Missi netsamband mjög reglulega


Höfundur
GTi
has spoken...
Póstar: 173
Skráði sig: Fim 24. Ágú 2006 14:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Missi netsamband mjög reglulega

Pósturaf GTi » Fim 13. Okt 2016 22:33

Góðan daginn,

Er með Asus RT-AC87U router á heimilinu. Allar pc tölvur, spjaldtölvur og símar eru vel tengdir allstaðar á heimilinu og sambandið mjög gott allstaðar í íbúðinni. En... fartölvan mín er að missa netsamband oft yfir daginn og tekur svona 1 mínútu að ná netsambandi aftur.

Ég virðist vera tengdur við Routerinn en það stendur "No Internet, Secured". Samt virka öll önnur tæki (t.d. halda Netflix og Hulu áfram að rúlla).

Hér má sjá screenshot af þessu gerast á meðan ég skrifaði þennan þráð.


Ég sé ekkert í System Log á routernum. Ég held að þetta sé eitthvað í tölvunni minni. Mér dettur ekkert í hug hvað ég get reynt að gera og hvað ég get skoðað.

Tölvan er Lenovo Thinkpad Edge E520. Einhverjar hugmyndir?



Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Missi netsamband mjög reglulega

Pósturaf upg8 » Fim 13. Okt 2016 22:55

Prófa annað channel, athuga með rafhlöðusparnað á tölvunni, athuga hvort það sé annar heppilegri driver til. Ertu með tölvuna alltaf á sama stað? Ef þú ert með dual-band router þá væri gott að prófa að skipta yfir á 5GHz..


Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"

Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1254
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 140
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Missi netsamband mjög reglulega

Pósturaf Minuz1 » Fim 13. Okt 2016 22:56

Er þetta yfir þráðlaust?
prófaðu með snúru.
Virkar tölvan eins á öðrum stöðum eða er þetta staðbundið vandamál milli tölvunar og þíns routers?
Getur þú pingað router/aðrar tölvur á meðan þetta gerist?
Ertu með packetloss þegar tölvan er með samband?
Þetta gæti hjálpað ef þetta er wifi ofmettun.
http://www.pcworld.com/article/227973/s ... _them.html


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það


Höfundur
GTi
has spoken...
Póstar: 173
Skráði sig: Fim 24. Ágú 2006 14:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Missi netsamband mjög reglulega

Pósturaf GTi » Fim 13. Okt 2016 23:18

upg8 skrifaði:Prófa annað channel, athuga með rafhlöðusparnað á tölvunni, athuga hvort það sé annar heppilegri driver til. Ertu með tölvuna alltaf á sama stað? Ef þú ert með dual-band router þá væri gott að prófa að skipta yfir á 5GHz..


Takk fyrir svarið. Routerinn er stilltur á Auto channel. Spurning hvort tölvan mín fúnkeri illa við breytt channel. Hef ekki fylgst með hvaða channel er í notkun. Routerinn er með 2.4GHz og 5GHz en tölvan hefur bara 2.4GHz.
Prófa að festa Channel...




Höfundur
GTi
has spoken...
Póstar: 173
Skráði sig: Fim 24. Ágú 2006 14:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Missi netsamband mjög reglulega

Pósturaf GTi » Fim 13. Okt 2016 23:24

Minuz1 skrifaði:Er þetta yfir þráðlaust?
prófaðu með snúru.
Virkar tölvan eins á öðrum stöðum eða er þetta staðbundið vandamál milli tölvunar og þíns routers?
Getur þú pingað router/aðrar tölvur á meðan þetta gerist?
Ertu með packetloss þegar tölvan er með samband?
Þetta gæti hjálpað ef þetta er wifi ofmettun.
http://www.pcworld.com/article/227973/s ... _them.html

Takk fyrir svarið. Hef ekki orðið var við þetta þegar ég er með tölvuna annars staðar. Verð að prófa að pinga þegar þetta gerist næst. Yfirleitt fljótt að gerast. Böggar mig aðallega vegna þess að ég missi Remote Connection þegar það er í gangi.

En ætla að skoða packet loss. Takk fyrir svarið.



Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Missi netsamband mjög reglulega

Pósturaf upg8 » Fös 14. Okt 2016 11:22

Spurning að fá bara 5GHz netkort fyrir fartölvuna, gæti verið þess virði


Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"

Skjámynd

Urri
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 356
Skráði sig: Þri 21. Jún 2016 19:42
Reputation: 32
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Missi netsamband mjög reglulega

Pósturaf Urri » Fös 14. Okt 2016 11:52

Gætir notað þetta við að athuga stöðugleikann
https://www.pingplotter.com/


Fractal Design Define R5 Titanium // ASUS X99-A // Intel Core i7-5930K // ASUS GeForce STRIX GTX 980 Ti 6GB
HyperX Predator SSD 480GB M.2 PCIe // HyperX Predator 2400MHz 32GB (4x8GB)
EVGA SuperNOVA 1000 G2, 1000W PSU // Corsair Hydro H100i GTX


ulfr
Græningi
Póstar: 39
Skráði sig: Þri 03. Feb 2015 23:37
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Missi netsamband mjög reglulega

Pósturaf ulfr » Fös 14. Okt 2016 20:01

Ég myndi athuga með að uppfæra rekilinn fyrir þráðlausa kortið. Þegar þetta gerist, hvað segir ipconfig /all þér?



Skjámynd

jericho
FanBoy
Póstar: 787
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Missi netsamband mjög reglulega

Pósturaf jericho » Fös 14. Okt 2016 20:58

Náðu í þetta á símann þinn (ef android) og kannaðu á hvaða channel wifi-in í kringum þig eru. Veldu það channel sem enginn/fæstir eru á.

https://play.google.com/store/apps/deta ... yzer&hl=en



5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q