Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl


Höfundur
kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Tengdur

Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf kjartanbj » Fös 18. Maí 2018 18:21

Hvernig er það með ljósleiðara frá Mílu, nú er ég með 500Mbit tengingu en er sjaldnast að ná fullum hraða, yfirleitt 250ca niður en fínt upp, ég var með ljósleiðara hjá Gagnaveitunni og var að fá alltaf 930+ þar og 1s í ping, sjaldnast minna en 5-6 hjá Mílu , er þetta bara svona rosalega lélegt eða er þetta eitthvað að hjá mér? einnig er Sjónvarp símans algerlega ónothæft hökt og pixlast á fullu

það er alveg sama hvaða router ég nota, bæði Netgear sem ég var með eða Edgerouter X sem ég er með núna

Alveg sama hvort sjónvarpið var í gegnum netgear routerin eða tengt beint í ljósleiðaraboxið eins og það er núna þá er það ónothæft

Er tengdur í gegnum hringdu, hefur aldrei verið neitt vesen amsk þegar ég var hjá Gagnaveitunni en flutti og bara því miður míla í boði þar sem ég er



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Tengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf appel » Fös 18. Maí 2018 19:01

Myndi nú bara bjalla í þjónustuveitandann og biðja um að láta skoða þetta.


*-*


HringduEgill
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 301
Skráði sig: Mið 12. Feb 2014 12:56
Reputation: 147
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf HringduEgill » Fös 18. Maí 2018 19:29

kjartanbj skrifaði:Hvernig er það með ljósleiðara frá Mílu, nú er ég með 500Mbit tengingu en er sjaldnast að ná fullum hraða, yfirleitt 250ca niður en fínt upp, ég var með ljósleiðara hjá Gagnaveitunni og var að fá alltaf 930+ þar og 1s í ping, sjaldnast minna en 5-6 hjá Mílu , er þetta bara svona rosalega lélegt eða er þetta eitthvað að hjá mér? einnig er Sjónvarp símans algerlega ónothæft hökt og pixlast á fullu

það er alveg sama hvaða router ég nota, bæði Netgear sem ég var með eða Edgerouter X sem ég er með núna

Alveg sama hvort sjónvarpið var í gegnum netgear routerin eða tengt beint í ljósleiðaraboxið eins og það er núna þá er það ónothæft

Er tengdur í gegnum hringdu, hefur aldrei verið neitt vesen amsk þegar ég var hjá Gagnaveitunni en flutti og bara því miður míla í boði þar sem ég er


Eitthvað óeðlilegt á ferðinni. Sjónvarpið ætti alls ekki að hökta og hraði ætti að vera sá sami í báðar áttir.




raekwon
Nörd
Póstar: 110
Skráði sig: Mán 07. Jan 2008 13:04
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf raekwon » Sun 20. Maí 2018 10:02

Míla er með mun öflugra kerfi, td vill gagnaveitan frekar fá á sig kærur en að vinna eftir nýjustu reglugerðum um frágang, af því að ef þeir myndu patch panel þá verði enginn hraði eftir og troða boxinu sínu í allar nýjar blokkir í hafnafirði (sem annarsstaðar) og ef fólk er hjá mílu þá situr það uppi með 2 stk af ljósbreytum.
Míla getur keyrt net og sjónvarp á sama neti sem gagnaveitan getur ekki. Kannski þarftu að færa sjónvarpið í nokia ljósbreytinn eða þá að það eru of krappar beygjur á ljósleiðaranum eða brot þá hægist mjög hratt á.
Ef þú hringir í mílu ættu þeir að geta mælt þetta upp.




Höfundur
kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Tengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf kjartanbj » Sun 20. Maí 2018 13:02

Sjónvarpið er í Nokia gaurnum núna og það breytti ekki neinu, og mín reynsla er ekki að Míla sé eitthvað öflugra, meira vesen að þurfa nota pppoe og svo fer alveg eftir tíma dags hvernig netið er hjá mér , hjá Gagnaveitunni var ég amsk alltaf með fullan hraða og það var nóg að stinga í samband



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf GuðjónR » Sun 20. Maí 2018 14:20

raekwon skrifaði:Míla er með mun öflugra kerfi,

Og Costco með öflugra bensín? :D



Skjámynd

russi
FanBoy
Póstar: 726
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 175
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf russi » Sun 20. Maí 2018 23:54

GuðjónR skrifaði:Og Costco með öflugra bensín? :D


True, bíð líka spenntur eftir því þegar þeir fara að bjóða manni að hlaða rafmagnsbílinn, þá fyrst fer maður yfir 500km á einni hleðslu




kristas
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Fös 09. Jún 2017 09:56
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf kristas » Þri 22. Maí 2018 12:32

Hvar á landinu ertu?




Höfundur
kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Tengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf kjartanbj » Þri 22. Maí 2018 13:56

kristas skrifaði:Hvar á landinu ertu?


