Síða 1 af 2

500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 13:02
af EOS
Daginn. Var að panta uppsetningu á nýju ljósleiðaraboxi til að fá 500mb. Ég er hjá 365 núna og þeir segja að verðið sé það sama og 100mb sem er alveg hentugt.
Hvar er samt best að vera? Ég nota torrent slatta og online spilun svo ég þarf stabílt samband við umheiminn :p
Myndi leigja router líka svo það þyrfti að vera fyrirtæki sem býður upp á fínar græjur.

Fyrirfram þakkir :)

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 14:10
af worghal
ótakmarkað hjá hringdu, ég er frekar ánægður með það.

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 15:07
af EOS
Gætiru sýnt mér hvernig speedtest kemur út hjá þér?

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 15:12
af worghal
Mynd

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 15:14
af gutti
ég er hjá hringdu http://www.speedtest.net/result/5432777391.png ekki alveg virka að pósta link hja mér ;(

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 15:16
af EOS
Snilld :) væri til í að sjá speedtest hjá öðrum fyrirtækjum ef einhver getur :)

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 18:53
af kjartanbj
Ekki hægt nema tapa á því að leigja router

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 18:55
af EOS
Satt, ég bara hef "0" þekkingu á þeim og legg ekki í að velja slíkan :P

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 20:02
af ZoRzEr
Vodafone virðast takmarka hraðann ef þú ert ekki með búnað frá þeim. Þeir segja að þú þurfir nýjustu tegundina af ljósleiðaraboxi og router frá þeim (Vodafone HG 659) til að fá 500mbit hraðann. Veit ekki alveg afhverju þeir eru með mig í 100mbit núna allt í einu þar sem ég var með 500mbit og endalaust niðurhald þegar þeir fóru að bjóða þann pakka og fékk á fullan auglýstan hraða á Airport Extreme ac router.

Þarf aðeins að ræða við þjónustuverið hjá Vodafone.

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 20:28
af capteinninn
ZoRzEr skrifaði:Vodafone virðast takmarka hraðann ef þú ert ekki með búnað frá þeim. Þeir segja að þú þurfir nýjustu tegundina af ljósleiðaraboxi og router frá þeim (Vodafone HG 659) til að fá 500mbit hraðann. Veit ekki alveg afhverju þeir eru með mig í 100mbit núna allt í einu þar sem ég var með 500mbit og endalaust niðurhald þegar þeir fóru að bjóða þann pakka og fékk á fullan auglýstan hraða á Airport Extreme ac router.

Þarf aðeins að ræða við þjónustuverið hjá Vodafone.


Það meikar ekkert sens, ertu viss um að vandamálið sé ekki frekar að þeir geta ekki tryggt 500mb nema þú sért með búnað frá þeim því þeir geta bilanagreint og stillt hann.

Það getur ekki verið að þeir séu viljandi að cappa hraðann niður nema þú sért með leigjurouter

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 22:04
af Xovius
Mynd
500mb ljósleiðari hjá vodafone.
Ástæðurnar fyrir því að þú þurfir nýjasta routerinn hjá vodafone og nýjasta (eða næst nýjasta) boxið frá gagnaveitunni er að þetta er eini búnaðurinn með gigabit port. Gömlu ljósleiðaraboxin og eldri vodafone routerar eru með 100mb portum. Þú getur alveg náð sama hraða með þínum eigin router, eini gallinn við það er að þjónustuverið hefur engann aðgang að þínum routerum og getur ekkert gert í því ef þetta er ekki að virka eins og það á að gera. Þar af leiðandi er erfitt að guaranteea fullann auglýstann hraða þegar þú ert ekki með vodafone routerinn.

(Starfsmaður í þjónustuveri vodafone en ekki að posta á vegum vodafone, get samt komið ábendingum og fyrirspurnum til skila)

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Sun 26. Jún 2016 22:35
af KermitTheFrog
ZoRzEr skrifaði:Vodafone virðast takmarka hraðann ef þú ert ekki með búnað frá þeim. Þeir segja að þú þurfir nýjustu tegundina af ljósleiðaraboxi og router frá þeim (Vodafone HG 659) til að fá 500mbit hraðann. Veit ekki alveg afhverju þeir eru með mig í 100mbit núna allt í einu þar sem ég var með 500mbit og endalaust niðurhald þegar þeir fóru að bjóða þann pakka og fékk á fullan auglýstan hraða á Airport Extreme ac router.

Þarf aðeins að ræða við þjónustuverið hjá Vodafone.


