Síða 1 af 3

Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Lau 28. Okt 2017 22:32
af braudrist
Sælir

Ég var að downloada nýja 388.10 drivernum hjá nvidia og ég fékk mjög slæman hraða u.þ.b. 200 kB/s; var alveg heillengi að downloada honum. Ég man líka þegar ég var að downloada seinast hjá þeim og það var líka svipaður hraði, hélt kannski þetta var eitthvað tímabundið kannski eitthvað að serverunum hjá þeim. Nennir einhver að prófa að downloada og sjá hvernig hraða þið fáið?

http://international.download.nvidia.co ... nal.hf.exe

Fæ reyndar líka sama lélega hraða þegar ég downloada frá guru3d.com þannig spurning hvort eitthvað sé að hjá mér. Er með 1 Gig ljósleiðara hjá Vodafone og aldrei lent í neinu veseni. Einnig er ég með ótakmarkað niðurhal þannig þeir ættu ekki að vera throttla mig. Búinn að prófa Chrome og MS edge, breytir engu.

Mér finnst þetta vera skrítið þar sem ég var að downloada Shadow of War frá Steam fyrir ekki svo löngu og ég náði alveg 100 MB/S á m.2 diskinn minn.

Ætli maður heyri ekki í Vodafone svo bara á mánudaginn.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Lau 28. Okt 2017 22:41
af Frost
Ég er með 500Mb hjá símanum og downloadaði drivernum á nokkrum sek.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 29. Okt 2017 01:48
af rbe
jamm mjög hægt hér síðustu 2 uppfærslur frá nvidia , er hjá vodafone.
prófaði núna sé 388.00 en ekki 388.10 ? hotfix ?
allt annað er á fullu gasi ?

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 29. Okt 2017 05:02
af olihar
Ég er með 1Gb hjá Hringdu það tekur innan við 10 sec að ná í driverana.

Ætlaði að taka skjáskot en download var búið áður en ég náði að taka það með Sniping tool.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 29. Okt 2017 12:08
af brain
sama hér, hjá símanum nokkrar sek.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 29. Okt 2017 12:21
af braudrist
Ok, virðist vera eitthvað hjá Vodafone. Annars er ég mjög ánægður með Steam hraðann

Mynd

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 29. Okt 2017 12:27
af Zorglub
25 min remaning, Vodafone.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 29. Okt 2017 12:44
af skrattinn
Prófa skipta yfir í Google DNS
8.8.8.8
8.8.4.4

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 29. Okt 2017 13:21
af birgirs
Þetta var líka svona hjá mér. Er hjá Vodafone á Gig ljósi.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 29. Okt 2017 13:35
af Frussi
Er búinn að vera í driver föndri, búinn að þurfa að ná í nokkuð marga drivera frá Nvidia. Hefur tekið allt frá nokkrum sek í ca hálftíma, er með 100mbit hjá Hringdu

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Fim 02. Nóv 2017 20:11
af agnarkb
Shit. er að ná í driver 290Kbs niður. Er hjá Vodafone

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Fim 02. Nóv 2017 21:26
af depill
Prófaðu að ganni á Hringdu og Vodafone tengingu í einu

Hringdu: 10.4 MB/s
Vodafone: 134 KB/s

Spes

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 05. Nóv 2017 14:02
af ZiRiuS
Ennþá ves hjá Voda, er að dl frá Nvdia á 130-140kb/s...

Er þetta dnsinn eða?

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 05. Nóv 2017 18:54
af braudrist
Ég hringdi í Vodafone og lét þá vita. Þjónustufulltrúinn ætlaði að láta tæknimenn vita af þessu, meira veit ég ekki.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 05. Nóv 2017 18:57
af agnarkb
braudrist skrifaði:Ég hringdi í Vodafone og lét þá vita. Þjónustufulltrúinn ætlaði að láta tæknimenn vita af þessu, meira veit ég ekki.

Ætlaði einmitt að fara á spjallið hjá þeim og spurja. Gengur ekki þegar það kemur út nýr driver á tveggja vikna fresti

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 05. Nóv 2017 19:08
af braudrist
Já, þetta er mjög óþæginlegt fyrir þá sem eru alltaf uppfæra drivera hjá sér. Ég skil þetta ekki þegar ég geri trace route á slóðina, þá fer þetta svona: Ísland -> Bretland -> Tyrkland -> USA. Hélt að það væri beinn strengur til Bandaríkjanna? Annars held ég að þetta sé eitthvað routing issue í Istanbul, Tyrklandi. Veit ekki af hverju í andskotanum sambandið þarf að fara til Tyrklands áður en það fer til BNA en ok.

Prófið að gera Speedtest í Istanbul, ég fæ 83ms og varla 5 mbp/s niður en 800 mbp/s upp. Þetta getur ekki verið eðlilegt.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 05. Nóv 2017 19:59
af Viktor
braudrist skrifaði:Ég skil þetta ekki þegar ég geri trace route á slóðina, þá fer þetta svona: Ísland -> Bretland -> Tyrkland -> USA. Hélt að það væri beinn strengur til Bandaríkjanna?

