Tengjast Ljósleiðara með nýjum router , Gagnaveitu síðan orðin ónothæf


Höfundur
kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 683
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Ótengdur

Tengjast Ljósleiðara með nýjum router , Gagnaveitu síðan orðin ónothæf

Pósturaf kjartanbj » Mán 28. Mar 2016 18:45

Eru fleiri að lenda í því að geta ekki tengst Gagnaveitu síðunni og breytt neinu lengur, get tengst síðunni en ef ég ætla fara í My services eða My account þá kemur bara upp önnur login síða , þannig ég kemst ekkert á netið nema vera með laptopin tengdan beint í ljósleiðara boxið útaf mac á henni er addað inn , varla er þetta eitthvað nýtt hjá þeim að hleypa mönnum ekki sjálfum í að breyta stillingum þannig maður er uppá aðra komin ?



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4965
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 869
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tengjast Ljósleiðara með nýjum router , Gagnaveitu síðan orðin ónothæf

Pósturaf jonsig » Mán 28. Mar 2016 18:57

Gengur ekkert mac cloning ?




dawg
Ofur-Nörd
Póstar: 282
Skráði sig: Fös 12. Nóv 2010 16:54
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Tengjast Ljósleiðara með nýjum router , Gagnaveitu síðan orðin ónothæf

Pósturaf dawg » Mán 28. Mar 2016 19:25

kjartanbj skrifaði:Eru fleiri að lenda í því að geta ekki tengst Gagnaveitu síðunni og breytt neinu lengur, get tengst síðunni en ef ég ætla fara í My services eða My account þá kemur bara upp önnur login síða , þannig ég kemst ekkert á netið nema vera með laptopin tengdan beint í ljósleiðara boxið útaf mac á henni er addað inn , varla er þetta eitthvað nýtt hjá þeim að hleypa mönnum ekki sjálfum í að breyta stillingum þannig maður er uppá aðra komin ?

Lenti í því sama & með sama router og þú ert að nota.(nighthawk ac1900?)
Endanum hringdi ég og lét þá festa mac fyrir mig. Þurfti svo í kjölfarið að resetta cache og flusha dns á öllum devices.

Þurfti líka að restarta router & ljósleiðara boxi svo.

Lenti svo í því að routerinn lét sem hub í smá tíma en það lagaðist svo allt í einu. Endilega ef þú finnur út úr þessu að posta fixinu. ;)




Höfundur
kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 683
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Ótengdur

Re: Tengjast Ljósleiðara með nýjum router , Gagnaveitu síðan orðin ónothæf

Pósturaf kjartanbj » Mán 28. Mar 2016 19:41

Ég var að setja aftur orginal firmware hjá mér er aðeins í smá fikti með routerin, þegar ég setti inn orginal firmware hjá mér þá breyttist einhvernvegin mac addressan, víxlaðist mac á Wan og Lan , komst ekki inná front01 síðuna hjá þeim, en fann svo Clone möguleika í firmware'inu og netið komið inn núna, samt ömurlegt að komast ekki inná síðuna til þess að breyta mac addressum eða gera nokkurn skapaðan hlut




einarth
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 346
Skráði sig: Þri 26. Okt 2010 15:01
Reputation: 41
Staða: Tengdur

Re: Tengjast Ljósleiðara með nýjum router , Gagnaveitu síðan orðin ónothæf

Pósturaf einarth » Mán 28. Mar 2016 21:43

Sælir.

Við erum að vinna í að útfæra þessa síðu betur - en eins og er þá virkar hún eingöngu til að skrá fyrsta tæki inná nýja tengingu.
Aðrar breytingar verða að fara í gegnum þjónustu aðila.

Vonandi komum við nýrri síðu í loftið fljótlega..

Kv, Einar.




Höfundur
kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 683
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Ótengdur

Re: Tengjast Ljósleiðara með nýjum router , Gagnaveitu síðan orðin ónothæf

Pósturaf kjartanbj » Mán 28. Mar 2016 23:57

Afhverju var ekki hægt að hafa þetta eins og þetta var á meðan þið eruð að vinna í að útfæra síðuna betur, núna get ég ekki gert nokkurn skapaðan hlut ef það er lokað hjá mínum þjónustu aðila , ég varð td að spoofa mac addressu hjá mér í stað þess að geta bara lagað þetta eins og ég hef alltaf getað gert , alger óþarfa auka skref að þurfa fá þriðja aðila til þess að gera breytingar hjá manni , sérstaklega ef þær eru svona litlar eins og að setja inn eina mac addressu , ömurlegt að þurfa treysta á aðra með svona smámál