Síða 1 af 2

Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Mið 12. Sep 2018 15:15
af Gassi
Sælir vaktarar, er að velta einu fyrir mér. Ætla að draga ethernet kaplalnfrá router inn í stofu í rafmagnstöfluna og þaðan yfir í tölvuna í herbergi. Fer í gegnum rafmagnsrör. Þarf ég að hafa varinn kapal ? Sennilega 15-20 metrar af snúru og hvar er best að kaupa per meter

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Mið 12. Sep 2018 15:24
af playman
Þarft að hafa hann skjaldaðan, myndi mæla með CAT6e ef þú getur.
http://www.tomshardware.co.uk/answers/i ... cable.html

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Mið 12. Sep 2018 15:30
af Njall_L
Samkvæmt staðli má ekki draga smáspennu og lágspennu saman í rör nema notaður sé CAT6 kapall að lágmarki. Annars hefur þessi spurning komið upp ótal sinnum, væri sniðugt að nota leitina.
T.D. þessi þráður: viewtopic.php?f=18&t=65183&p=599738&hilit=rafmagnsrör#p599738

Edit, rangt farið með staðreyndir.

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Mið 12. Sep 2018 15:43
af worghal
Njall_L skrifaði:Samkvæmt staðli má ekki draga smáspennu og lágspennu saman í rör nema notaður sé CAT6 kapall að lágmarki. Annars hefur þessi spurning komið upp ótal sinnum, væri sniðugt að nota leitina.
T.D. þessi þráður: viewtopic.php?f=18&t=65183&p=599738&hilit=rafmagnsrör#p599738

ég hélt það væri alfarið bannað að draga net kapal með rafmagni :o

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Mið 12. Sep 2018 16:19
af Tbot
Það má einungis draga cat streng í rör þar sem enginn 230V/400V er fyrir.


=> það má ekki hafa cat streng í sama röri og rafmagnsvíra.


Það sem er leyft samkvæmt staðli er að draga ljósleiðara í rör sem hafa rafmagnsvíra, því ljósleiðarinn gerur ekki flutt neina spennu.

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Mið 12. Sep 2018 20:18
af andribolla
og ástæðan fyrir því að bannað er að draga Cat Strengi með 230v/400v lögnum í rör er að cat strengir 5 og 6 eru ekki með einangrun sem þolir 230v/400v.
þannig ef það kæmi einhverstaðar skemd í 230v vír og hann myndi leiða út, gæti hann skotið inn í cat strenginn 230v.

það væri reyndar gaman að sjá hvað gerist á hinum endunum á cat strengnum tölva, switch, router, myndlykill, sjónvarp........
öruglega eithvað sem grillast ;)

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Mið 12. Sep 2018 20:34
af Viktor
Ef þú þarft að spyrja, ekki gera það.

Fáðu fagmann í þetta. Það má ekki leggja smáspennu í 220v rör. Hvorki snúran, tenglarnir, né tækin eru hönnuð til að vera nálægt 220v vírum.

Ef eitthvað kemur upp á getur til dæmis kviknað í tækjunum á öðrum hvorum endanum.

Þegar routerinn þinn kveikir svo í húsinu þínu því að þú fúskaðir í rafmagninu færðu ekkert bætt.

Ekki gera nágrönnum þínum það að fúska rafmagn. Það er lífshættulegt.

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 03:06
af Gassi
Ég er ekki að fara að fúska neit, no worries, ég fæ mann í verkið fyrir mig :) en eg þarf að draga í gegnum þær lagnir sem eru til staðar, spurði rafvirkja um þetta um daginn hann allavega benti ekki a þetta slæma spurði hann bara ut i shielded vs unshielded, hann sagði bara að það væri erfiðara að draga shielded, þið semsagt viljið meina að þetta sé no go?

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 05:56
af Hizzman
Ef ég má koma með tengda aukaspurningu:

Ef ég vil setja ljósleiðara með 230V, hvaða búnaði mæla Vaktarar með? Leiðari og endabúnaður.

