Langar að bæta við að fyrir langar vegalengdir þá er sogkraftur í ryksugu oft ekki nóg.
Þá virkar vel að nota loftpressu í staðinn og blása þræðinum í gegn, með smá plast bundið á endann.
Annað trick.
Eitt sinn þurfti ég að skipta út þykkum hátalaraköplum sem höfðu verið dregnir í rör fyrir annarskonar kapla.
Það hafði sennilega verið sullað uppvaskasápu með eða lélegri ídráttarfeiti sem olli því að kaplarnir voru sem steyptir inní rörin, högguðust ekki.
Þá blandaði ég smá vatni við ídráttarfeiti og náði að ryksuga hana inní rörið hinum megin frá. Allt rann ljúflega út eftir á