Þetta er bara alls ekki satt. Þú þarft að vera með nýjasta ljósleiðaraboxið þar sem þau gömlu styðja bara 100mbit. Þú þarft nýjasta routerinn frá þeim (eða sambærilegan) ef þú vilt ná þessum hraða á þráðlausa netinu.

Ef þú ert bara að fá 100Mbit og ert með nýjasta ljósleiðaraboxið þá getur verið að það þurfi að stilla þig á 500 gagnaveitu megin. Eða þá að þú hefur skipt um snúru í millitíðinni og ert bara með 10/100 tengingu á milli ljósleiðaraboxs og routers.

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 11:03
af Danni V8
Ég á von á að geta fengið 50Mbit seinna á þessu ári og mun hoppa hæð mína þegar það gerist!

Öfunda ykkur höfuðborgarbúa að hafa aðgan að svona öflugum ljósleiðara.

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 11:07
af Cascade
Ég er með 500mbit hjá Vodafone og minn eiginn Cisco/linksys router og ég fæ einmitt alltaf 270 mbit á speedtest.

Sama saga hjá tengdó, 500mbit hjá vodafone og ASUS router, max speed 270mbit

Er vodafone að cappa þetta fyrir þá sem hafa ekki þeirra router?

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 11:21
af berteh
Ég er með minn eigin router (pfSense) og ekki í neinum vandræðum með að fá allan hraðann frá vodafone:
Mynd

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 12:10
af valdij
Er með 500mb hjá Vodafone og með minn eigin router og fæ auglýstan hraða, amk. í öllum þeim Speedtestum sem ég hef tekið.

Hinsvegar ein spurning til /xovius/ - Afhverju byrjar Twitch að lagga alltaf, alla daga, í kringum 21:00? Ekki bara hjá mér heldur svo gott sem öllum sem ég þekki til sem eru hjá Vodafone. Gerist það reglulega (alltaf) að lítið annað sem manni dettur í hug en að þarna er eitthvað cap um að vera. Öll kvöld sem allt í einu uppúr þurru að Twitch verður óáhorfanlegt (nema þá í medium gæðum) og í öllum tilfellum er klukkan í kringum 21:00.

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 12:25
af GuðjónR
valdij skrifaði:Afhverju byrjar Twitch að lagga alltaf, alla daga, í kringum 21:00? Ekki bara hjá mér heldur svo gott sem öllum sem ég þekki til sem eru hjá Vodafone. Gerist það reglulega (alltaf) að lítið annað sem manni dettur í hug en að þarna er eitthvað cap um að vera. Öll kvöld sem allt í einu uppúr þurru að Twitch verður óáhorfanlegt (nema þá í medium gæðum) og í öllum tilfellum er klukkan í kringum 21:00.

Bandwidth shaping kallast þetta, kæmi mér ekki á óvart að allir ISP'ar beiti þessu.
http://www.webopedia.com/TERM/B/bandwidth_shaping.html

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 13:20
af agust1337
Mynd síminn :(

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 13:34
af corflame
Cascade skrifaði:Ég er með 500mbit hjá Vodafone og minn eiginn Cisco/linksys router og ég fæ einmitt alltaf 270 mbit á speedtest.

Sama saga hjá tengdó, 500mbit hjá vodafone og ASUS router, max speed 270mbit

Er vodafone að cappa þetta fyrir þá sem hafa ekki þeirra router?


Ég er einmitt í veseni með Voda næ aldrei fullum hraða, nema til þeirra.

Er með eiginn router, Asus AC-56U, en vandamál er samt til staðar þó ég sé beintengdur í Gagnaveitu boxið.

Á 100Mbit prófíl, Speedtest t.d. til Maidenhead í Bretlandi datt niður í brot af því sem ég átti að vera að fá, 20-25Mbps max.

Prófíll stækkaður í 500Mbit, næ 30-40Mbps max til Maidenhead, minna á annatíma.

Hef margoft reynt að fá úrlausn á þessu en basic svarið sem ég fæ er:
"Þar sem þú færð fullan hraða til okkar, þá er þetta ekki okkar vandamál að leysa".

Get því alls ekki mælt með Voda.

Er í Mosó btw, ef það skiptir einhverju máli.

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 13:54
af Porta
Hvernig er Nova að standa sig?