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 09:12
af Viktor
Ef þú lítur á 220V tengi og svo Ethernet tengi, þá sérðu að það myndi engin heilvita maður leggja þetta saman. Það á alltaf að gera ráð fyrir því versta, og það er alltaf möguleiki á að vírar sem liggja saman muni leiða saman, til dæmis ef þeir einangrunin verður léleg með árunum eða hreinlega brenni af ef það verður rafmagnstruflun.

Þú þarft til dæmis prjón eða eitthvað til að fá raflost úr innstungu á vegg, en ethernet kaplar og aðrir smáspennutenglar eru alveg berir, svo litlir puttar gætu fengið raflost bara með því að snerta tengilinn á veggnum:

Mynd

Mynd

Mynd

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 09:24
af Kristján Gerhard
Gassi skrifaði:Ég er ekki að fara að fúska neit, no worries, ég fæ mann í verkið fyrir mig :) en eg þarf að draga í gegnum þær lagnir sem eru til staðar, spurði rafvirkja um þetta um daginn hann allavega benti ekki a þetta slæma spurði hann bara ut i shielded vs unshielded, hann sagði bara að það væri erfiðara að draga shielded, þið semsagt viljið meina að þetta sé no go?


Eins og hefur komið fram áður þá er þetta óheimilt. Ég ætla ekki að tönnlast meira á því heldur bara bæta við til fróðleiks að þetta er óheimilt samkvæmt ÍST 200 - Raflagnir bygginga. Eftifarandi er í 528.1

Mynd

Spennusvið I er smáspenna <50V.
Spennusvið II er lágspenna 50 - 1000V

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 15:42
af Gassi
Ok nú fékk ég svor frá einum sem er mikið í því að draga í gegnum lagir, hann sagði mer að eg þyrfti að vera með skermaðann cat5, eða nota cat6, min vegna þarf ekki að veraplug á vegnum þa þessvegna koma snúra í gegn og beint í tækin

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 16:03
af andribolla
Gassi skrifaði:Ok nú fékk ég svor frá einum sem er mikið í því að draga í gegnum lagir, hann sagði mer að eg þyrfti að vera með skermaðann cat5, eða nota cat6, min vegna þarf ekki að veraplug á vegnum þa þessvegna koma snúra í gegn og beint í tækin


Þú ert greinilega ekki að skilja þetta.
það skiptir ekki máli hort strengurinn heiti cat5 cat5e cat6 cat6e cat7..... skemrur eða enginn skermur....
kápan sem er utanum vírana er ekki gerður fyrir meira en 50 volt.
ef spennan fer uppfyrir 50 volt þá er kápan ekki lengur mikil fyrirstaða.

og sá sem er að draga mikið af öðrum lögnum með 230v lögnum er mikið að fúska.

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 16:18
af Gassi
ok, ég skil, en að snura bili einhverstaðar i lögn og það kemur straumur á milli hljómad soldið eins og að vinna í lotto og verða fyrir eldingu a sama tima. Nefndi þetta við rafvirkja a sama vinnusvæði sem eg er á hann sahði ekkert já þetta er í lagi talaði bara um að eg væri að spa i þessu og hvort eg þyrfti slerm en hann sagði heldur ekki að þetta væri einhver serstök ástæða til að vera hræddur við, en þakka fyrir ykkar svor, eg þarf að koma cat frá stofunni og yfir í tölvuherbergið, se ekki sðra lausn.

Takk fyrir svörin ykkar

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 16:40
af Baraoli
Það er tvennt í þessu, þú ert bæði að taka góða áhættu að það leiði á milli og skemmi endabúnað eða kveiki í og svo getur myndast alltaf ákveðið segulsvið sem truflar lágspennuna, það er ástæða afhverju þetta er aðskilið.Hitt er að þú færð aldrei fagaðila til gera þetta fyrir þig. Því sá sem framkvæmir svonalagað og hugsar sig ekkert um er í raun bara fúskari en ekki fagaðili.

