pósturaf daremo » Sun 10. Mar 2019 13:49

Hefur einhver prófað þennan nýja búnað frá þeim?

https://www.nova.is/barinn/vara/4-5g-box
https://www.nova.is/barinn/vara/4-5-loftbelgur

Er að spá í þessu fyrir bústað foreldranna þar sem er alveg ágætt 4g nú þegar.
Fæ uþb 50Mb/s og 30ms hjá Símanum eins og er, en maður er alltaf til í meiri hraða er það ekki.

Hafið þið prófað þetta? Hvers konar hraða og ping eruð þið að fá?




Strákurinn
Nörd
Póstar: 101
Skráði sig: Mið 25. Maí 2016 19:15
Reputation: 27
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: 4.5G hjá Nova

Pósturaf Strákurinn » Sun 10. Mar 2019 15:58

Ég er einmitt að nota https://www.nova.is/barinn/vara/4-5g-box.
Ég er í Grindavík og var að nota venjulegt 4G hjá Nova áður, þar var ég að fá í kringum 50mb niður og 20-30 upp.
Eftir að færa mig yfir í þetta "4.5G" box hjá þeim þá er ég að ná í kringum 150-190mb niður og 60-80upp nokkuð stöðugt, ég hef verið að fá 10-15ms í ping með 4.5 og minnir að það hafið verið nokkuð svipað með 4 boxinu.

Einnig er ég að taka ótakmarkað með 4.5G svo það er algör winner í mínu tilfelli þar sem næstbesti valkosturinn væri ljósnet með í kringum 50mb og svipað latency.




wicket
FanBoy
Póstar: 763
Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 09:30
Reputation: 47
Staða: Ótengdur

Re: 4.5G hjá Nova

Pósturaf wicket » Sun 10. Mar 2019 18:54

Vodafone og Síminn eru bæði með 4.5G senda, þetta er bara framþróun á 4G, öflugara 4G en innan sama staðals.

Þið þurfið bara að hafa endabúnað (router,mifi, sími osfrv) sem styður þetta, LTE CAT 6 er oftast það sem þetta kallast á búnaði, eða LTE-A
Síðast breytt af wicket á Mán 11. Mar 2019 10:54, breytt samtals 2 sinnum.




pepsico
Bannaður
Póstar: 714
Skráði sig: Mán 20. Apr 2015 17:30
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: 4.5G hjá Nova

Pósturaf pepsico » Sun 10. Mar 2019 19:48

Bæði kjánalegt og ósanngjarnt að kalla 4.5G "markaðsbrellu hjá Nova". Viðurkennt fyrirbæri út um allan heim. Hérna er kúrs frá ITU, sem þróa þessa staðla til að byrja með, sem notar þessa "markaðsbrellu hjá Nova": https://academy.itu.int/courses//auth/j ... adband.pdf