Síða 1 af 9

Er Síminn að cappa (BLOCKA) torrent?

Sent: Fös 20. Feb 2009 20:25
af GuðjónR
Ég var bara að spá hvort Síminn væri farinn að cappa torrent, ég var að prófa að sækja torrent frá torrentleech.org, filelist.org og ásamt fleiri síðum og næ engu sambandi.
Þó síðurna sýni að allt að 1000 manns séu að deila þá fæ ég 0 í uTorrent og "connection closed by peer".

Íslenskar p2p síður virka samt. Bara að velta því fyrir mér hvort aðrir notendur Símans séu að lenda í þessu.
Er búinn að prófa fleiri tölvur á heimilinu og líka að restara router 3x til að fá nýjar IP tölur.

No luck.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Fös 20. Feb 2009 20:28
af MariusThor
Þetta er alveg eins hjá mér.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Fös 20. Feb 2009 20:58
af blitz
Ekkert svona í gangi hjá TAL

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Fös 20. Feb 2009 22:12
af GuðjónR
Eru ekki fleiri hjá Símanum að lenda í svona? Þorir enginn að viðurkenna?

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Fös 20. Feb 2009 22:32
af JReykdal
GuðjónR skrifaði:Eru ekki fleiri hjá Símanum að lenda í svona? Þorir enginn að viðurkenna?


Allir sýnist mér á umræðum í kringum mig.

Ansi "góðir" að gera þetta í sömu viku og þeir hækka verð.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Fös 20. Feb 2009 22:40
af Gúrú
Prófa að velja eitthvað 'Force' dæmi í uTorrent sem að encryptar allar gagnafærslur?

Ættir þá að geta tengst einhverjum.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Fös 20. Feb 2009 22:55
af MariusThor
Gúrú skrifaði:Prófa að velja eitthvað 'Force' dæmi í uTorrent sem að encryptar allar gagnafærslur?

Ættir þá að geta tengst einhverjum.



Gerir varla neinn mun.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Fös 20. Feb 2009 23:50
af Allinn
GuðjónR skrifaði:Eru ekki fleiri hjá Símanum að lenda í svona? Þorir enginn að viðurkenna?



Jú þetta er líka svona hjá mér.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 00:27
af Manager1
Þetta er búið að vera svona hjá Vodafone í nokkrar vikur.

Það sést greinilega á hraða-línuritinu í Utorrent að Vodafone cappa alla torrent umferð nema um hánótt, þ.e. milli kl. 02 og 08, það sést vel hvenær þeir opna og hvenær þeir loka.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 00:29
af GuðjónR
Gúrú skrifaði:Prófa að velja eitthvað 'Force' dæmi í uTorrent sem að encryptar allar gagnafærslur?

Ættir þá að geta tengst einhverjum.


Ég get tengs öllum innlendum, en engum erlendum.
Ég hringdi í 8007000 og hann kannaðist við að hafa fengið svona kvartanir.
Saði að það yrði hring í mig eftir helgi.

Ég kom því að hjá honum að ég kynni ílla við að netið hjá mér væri ritskoðað og ég mættu sumt en ekki annað, forræðishyggja er mér ekki að skapi

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 01:46
af Ezekiel
það er enginn spurning að þessir isp-ar séu að cappa torrent, ég hef sjálfur reynt að komast hjá því að skipta um port sífellt, en jafnvel þá, þá ná þeir að loka fyrir það á endanum.

afsökunin er alltaf að við séum að stela bandvídd af öðrum viðskiptavinum, eða þeir segjast ekki kannast við þetta



í sjálfu sér er þetta bara hreinn og beinn íslenskur viðskiptaháttur sem við íslendingar þekkjum svo rosalega vel en látum alltaf endalaust bjóða okkur

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 03:22
af gardar
blitz skrifaði:Ekkert svona í gangi hjá TAL


Neinei bara lélegt routing, ekkert annað.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 12:39
af Joi_gudni
Veit ekki hvort það tengist þessu eitthvað.. en getiði sagt mér hví ég er að fá erlent niðurhal af öllu torrent og DC sem ég nota...(Deiling, TVB, rT,DeilingDC....)

er hjá Tölvun í Vestmaneyjum... hefur alltaf verið svona... :(

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 13:15
af GuðjónR
Þetta er ekkert annað en helvítis ritskoðun!
Er að verða eins og í Kína, mátt bara dl svona og svona miklu, og mátt bara nota þennan samskiptarmáta en ekki hinn!

Ég er ekki með Netvarann en það er eins og hann hafi verið settur á tenginguna.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 13:16
af Blackened
Joi_gudni skrifaði:Veit ekki hvort það tengist þessu eitthvað.. en getiði sagt mér hví ég er að fá erlent niðurhal af öllu torrent og DC sem ég nota...(Deiling, TVB, rT,DeilingDC....)

er hjá Tölvun í Vestmaneyjum... hefur alltaf verið svona... :(


Vestmannaeyjar eru útlönd?
..ætli þú verðir ekki bara að spyrja Tölvun ;)

En annars er ég að sjá þetta núna.. síðustu 2 torrent sem ég hef byrjað á TorrentLeech fæ ég bara EKKERT samband við
og eitt torrent sem ég byrjaði að sækja á piratebay byrjaði ágætlega fyrir svona viku síðan.. en hefur ekkert gengið uppá síðkastið

..er hjá símanum.. heeelvítis drullusokkar!