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 17:09
af worghal
Baraoli skrifaði:Það er tvennt í þessu, þú ert bæði að taka góða áhættu að það leiði á milli og skemmi endabúnað eða kveiki í og svo getur myndast alltaf ákveðið segulsvið sem truflar lágspennuna, það er ástæða afhverju þetta er aðskilið.Hitt er að þú færð aldrei fagaðila til gera þetta fyrir þig. Því sá sem framkvæmir svonalagað og hugsar sig ekkert um er í raun bara fúskari en ekki fagaðili.

og ef að fagaðili gerir þetta þvert á staðla er hann þá ekki ábyrgur þegar eitthvað fer úrskeiðis?

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 17:53
af Baraoli
worghal skrifaði:
Baraoli skrifaði:Það er tvennt í þessu, þú ert bæði að taka góða áhættu að það leiði á milli og skemmi endabúnað eða kveiki í og svo getur myndast alltaf ákveðið segulsvið sem truflar lágspennuna, það er ástæða afhverju þetta er aðskilið.Hitt er að þú færð aldrei fagaðila til gera þetta fyrir þig. Því sá sem framkvæmir svonalagað og hugsar sig ekkert um er í raun bara fúskari en ekki fagaðili.

og ef að fagaðili gerir þetta þvert á staðla er hann þá ekki ábyrgur þegar eitthvað fer úrskeiðis?


Rétt

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 22:52
af ljoskar
Ekki það að ég sé að mæla með þessu en það eru til cat kaplar (t.d. hjá rönning) sem eru gefnir upp með einangrun sem þolir 1000V DC og 750 AC, þeir ættu því ekki að brjóta reglugerðina.

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 23:07
af jonsig
Ég hef þurft að nota cat6e-toughcat við búnað sem þarf að uppfylla Safety of Life at Sea (SOLAS) vottun. Og sá strengur er ekki mikið öðruvísi en 3x2.5q kapall :S

getur félaginn ekki notað rafmagn yfir net? Þetta er búnaður sem alltaf er að skána.

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 23:12
af jonsig
Svo eru til þessar fínustu rennur í S.G. fyrir cat5, og hægt að leggja útum krók og kima án þess að beri mikið á því.

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 23:36
af Gassi
Hvert gæti þetta tengst? Ljosleiðaraboxið er a bakvið sjonvarpið, þetta eru 2 ethernet tengi, hef aldrei tekið eftir þessu, og tölvan er i heberginu a bakvið tengin, en hann er steyptur

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fim 13. Sep 2018 23:51
af pepsico
Endilega deildu því með okkur hvort það eru svona stæði á fleiri stöðum og þá hvar, ásamt öllum coax og öðrum lágspennustæðum, og líka myndum af rafmagnstöflunni og alls staðar þar sem þú sérð kapla eða snúrur ef það er til staðar.

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fös 14. Sep 2018 01:43
af Gassi
Sé hvergi annarstaðar svona tengi, heldur ekki loftnetstengla, nema fyrir aftan sjonvarpið en ekki ethernet nema hann se hja ljosleiðaranum. Eða var þar ?
Rafmagnstaflan er i skap a bakvið spegilinn a innlegginu a undan

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fös 14. Sep 2018 11:29
af russi
Gassi skrifaði:Hvert gæti þetta tengst? Ljosleiðaraboxið er a bakvið sjonvarpið, þetta eru 2 ethernet tengi, hef aldrei tekið eftir þessu, og tölvan er i heberginu a bakvið tengin, en hann er steyptur


Höggbor + 6-8mm steinbor, málið leist.
Ef þú villt hafa það alveg legal, þá borar þú aftur með stærri bor, 16mm og setur plaströr í gatið. Gætir jafnvel fengið grennri plastbarka.

Með þennan steinvegg, er þetta burðarveggur eða ekki? Ef þetta er ekki burðarveggur þá ferðu frekar auðveldlega í gegnum hann.

Re: Cat5 dregið í gegnum rafmagnsrör, varið eða óvarið?

Sent: Fös 14. Sep 2018 18:30
af Gassi
Ja eg attaði mig þvi hvernig eg tengji velina i tengilinn, en eg ómögulega veit hvert þessi tengill fer, engir aðrir svona tenglar mögulega var svona tengill þar sem ljosleiðrakapallinn kemur út um núna?