Selfossi




kristas
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Fös 09. Jún 2017 09:56
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf kristas » Þri 22. Maí 2018 14:33

Sæll Kjartan.
Míla er með mörg þúsund ljósleiðaratenginga um allt land og þær eiga að skila þeim afköstum sem keypt eru. Það að tengingin þín nái ekki fullum hraða virðist því vera vegna einhverrar bilunar sem þarf að laga.
Samkvæmt gæðamælingu línunar þinnar þá mælist hún í fínu lagi á milli símstöðvar og ljósendabúnaðar inni hjá þér. Miðað við að þú hefur truflanir á sjónvarpi óháð því hvort þú tengir við ONT eða routerinn þinn þá er líklegasta skýringin að snúran í myndlykilinn sé biluð. Hvað um það þá ráðlegg ég þér að láta þjónustufyrirtækið þitt skoða málið.




Höfundur
kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Tengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf kjartanbj » Þri 22. Maí 2018 16:14

Búin að prófa margar snúrur, bæði netkapla og Hdmi snúrur , búin að tengja myndlykilinn við ONT'una beint þar sem hún er með 0.5m löngum Cat5e kapli og alltaf sama vandamálið, er búin að ákveða að skila bara þessum myndlykli og hætta við að fá mér sjónvarp símans , búið að vera alltof mikið vesen , í sambandi við hraðan á netinu þá er munur á því eftir tíma dags og dagamunur, er búin að prófa marga kapla á milli routers og ONT og 2 mismunandi routera hefur ekkert að segja því miður , það er eins og maður sé að deila tengingunni með öðrum hún hægist á álagstímum




wicket
FanBoy
Póstar: 763
Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 09:30
Reputation: 47
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf wicket » Þri 22. Maí 2018 19:07

Hvaða router ertu með? Router frá ISP eða þinn eigin?




Höfundur
kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Tengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf kjartanbj » Þri 22. Maí 2018 23:12

Minn eigin, bæði Netgear R7000 og núna með Edgerouter X



Skjámynd

kornelius
Gúrú
Póstar: 500
Skráði sig: Þri 09. Jan 2018 09:15
Reputation: 103
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf kornelius » Mið 23. Maí 2018 19:53

kjartanbj skrifaði:Minn eigin, bæði Netgear R7000 og núna með Edgerouter X


Sæll kjartanb

geturðu ssh'að þig inn á ER-X og gefið eftirfarandi skipun:

show ubnt offload

Ef þú færð svar eins og þetta:

show ubnt offload
IPSec offload module: not loaded

HWNAT offload module: not loaded

Traffic Analysis :
export : disabled
dpi : disabled

Prufaðu þá:

ssh inn á ER-X og gefa eftirfarandi sex skipanir

configure
set system offload hwnat enable
commit
save
exit
reboot

og vita hvort það lagast við þetta.




Höfundur
kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Tengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf kjartanbj » Mið 23. Maí 2018 22:59

ég er búin að gera bæði, næ 500mbit stundum með offloading enabled , næ 350ca með það disabled , það var með því fyrsta sem ég gerði þegar ég stillti routerin




raekwon
Nörd
Póstar: 110
Skráði sig: Mán 07. Jan 2008 13:04
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf raekwon » Lau 25. Ágú 2018 10:57

En hefurðu prófað að láta isp tracka þig með sírita, kannski eru álagspunktar aem þeir geta þá séð og brugðist við server megin, miðað við búnað sem þú ert með er annaðhvort illa lagður strengur til þín sem er að valda tapi í kröppum beygjum eða komið sprunga í ljósleiðarann þeir geta mælt það fyrir þig líka. En éef þetta er stundum þá er það álagsstýringarvandamál..




Höfundur
kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Tengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf kjartanbj » Lau 25. Ágú 2018 14:08

Netið virkar fínt hjá mér, en IPTV var bara hökkt og vesen , gafst uppá því bara, gæti hafa verið iptv boxið eða eitthvað annað en nennti ekki að spá í þessu og nota bara netflix og þannig streymisþjónustur




jullifus
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Þri 05. Jún 2012 17:52
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari Mílu, IpTv hökt, ogfl

Pósturaf jullifus » Lau 09. Feb 2019 21:40

Ég veit um eitt sem hægt er að gera til að laga IpTv hökt. Það kom mér á óvart að svona einfaldur hlutur breytti einhverju hjá mér. Einn félagi minn sagði mér að downloada einhverjum notepad fæl og breyta nafninu á honum og uploada aftur.

fællinn gæti td heitið tv_channels(og svo username-ið þitt eða eitthvað) svo endar hann á .m3u.

Það sem ég gerði var að breyta endanum á fælnum í .m3u8 og uploadaði honum svo inná síðuna. Snarlagaðist hjá honum og lagaðist mikið hjá mér, en nettengingin mín er ömurleg þannig að hún höktir ennþá, en ekki jafn mikið.

Því miður get ég ekki útskýrt þetta betur.. Vonandi hjálpar þetta eitthvað