Nope

http://www.vb.is/skodun/perlur-fyrir-svin/140460/

Það sést best í óbirtri skýrslu sem unnin var fyrir Íslandsstofu en þar kemur fram að 12 af 14 gagnaverafyrirtækjum sem rætt var við töldu að skortur á gagnastrengjum við landið væri vandamál og það sem helst stæði landinu fyrir þrifum.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 05. Nóv 2017 20:56
af olihar
braudrist skrifaði:Já, þetta er mjög óþæginlegt fyrir þá sem eru alltaf uppfæra drivera hjá sér. Ég skil þetta ekki þegar ég geri trace route á slóðina, þá fer þetta svona: Ísland -> Bretland -> Tyrkland -> USA. Hélt að það væri beinn strengur til Bandaríkjanna? Annars held ég að þetta sé eitthvað routing issue í Istanbul, Tyrklandi. Veit ekki af hverju í andskotanum sambandið þarf að fara til Tyrklands áður en það fer til BNA en ok.

Prófið að gera Speedtest í Istanbul, ég fæ 83ms og varla 5 mbp/s niður en 800 mbp/s upp. Þetta getur ekki verið eðlilegt.

Hjá hvaða fyrirtæki ertu, það er mismunandi hvar fyrirtækin eru að kaupa routing, þarna sést að það er verið að spara, enda routing í gegnum Tyrkland til USA bara bull, það ætti að fara til Bretlands og svo beint til USA.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Sun 05. Nóv 2017 23:01
af depill
Sallarólegur skrifaði:
braudrist skrifaði:Ég skil þetta ekki þegar ég geri trace route á slóðina, þá fer þetta svona: Ísland -> Bretland -> Tyrkland -> USA. Hélt að það væri beinn strengur til Bandaríkjanna?

Nope

http://www.vb.is/skodun/perlur-fyrir-svin/140460/

Það sést best í óbirtri skýrslu sem unnin var fyrir Íslandsstofu en þar kemur fram að 12 af 14 gagnaverafyrirtækjum sem rætt var við töldu að skortur á gagnastrengjum við landið væri vandamál og það sem helst stæði landinu fyrir þrifum.

Það eru beinir strengir til USA. Greenland connect liggur "næstum" beint.

Hins vegar er þetta ekki það einfalt þar sem þú ert að auglýsa rútunar þínar út og þar sem flest lönd eru ekki eyjur er ekki gert ráð fyrir svona rugli eins og getur lent í á Íslandi með rútun.

Þannig að það að optmiza að USA umferð kemur bara í gegnum USA og EU bara í gegnum EU er hér um bil ógerlegt, þannig ég myndi halda að flest allir ISPar fara með Internetið bara í gegnum EU og svo bara IX sambönd í gegnum USA þar sem latencyið er aðeins hærra yfir GC.

Hins vegar traceroute frá því sýnir bara pakkaleið frá þér og að áfangastað, en ekki til baka og það eru allar líkur að leiðin að þér sé allt önnur. Það þarf ekki að vera annað en að leiðin frá þessum netþjóni og að bara einn punktur sé minna congested heldur en leiðin að Vodafone.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Mán 06. Nóv 2017 01:21
af Viktor
depill skrifaði:

Strengurinn sem fer til Grænlands er svo lítill að hann er yfirleitt ekki tekinn með í þessari umræðu, enda fer allt í gegnum UK/DK frá netnotendum á Íslandi. Svo endar hann í Kanada en ekki BNA :cry:

DANICE:
Up to 34.4 Tbit/s

FARICE1:
Up to 11 Tbit/s

Greenland Connect:
Up to 1.92 Tbit/s

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Mán 06. Nóv 2017 04:14
af emil40
tók 5-6 mín hjá mér ég er með ljósnet 50 hjá símanum

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Mán 06. Nóv 2017 20:13
af GuðjónR
Ég prófaði þetta núna ... svo slow að ég nennti ekki að klára.
Er með 1000/1000 tengingu hjá Hringdu, greinilegt að þetta hefur ekkert með það að gera heldur netþjóninn hjá Nvidia.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Þri 12. Des 2017 02:59
af ZiRiuS
Þetta er enn svona steik hjá mér. Hefur einhver prófað að tala við internetveiturnar sínar og spurt what'sup?

Er á 1000/1000 ljósi :shock:

Mynd

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Þri 12. Des 2017 11:52
af Frost
Mynd

500/500 mjög góður download hraðinn, tók nokkrar sek.

Re: Mjög lélegur download hraði hjá nVIDIA

Sent: Þri 12. Des 2017 12:08
af Moldvarpan
Ég fæ crap hraða, ljósnet símans.