4g Router - Heimanet ?

Skjámynd

Höfundur
FuriousJoe
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1623
Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
Reputation: 20
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

4g Router - Heimanet ?

Pósturaf FuriousJoe » Fös 27. Apr 2018 08:39

Daginn fellows, nú flyt ég eftir 4 mánuði í hús sem hefur gott sem ekkert internet og því er ég að leita að 4g búnaði sem hentar heimilinu.

Hefur einhver reinslu af 4g fyrir heimilið og getið þið mælt með einhverju ?

Hef verið að skoða græjur sem ég get tengt loftnet við og sett upp á húsið, er það að skila sér fyrir peninginn ? (kosta um 20þús bara loftnetin)

Vantar ráð og hjálp :)

Mbk FJ


Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD

Skjámynd

asgeireg
Fiktari
Póstar: 81
Skráði sig: Sun 29. Sep 2013 20:26
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: 4g Router - Heimanet ?

Pósturaf asgeireg » Fös 27. Apr 2018 12:21

Ég keypti 4G router hjá vodafone og loftnet til að setja upp á þak í bústaðinn hjá mér. Þetta er alveg að svínvirka þar, er að horfa á netflix í fínum gæðum og nota tölvur og síma þegar það á við.

Sambandið í bústaðnum er nánast bara ekki neitt innandyra og þessvegna fór ég í þetta. Ég sé allavega ekki eftir þessu, var að taka speedtest og fá ca. 45-50 m/sec í download þegar ég setti þetta upp. Kom mér svo einnig mikið á óvart að yfir hásumarið þegar það er mikil traffík á svæðinu varð ég ekkert var við minni hraða.

Gott að vita samt að ef þú kaupir loftnetið hjá Vodafone þá er það með fasta snúru og hún er ekkert voðalega löng svo þú þarft mögulega að kaupa framlenginu á hana hjá Eico eða einhverjum sem eru sérhæfðir í að búa þessar snúrur til. Ég leisti þetta með að bora bara mig bara inn og setja hillu á bak við gardínur og leggja rafmagn að því, en ég myndi ekki gera svoleiðis æfingar heima hjá mér þar sem ég myndi horfa á þetta allan daginn.


Do not argue with an idiot. He will drag you down to his level and beat you with experience.


jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2352
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: 4g Router - Heimanet ?

Pósturaf jonfr1900 » Fös 27. Apr 2018 23:57

Hvar er húsið staðsett (sýsla eða sveitarfélag)? Ég mæli með því að þú skoðir útbreiðslukort símafyrirtækjanna. Það er misjöfn dreifing hjá Símanum og Vodafone.

Vodafone er með 4G 800/1800/2600
Síminn er með 4G 700/1800/2600*

*Síminn er ekki búinn að setja upp marga 4G 700 senda ennþá en það er víst verið að vinna í því.

Síðan er bandvíddin verri eftir því sem þú ert lengra frá sendinum. Ég mæli með því að þú fáir þér þessi flötu loftnet eins og þau sem Síminn er að selja.