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 13:18
af GuðjónR
Ég er búinn að prófa 10x útlenskar síður núna, og forrtið er með 0 á öllu, ekkert activiti. Tvær íslenskar síður og þær svínvirka.
Ef þetta er ekki forsendubrestur samnings þá veit ég ekki hvað!

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 13:29
af daremo
Ég er enginn aðdáandi $ímans.. Langt frá því, en ég verð að segja að ég hef ekki tekið eftir þessu. Fæ yfirleitt 6-700kb/s á vel seeduðum erlendum torrent.
Var reyndar að starta einum áðan og hann klifrar rétt svo upp í 250kb/s.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 13:53
af HemmiR
tja,, Mér hefur ég nú bara alltaf hafa fengið eigilega lelegt speed á erlendum torrentum, Þó svo að það eru fleiri þúsundir að seeda. Eins og núna t.d þá er ég að dla family guy þátt og það eru ekki nema 3.423 seeders.. og er rétt að ná að slefa uppí 30kb/s ](*,)

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 13:55
af Pink-Shiznit
GuðjónR skrifaði:Ég er búinn að prófa 10x útlenskar síður núna, og forrtið er með 0 á öllu, ekkert activiti. Tvær íslenskar síður og þær svínvirka.
Ef þetta er ekki forsendubrestur samnings þá veit ég ekki hvað!

Ég næ mb á deiling, en TPB eða þessar erlendu ganga ekkert

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 15:25
af GuðjónR
Ég ákvað að gera tilraun, fór í kaffi til múttu og installeraði uTorrent og fór á filelist.org
Tók einhvern fæl og wollahh...það virkar. Hún er hjá Símanum og er ekki með "cap" á tengingunni sinni.

Þetta sannar það sem mig grunar, þeir eru að cappa utanlands p2p á "völdum" tengingum.
Í raun ætti maður að nota orðið BLOCKA, en ekki cappa þar sem hraðinn á torrent er 0.

p.s. hvernig kemst maður framhjá þessu hjá þeim?

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 15:34
af Arena77
GuðjónR skrifaði:Ég ákvað að gera tilraun, fór í kaffi til múttu og installeraði uTorrent og fór á filelist.org
Tók einhvern fæl og wollahh...það virkar. Hún er hjá Símanum og er ekki með "cap" á tengingunni sinni.

Þetta sannar það sem mig grunar, þeir eru að cappa utanlands p2p á "völdum" tengingum.
Í raun ætti maður að nota orðið BLOCKA, en ekki cappa þar sem hraðinn á torrent er 0.

p.s. hvernig kemst maður framhjá þessu hjá þeim?



Ertu ekki bara komin yfir kvótan í erlendu niðurhali, það virkar allt hjá mér en ennþá

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 15:38
af Tesli
Ég er að downloada frá thepiratebay.com núna, virkar hjá mér.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 17:11
af Gúrú
GuðjónR skrifaði:p.s. hvernig kemst maður framhjá þessu hjá þeim?


uTorrent>Options>Preferences>BitTorrent>Protocol Encryption = Forced?

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 18:33
af GuðjónR
Gúrú skrifaði:
GuðjónR skrifaði:p.s. hvernig kemst maður framhjá þessu hjá þeim?


uTorrent>Options>Preferences>BitTorrent>Protocol Encryption = Forced?


Er með það þannig, var að koma heim og torrentið dottið í gang.
Búnn að dl 1Gb af einhverju sorpi sem fer beint í tunnuna :x

En allaveganna þá virðist þetta virka í augnablikinu.

Re: Er Síminn að cappa torrent?

Sent: Lau 21. Feb 2009 19:16
af urban
GuðjónR skrifaði:
Gúrú skrifaði:
GuðjónR skrifaði:p.s. hvernig kemst maður framhjá þessu hjá þeim?


uTorrent>Options>Preferences>BitTorrent>Protocol Encryption = Forced?


Er með það þannig, var að koma heim og torrentið dottið í gang.
Búnn að dl 1Gb af einhverju sorpi sem fer beint í tunnuna :x

En allaveganna þá virðist þetta virka í augnablikinu.



ekki hjá mér...
hjá mér er einmitt ekkert að gerast á torrenti sem að ég adda klukkan 7 í morgun.
er með forced encryption á
en þetta blessaða torrent er bara enþá í 0%

gerist nákvæmlega ekkert, alveg sama þó svo að ég stoppi torrentið og byrji aftur, force starta því, restarti utorrent, /flushdns í ipconfig,
ekkert virkar.
ekki get ég fengið aðra iptölu þar sem að ég er með hana fasta, þannig að það mundi ekkert virka hjá mér.

en það eina sem að ég á eftir að prufa er restarta router, er bara svo óskaplega viss um að það virki ekki hjá mér.

ég er ekki komin framúr á 10 GB kvótanum, annað á netinu virkar stórkostlega, það er bara torrent sem að virkar ekki

og já, ég er sammála um það að þetta sé ekki cap
þetta er ekkert annað en block.