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 16:03
af ZoRzEr
KermitTheFrog skrifaði:
ZoRzEr skrifaði:Vodafone virðast takmarka hraðann ef þú ert ekki með búnað frá þeim. Þeir segja að þú þurfir nýjustu tegundina af ljósleiðaraboxi og router frá þeim (Vodafone HG 659) til að fá 500mbit hraðann. Veit ekki alveg afhverju þeir eru með mig í 100mbit núna allt í einu þar sem ég var með 500mbit og endalaust niðurhald þegar þeir fóru að bjóða þann pakka og fékk á fullan auglýstan hraða á Airport Extreme ac router.

Þarf aðeins að ræða við þjónustuverið hjá Vodafone.


Þetta er bara alls ekki satt. Þú þarft að vera með nýjasta ljósleiðaraboxið þar sem þau gömlu styðja bara 100mbit. Þú þarft nýjasta routerinn frá þeim (eða sambærilegan) ef þú vilt ná þessum hraða á þráðlausa netinu.

Ef þú ert bara að fá 100Mbit og ert með nýjasta ljósleiðaraboxið þá getur verið að það þurfi að stilla þig á 500 gagnaveitu megin. Eða þá að þú hefur skipt um snúru í millitíðinni og ert bara með 10/100 tengingu á milli ljósleiðaraboxs og routers.


Það er akkúrat málið, ég pantaði 500mbit tengingu og endalaust niðurhal þegar þeir fóru að bjóða þann pakka fyrr á árinu, og fékk auglýstann hraða allann þann tíma án vandræða. Strákurinn í Þjónustuverkinu spurði mig hvort ég væri með nógu góðan router og ég játaði því og hann henti þessi af stað strax. Um leið og þeir fóru að bjóða upp á 500mbit á öllum þjónustuleiðum sínum breyttist þetta hjá mér og ég fæ bara 100mbit með CAT5e kapli (þeim sama og var notaður áður). Núna taka þeir fram á öllum þjónustuleiðunum að ef þú ert með þennan HG 659 router frá þeim færðu 500mbit annars ekki.

Ég heyri í þjónustuverinu og sé hvað er í gangi. Læti vita hér.

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 16:13
af rapport
Hraði netþjónustu hé rinnanlands er ekki lengur grundvöllur samkeppninar og speedtest.net er ekki marktækt tól, þessi síða er að fá forgang hjá mörgum ISP.

Ég var með 500mb/sek til UK um daginn, eitthvað sem ég veit að er total BS.

Fínt að prófa http://testmy.net/ eða http://speedof.me/

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 16:26
af GuðjónR
rapport skrifaði:Hraði netþjónustu hé rinnanlands er ekki lengur grundvöllur samkeppninar og speedtest.net er ekki marktækt tól, þessi síða er að fá forgang hjá mörgum ISP.

Ég var með 500mb/sek til UK um daginn, eitthvað sem ég veit að er total BS.

Fínt að prófa http://testmy.net/ eða http://speedof.me/


Með öðrum orðum, í einu skiptin sem þú nærð 500/500 er í speedtestum. :)

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 16:43
af valdij
GuðjónR skrifaði:
rapport skrifaði:Hraði netþjónustu hé rinnanlands er ekki lengur grundvöllur samkeppninar og speedtest.net er ekki marktækt tól, þessi síða er að fá forgang hjá mörgum ISP.

Ég var með 500mb/sek til UK um daginn, eitthvað sem ég veit að er total BS.

Fínt að prófa http://testmy.net/ eða http://speedof.me/


Með öðrum orðum, í einu skiptin sem þú nærð 500/500 er í speedtestum. :)


Þetta reyndar passar við mína reynslu. Ég hef verið að fá fullan hraða í Speedtestum en þegar hef verið aktúalt að sækja skrár - frá aðilum sem er mjög sennilegt að ég ætti að vera geta fullnýtt tenginguna á er ég einungis að geta nýtt brot af þessum 500mb sem ég er með og borga fyrir. Svo tek ég Speedtest sem sýnir samt fullan hraða.

Re: 500mb ljósleiðari - hvar?

Sent: Mán 27. Jún 2016 17:00
af birgirb13
Mynd

Fæ fullannn hraða á öllum tímum sólahrings. Er með Linksys EA6900 router sem er ekki frá Vodafone. Lenti í smá veseni fyrst eftir að ég fékk tenginguna. Var þá download hraði að detta niður í ekki neitt eftir kl 17 á daginn. Kom í ljós að þetta var vandamál gagnaveitu megin og var það lagað eins og skot. Hef ekki lennt í neinum hraðavandamálum síðan. Fullur hraði á öllum tímum sólarhrings.